Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 10
2. mynd. Nærmynd af
aragónít-kristalþyrpingu
frá Hólsvör. Sýnið er 20
cm á hæð. Close-up of a
crystal group of arago-
nite from Hólsvör. The
specimen measures 20
cm in height. Ljósm.
photo Sigurður Sveinn
Jónsson.
og er það blandað rauðum leir. Þetta
lag gefur kalsítinu sem undir liggur
rauðbrúnan blæ. Síðast hafa svo fallið
út flatír, hvítir, kalsítkristallar, þetta
eru oft stakir kristallar sem eru allt að
1 cm á breidd.
HELSTU FUNDARSTAÐIR
ARAGÓNÍTS
Töluvert hefur fundist af fallegu
aragóníti á svæði því sem fyrr er
greint frá, á milli Stöðvarfjarðar og
Reyðarfjarðar. Mörg sýni þaðan má
sjá í einkasöfnum manna á Austfjörð-
um, t.d. hjá Petru Sveinsdóttur á
Stöðvarfirði. Frægasti fundarstaður
aragóníts hér á landi er þó ótvírætt
Hoffellsfjall í Hornafirði. Þar var ara-
gónít og kalsít (silfurberg) unnið á ár-
unum 1910-1914 og á millistríðsárun-
um (Guðmundur Jónsson 1945). Ara-
gónít var notað í mulning í pússningu
utan á byggingar í Reykjavík, t.d. í
Hlíðahverfi og á Melunum, en silfur-
bergskristallar m.a. innanhúss í aðal-
byggingu Háskóla íslands og í Þjóð-
leikhúsinu. í Hornafirði hefur einnig
fundist aragónít þar sem lengstu krist-
allageislarnir eru 136 cm, en mesta
breidd holufyllingarinnar er 185 cm.
4