Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 12
Heiðursgestir, afmœlisnefnd o. fl. Frá lusgri: Frú Guðrún Stefánsdóttir, frú Lára Rósin- kranz, Guðlaugur Rósinkranz, Jónas Jónsson, Runólfur Sveinsson, Birgir Bergmann, Jóh. G. Helgason, Baldvin Þ. Kristjánsson, Sigurvin Einarsson, frú Jónina Jónsdóttir, frú Auð- ur Jónasdóttir og frú Sigrún Stefánsdóttir frá Eyjadalsá. Við háborð afmeelishófsins. Frá vinstri: Skólastjórafrú Guðrún Stefánsdóttir, samkomustjóri Jóliannes G. Helgason, Jónas Jónsson, skólastjóri, prófessorsfrú Hrefna Bergsdótlir, Þorkell Jóhannesson prófessor, fyrrverandi skólastjóri, og Kristmann Guðmundsson, rithöfundur. stjórans, Jónasar Jónssonar. Ráðgert er, að ræðan verði prentuð í afmælis- ritinu. Baldvin Þ. Kristjánsson, erindreki, mælti fyrir minni Samvinnuhreyfing- arinnar. Er ræða hans birt hér á eft- ir. Næst las Kristmann Guðmundsson rithöfundur, gamall Samvinnuskóla- maður, frumsamda smásögu. Magnús Björnsson ríkisbókari gerði grein fyrir sjóðstofnuninni og söfnun til hennar, en Guðmundur V. Hjálm- arsson útgáfu afmælisritsins og vænt- janlegum nemenda-annál í því. ("Augl. sama efnis er á3.kápusíðuþessaheftis). Runólfur Sveinsson sandgræðslu- stjóri aflienti skólanum málverk af Jónasi Jónssyni skólastjóra, er gert hafði Eggert Guðmundsson listmálari. Var það gjöf frá nemendum útskrifuð- um 1933, í tilefni af 15 ára brottfarar- afmæli þeirra á sl. vori, og bekkjar- systkinum þeirra, er aðeins höfðu setið í yngri deild. Þá voru flutt ávörp frá 1.—15. árg. skólans, og gekk fram einn fulltrú frá hverjum. Því næst söng Samvinnuskólakórinn (karlakór) nokkur lög. Stjórnandi hans er Ragnar Björnsson, tónlistarmaður. Að söngnum loknum komu fram fulltrúar 16,—30. árgangs, með sama liætti og hinir fyrri. Skemmtileg atvik voru það, að fulltrúar 1. og 30. árg. voru feðgar, Benedikt Gíslason frá Hofteigi, og Árni sonur hans, og með- al ávarpsflytjenda voru einnig fyrsta konan, sem útskrifaðist úr skólanum (1920), frú Sigrún Stefánsdóttir frá Eyjadalsá, og sonarsonur Jakobs Hálf- danarsonar, fyrsta kaupfélagsstjóra landsins, Ásgeir J. Jakobsson, málara- meistari. Sigurvin Einarsson, framkvæmda- stjóri, einn af 28 úr 1. árgangi (1918— 19), stjórnaði ávarpaflutningnum og minntist að lokum látinna nemenda Samvinnuskólans. Risu menn úr sæt- um í virðingarskyni við minningu þeirra. Eiríkur Pálsson, fyrrv. bæjarstjóri, kennari við skólann, flutti drápu í til- efni af afmælinu. Sigurður Kristinsson, fyrrv. for- stjóri, form. Sambands ísl. samvinnu- félaga, flutti ávarp það, sem prentað er í þessu hefti. Guðlaugur Rósinkranz, yfirkennari, sem lætur nú af störfum við skólann, með því að hann liefur verið skipaður þjóðleikhússtjóri, ávarpaði samkvæm- ið og flutti nemendum sínum á 19 ára starfsferli kveðjuorð. — Samkvæmis- stjóri þakkaði yfirkennara í nafni nem- enda hans ágætt starf í þágu skólans og árnaði honum heilla í því virðulega og vandasama embætti, er hann nú tekst á hendur. Jónas Jónsson skólastjóri flutti að síðustu ræðu þá, sem birtist fremst í þessu hefti. 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.