Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 42

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 42
Leifur Haraldsson (1934—1935): Ný samvinnulireyfing 'ÍN.C SKÓLI samvinnumanna hefir nú starfað í þrjátíu ár. A liverju hausti koma ungmenni til skólans og dvelja þar einn eða tvo vetur við bóklegt nám. Að því búnu hverfa þau aftur til daglegra starfa í j:>jóðfélaginu. Nokkur liluti þesa fólks er fætt og alið upp í samvinnu- byggðum landsins og þekkir anda og starf samvinnufélag- anna. Það fer í skóla samvinnumanna vegna þess, að það er í andlegum tengslum við stefnu skólans. Aðrir koma þar af tilviljun og án J;>ess að þekkja samvinnufélögin, sögu þeirra, daglega baráttu og framtíðarverkefni. Ur báðum þessum fylkingum skólanemenda liafa kaup- félögunum borizt nýtir liðsmenn, ýmist beint í starfslið sitt eða í félagsmannahópinn. Skólinn .hefir jjannig beint og óbeint orðið til þess að þroska og skapa nýja sam- vinnumenn. Þótt honum hafi að sjálfsögðu verið á margan hátt áfátt sem verzlunarskóla, hefir hann hins vegar alla tíð verið mjög prýðilegur samvinnuskóli. Forgöngumenn skólans og samvinnumenn allir munu líka fyrst og fremst ætlast til þess, að jafnhliða því sem hóflegt kapp er lagt á almenna bóklega fræðslu, sé þess gætt, að þroskun sam- vinnuhugsunar sé meginþáttur skólastarfsins. Kaupfélögin leggja árlega fram allmikið fé til reksturs Samvinnuskólans. Þau leggja fé til fræðslustarfsemi vegna þess, að þeim er ljóst, að aukin þekking og skilningur á starfi félaganna er hornsteinn framtíðarbyggingarinnar. Sú staðreynd blasir þó við, að þrátt fyrir mikil og heilla- drjúg störf félaganna, sem bætt hafa afkomu fjölda fólks og skapað fjárhagslegar og félagslegar framfarir, þrátt fyrir allmikla fræðslustarfsemi, skortir þó verulega á, að sæmi- legur skilningur sé á tilverurétti J^eirra og starfi hjá stór- um hluta þjóðarinnar og þar á meðal stjórnmálamönnum, sem pólitísk rök mæla með að ættu að hafa samstöðu með kaupfélögunum. Vegna sjúkleika fjárhagslífs þjóðfélagsins hafa stjórnar- völdin orðið að gera ýmsar óvenjulegar ráðstafanir á síðast- liðnum árum. Boð og bönn, lög og fyrirmæli eru tákn yfir- standandi tíma. Þessar ráðstafanir hafa alveg sérstaklega náð til verzlunarmálanna. Því verður ekki neitað, að með mörgum fyrirmælanna hefir ríkisvaldið gengið feti lengra en góðu hófi gegndi, og á sama tíma og flestar stéttir hafa barizt fyrir „kjarabót- um“, hafa þeir, sem annast vörudreifinguna, orðið að sætta sig við stjórnskipaða „kjaraskerðingu". Því skal ekki neitað, að margar þær ráðstafanir ríkis- valdsins, sem hér er átt við, hafa verið ill en óhjákvæmi- leg nauðsyn, vegna sjúkleika tímanna. Hitt er svo líka staðreynd, sem þó hefir ekki fengizt viðurkennt til þessa, FORVÍGISMENN samvinnuhreyfingarinnar á Íslandí hafa aldrei gleymt því, sem stendur í helgri bók, að maðurinn lifir ekki á einu saman brauði. Þeir hafa líka vitað frá öndverðum dögum kaupfélagsskaparins, að í elztu kaupfélagssamþykktinni, samþykkt hinna marglofuðu vef- ara í Rochdale, er kalla mætti stofnskrá þessarar stórmerku heimshreyfingar, er jafnrík áherzla lögð á það ætlunarverk félagsskaparins að auka við og efla almenna menntun fé- lagsmanna og að drýgja þeim ónógan framfærslueyri. Um daga samvinnuhreyfingarinnar, rösk hundrað ár, hefur geysimikil breyting orðið til batnaðar á kjörum al- þýðu með jjeim jDjóðum, sem bezt eru menntar, og þá ekki hvað sízt hér á landi, þar sem „stéttarmunur“ er sjálfsagt mun minni en í nokkru öðru þjóðríki. Hin breytta aðstaða til skólagöngu og almennrar mennt- unar, samfara aukinni velmegun, hefur líklegast orðið til þess öðru fremur að loka auguin þorra kaupfélagsmanna fyrir félagsmenningarlegu gildi samvinnunnar. Þróun hef- ur orðið svo hraðfleyg hérlendis á flestum sviðum, að segja má, að við höfum farið á sjö áratugum þá þróunarbraut, er aðrar Jojóðir tók jafnmargar aldir. Hetjuleg barátta frum- herja kaupfélaganna og annarra félagsmálahreyfinga al- þýðu er Jdví í augum þeirrar kynslóðar, sem nú er að kom- ast til manns, álíka fjarlæg og Sturlungaöld og vafin svip- að ríkisvaldið hefði ekki getað haldið uppi þeirri stefnu í verðlagsmálum, sem fylgt hefir verið á seinustu árum, ef kaupfélögin hefðu ekki verið til. Þegnskapur kaupfélag- anna hefir verið stoð ríkisvaldsins. Að sjálfsögðu er þó hægt að ganga lengra á þeirri braut, sem farin hefir verið að undanförnu, en fyllsti velvilji og þegnskapur fær þolað. einkanlega þegar svo virðist sem handhafar ríkisvaldsins meti að engu þann stuðning, er þeir hafa beint og óbeint hlotið af verzlunarstarfsemi kaupfélaganna, og félögin virðast nær frekar gjalda en njóta þegnskapar síns. AÐ er hægt að tala um tvenns konar samvinnuskóla. Annars vegar er skólinn, sem kaupfélögin starfrækja í Reykjavík, hins vegar er hin daglega barátta samvinnu- manna í landinu, skóli lífsins. Það hefir verið og er þýð- ingarmikið, að ungmenni þau, sem fara í Samvinnuskól- ann til námsdvalar, leggi sig fram til þess að ná sem bezt- um árangri með skóladvölinni. Hitt er líka nauðsynlegt, að samvinnumenn landsins í heild leggi sig fram og haldi fast á málstað og rétti kaupfélaganna. Hjörtur Ó. Hjartar. 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.