Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 36

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 36
Þingeyjarsýslu, þangað sem merki íslenzkra samvinnusam- taka var fyrst hafið á loft án þess að falla. Ef til vill eigum vér, sem sjálf sitjum við hlaðin nægta- borð, bágt með að gera oss í hugarlund svo sem skyldi allar þær raunir, sem forfeður vorir máttu þola af völd- um hungurvofunnar. — Þó mun það vera svo, að ýmsir vér, sem hér erum mættir í kvöld — og jafnvel ekki svo gamlir — munum geta tekið undir með Þorsteini Erlings- syni og sagt af eigin lífsreynslu: „Ég veit, hvað svöngum vetur er, þú veizt það kannske lika.“ Það er með öðrum orðum ekki langt síðan lífsaðstaða margra var erfið — svo erfið, að viðkomendur gleyma því aldrei — og bera þess jafnvel aldrei bætur. — „Sálin grét ‘ — ekki aðeins viðkvæm en skilningslítil barnssálin, heldur líka sál lífsreyndra foreldra, sem kenndi í hjartastað, þegar svangur barnaliópurinn bað um brauð, sem ekki var til.... En það er engin harmasaga, sem ég ætla að þylja í þessar mínútur. Frekar ætti það að vera gleðimál — sigursaga, sem er enn bjartara yfir fyrir það, að bakgrunnur hennar er dökkur. Það var sem sé ekki ófrjótt hugarvíl og harmatölur, sem einkenndu samvinnufrömuðina. Hörð lífsbaráttan og rík sjálfsbjargarviðleitni knúði þá til athafna — en ekki aðeins með eigin hagsmuni fyrir augum, heldur náungans einnig — allra manna. Hitamagn hugsjónanna fór áreiðanlega um öijd mannanna, sem gerðu ráð fyrir heill hvers manns fyrir tilverknað heilbrigðrar stefnu — en einskis manns ógæfu. Sigurinn skyldi ekki verða sársauki neins. — Samhjálpar- andinn skaut rótum í brjósti þeirra, þegar fokið var í hvert hinna gömlu skjóla og þeir stóðu einir eftir á berangri allsleysis með manndóm sinn einan að vegarnesti. Upp af þessu spratt sú speki, sem frumherjar samvinnu- hreyfingarinnar sóttu til lifsins sjálfs. — Þannig er sú stað- reynd minnisstætt og áhrifaríkt dæmi um sannleiksgildi orða skáldsins, sem ég nefndi í upphafi máls míns. Og hvað hefir svo reynslan sýnt um trú og vonir þesara manna, sem fyrir miðja nítjándu öld hófu fána samvinnw- samtakanna — og arftaka þeirra síðar á öldinni? Hafa þær orðið sér til háðungar? Oftlega hafa Ijós blossað upp í mannheimi — jafnvel hin skærustu ljós, að því er sýndist, og trúað var af mill- jónum manna að beina myndu braut til farsældar. En þau hafa mörg hver slokknað fyrir sviptivindum tímans eftir skamma stund. — Önnur hafa reynzt hörmuleg villu- ljós, sem leiddu út í ægilegar ógöngur og ógæfu mann- kynsins um ófyrirsjáanlega framtíð. Slík urðu ekki örlög þeirrar stefnu, sem vér minnumst nú. Hún reyndist öruggt og varanlegt leiðarljós, til hag- sœldar og mannbóta. Árið 1944 — fyrir tæpum fimm árum — var aldarafmæl- is samvinnuhreyfingarinnar minnzt á veglegan hátt í flest- um löndum jarðar. Þá var margt fallegt orðið sagt og skrif- að — og vissulega ekki að ástæðulausu. Þá reyndust þeir 36 margir, sem með ýmsum hætti urðu opinberir vottar þess, sem gerzt hafði — þrátt fyrir hamfarir tveggja heimsstyrj- alda. Víst væri freistandi að tilfæra t. d. nokkur ummæli heimsfrægra manna þessu viðvíkjandi, en það get ég tím- ans vegna ekki leyft mér nú. Uppskeran á samvinnuakrinum hafði ekki brugðist, en varð eins og til var sáð — og þó e. t. v. meiri. Undur og stórmerki höfðu gerzt á sviði verzlunar og viðskipta. Mill- jónasjóðir, byggingar, verksmiðjur og skip höfðu orðið til án þess að hafa ranglega nokkuð af nokkrum — já, á sama tíma og hagur samvinnumanna og annarra blómgaðist að öðru leyti fyrir ágæti samvinnuskipulagsins. Aldrei fyrr hafði svo mikið gerzt á þessum vettvangi jafn frið- samlega. Augu þjóðaleiðtoga höfðu opnazt fyrir mætti samvinnu- stefnunnar til þes að lækna það alheimsbölið, sem mest er óttast, og skapa frið á jörðu. — Enga spekinga þurfti þó til þess að draga þá einföldu, en rökréttu ályktun, að inn- legg samvinnuhreyfingarinnar til uppbyggingar og gæfu í lífi hvers eins og frjálsum félagssamtökum fólksins, hlýtur einnig að leiða til blessunar í lífi þjóðanna og mannkyns- ins alls. — Þannig liefir tíminn og staðfest reynsla sýnt, að þar fór engin þýðingarlítil dægurfluga, sem samvinnustefnan var og ekkert villuljós hefir hún sýnt sig að vera. Hún er mannlifsbót, sem ár og öld hafa tekið gilda. Hugsjónir samvinnustefnunnar rætast, þótt engin þrumurödd boðbera þeirra fari um löndm. Vér hyllum þá menn — lífs og liðna —, sem færðu fórnir og liðu fyrir göfugan málstað. Megi minningin um þá gera oss, hina yngri, sem njótum ávaxtanna af lífi þeirra og starfi minnuga þeirra orða Gríms Thomsens, að „. .. . rótarslitinn visnar visir, þótt vökvist hlýrri morgndögg.“ Þess vegna má sambandið við fortíðina aldrei rofna, heldur verða oss sívökul hvatning til varðveizlu vors dýra arfs — þess, er stundleg blessun og samfélagsleg siðabót má spretta upp af. Tilheyrendur mínir! í kvöld hyllum vér sérstaklega einn mann: Jónas Jóns- son frá Hriflu. Ekki aðeins sem stofnanda Samvinnuskól- ans og forstöðumanns hans um 30 ára skeið, heldur einnig sem andlegan leiðtoga islenzkra samvinnumanna um langa hríð á erfiðum baráttuárum, þegar mikið lá við. Þá var það hann fyrst og fremst, sem mest og lengst bar hita og þunga dagsins í sókn og vörn. Vér munum, hve vasklega hann bar vopn sín, og af hvílíkri vígfimi hann beitti þeim. — Frækileg barátta Jónasar leiddi til sigurs fyrir fleiri en gera sér það ljóst — og verður seint fullþökkuð. — Heill honum — þessum vormanni íslands — og öllum hinum; öllum þeim ónefndu, sem kenndu þjóð vorri að „... . sjá og skilja, hvað vor EINING mikils má“ á vegum slíkrar stefnu, sem samvinnuhreyfingin er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.