Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 13
Nokkur hluti afmœlis-samkvœmisgesta að Hótel Borg 11. marz sl. Öllum þessum dagskrárliðum var vel fagnað, en þó reis fagnaðaralda samkvæmisins liæst, er skólastjóri gekk að ræðustóli. Og þegar hann hafði lokið ræðu sinni, var hann hyllt- ur með ferföldu húrrahrópi. En eng- inn er til frásagnar urn það, hve rnarga hefur fundizt sig bresta orð til þess að þakka Jónasi Jónssyni — andlegum leiðtoga íslenzkra samvinnumanna um aldarþriðjungs skeið — ómetanlegt starf hans í Jrágu hugsjónarinnar, sem hann kenndi þeim að virða og unna. Nú var eftir seinasti liður dagskrár- innar: dansinn, sem stiginn var til kl. 2 eftir miðnætti. Heillaskeyti bárust skólastjóra og samkvæminu frá biskupi íslands, skólastjóra Verzlunarskólans, kaupfé- lagsstjórum, gömlum nemendum úr Samvinnuskólanum o. fl. Langborð eru rudd. Bekkjarsystkin og samtímamenn í skóla hópa sig. Hóparnir dreifast um veitingasalina. Skólastjóri gengur milli borða glaður í bragði, heilsar upp á gamla nemend- ur og minnist liðinna samverustunda. Hljómsveitin byrjar að leika, og dans- inn er stiginn af svellandi fjöri. (Má- ske rifjast upp hálfgleymt ævintýr!) En þegar menn hvíla sig frá dansinum, er skrafað og skeggrætt af hástilltri hrifningu um þá yndislegu skóladaga. Margs er að minnast, og mörg bekkjar- systkin hafa að jafnaði ekki meira saman að sælda en skip, sem mætast á nóttu. „Ó, góða, garnla tíð, með gull í mund!“ Nokkrum dögum síðar kemur hálf- ur annar tugur gráhærðra unglinga og sköllóttra saman til myndatöku „í tilefni af afmælinu”. Tveir þeirra hafa ekki sézt síðan Samvinnuskólanum var slitið í fyrsta sinn — vorið 1919. Afmcelisnefndin, kosin á almennum fundi nemenda Samvinnuskólans 23. jan. sl. Fremri röð frá vinstri: Baldvin Þ. Kristjánsson, ritari nefndarinnar, Jóhannes G. Helgason formaður og Sigurvin Einarsson. Aftari röð: Birgir Bergmann og Hálton Kristinsson. 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.