Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 134

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 134
252 NÁTTÚRU F RÆ ÐINGURINN að yfir aðalrispur með suðlægri stefnu liggi grynnri rispur með stefnu undan hallanum, sem myndazt hafa við jökulskrið, eftir að jökullinn tók að þynnast og skrið hans að laga sig meira eftir landslagi. Þótt aðalefni bergsins í Mýrdal sé inóberg, eru þó nokkur svæði með fornum basalthraunum, sem vel Jiafa geymt jökulrispur. Stærst þessara svæða er hraunið, sem myndar hjallann vestan undir Reynisfjalli, en á jrví standa Foss-bæirnir. Nyrzt sér fyrir því á svonefndu Falli, hæðinni vestur af Heiðardal, og liggur það þaðan til suðurs undir þykkum jarðvegi allt í Holtsenda, sem er skammt norðan við bæinn Þórisholt. Víða sér í það í vesturbrún hjallans, t. d. við þjóðveginn í Gatnabrún, en þar liggur ofan á því allþykkt lag af jökulruðningi. Lengi sást fallega jökulrispuð klöpp við Jyjóðveginn á beygjunni upp af bænum Norður-Götum, en nú hafa vegagerðarmenn mjög spillt henni. Úr Jressu hrauni hefur jökullinn brotið upp efnið í jökulurðina norðan við Reynisfjalls- endann. Næst stærst er hraunið á Dyrhólaey. Þá eru minni svæði, t. d. austan við bæinn að Skeiðflöt og tvö á vesturbrún Dalalieiðar sunnan Dimmagils. Þá eru og hraun á Skammadalsheiði, Sjónaröxl að norðaustan og Fagurhól, syðst á Giljaheiði, suðurbrún Reynis- fjalls að vestanverðu og á Hjörleifshöfða. Ennfremur eru á nokkr- um stöðum fornir gígtoppar úr basalti, sem jökullinn hefur skafið móberg ofan af og sett innsigli sitt á. Þá er og allvíðáttumikið basaltsvæði við suðurbrún Mýrdalsjökuls, en mestur hluti þess hef- ur komið undan jökli síðustu 50 til 70 árin, svo að lítil not eru að jtví við framangreindar rannsóknir. Mér var strax Ijóst, er ég hóf jressar rannsóknir, að sérstaklega væri um átta staði að ræða í Mýrdal, sem gætu hafa staðið íslausir upp úr jökulhellunni á síðasta jökulskeiði. Staðir þessir eru talið vestan frá: Pétursey, Fellsfjall, Búrfell, Dyrhólaey, Reynisfjall, Hatta, Háfell og Hjörleifshöfði. Þetta eru því staðirnir, sem ég hef sérstaklega athugað með hliðsjón af ummerkjum ísaldarjökulsins í fjöllunum norður af Mið-Mýrdal, en þar var ég kunnugastur öll- um staðháttum. Pétursey er sérstætt móbergsfjall með allmiklum innskotslögum úr basalti. Hún er 275 m y. s. og rís 235 m yfir umhverfi sitt. Eyjan er sennilega lilaðin upp við neðansjávargos á hlýviðrisskeiði, og er nú ekki nema lítill hluti Jress, sem hún hefur upphaflega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.