Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 45

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 45
og guðspjallið segir frá. Slíkir helgileikir urðu brátt tíðir á hátíðisdögum kirkjunnar og voru fluttir á latínu af prestunum sjálfum. En að því kom, að efni leikjanna sveigðist æ meir að veraldlegum hlutum, eins og þegar Pétur og Jóhannes hlaupa hvor í kapp við annan til grafar Krists, eða þegar María fer að kaupa smyrsl hjá kaupmann- inum. Þarna er frækornið, sem hinir veraldlegu leikir miðald- anna spretta úr. Persónum leikjanna tók að fjölga, og ein þessara nýju var augsýnilega neðan frá víti, og nú var leikjunum þokað út úr kirkjunum. Fyrst á kirkjutröpp- urnar, en þaðan fluttust þeir út á torgin eða kirkjugarð- ana. Orsök þess, að helgileikir munu ekki hafa verið sýndir í kirkjum hér á landi, mun vera fæð klerka og latínulærðra manna, en eigi sú, að íslenzkir kennimenn hafi verið þeim ókunnugir. í Sturlungu og Biskupasögum er víða getið um dansleiki og danskvæði, en lýsingu á dansleikjum hér á íslandi frá þessum dögum er ekki að finna. Hér mun vera um að ræða hinn franska hringdans, þar sem kveðið var undir dansinum, og var sá skáldskapur oft lélegur og orðaval ófagurt. Er í einum stað talað um „klækilegar vísur og hæðilegar og óáheyrilegar", enda lagðist kirkjan á móti þessum leikjum, svo að þegar slíkur dans er stiginn í kirkju á sjálfa jólanóttina, þá lætur þjóð- trúin jörðina opnast og svelgja hinar léttúðugu sálir. En hrörnandi híbýli, drepsóttir og hallæri urðu ekki síður þessum alþýðuskemmtunum, sem ýmist voru nefnd- ar vaka, vökunótt, gleði, dans eða dansleikur, að fjörtjóni en bönn og forboð kirkjunnar. Og fólksfæðin og strjál- býlið áttu sinn þátt í því, að vér eignuðumst ekki þjóð- legar dramatískar bókmenntir eins og ítalir, Spánverjar, Erakkar, Englendingar og Danir. Með Herranóttunum í Skálholtsskóla er talið að leik- sýningar hér á landi hefjist, en um aðdraganda þeirrar sýningar er margt óljóst. Fyrsta íslenzka leikritið, sem talið verður, er „Sperðill“ eftir Snorra Björnsson prest á Húsafelli. Leikrit þetta er talið samið um 1760. Þar með hefst saga íslenzkrar leikritunar, og um leið vex áhugi manna á leiklist, sem er nú orðin mjög almennur um land allt. Það er tæknilegum möguleikum að þakka, að fyrir um tveimur og hálfum áratug kemur fram nýtt form leik- rita, en það eru útvarpsleikritin. Árið 1930 var í fyrsta sinn flutt leikrit hér í íslenzka ríkisútvarpinu, og síðan hafa margir freistað þess að skrifa leikrit ætluð til flutn- ings í íslenzka útvarpinu. Utvarpið hefir einnig orðið til þess, að kynna þjóðinni mörg góð leikrit bæði íslenzk og erlend. En samt sem áður hefur val útvarpsleikrita verið með losarabrag og illa búið í haginn fyrir þá, sem að leik- listarstörfum hafa unnið hjá útvarpinu. Útvarpið hefur að vf-su unnið mikið starf í þágu leiklistarinnar, en það gæti á margan annan hátt stuðlað að aukinni og batnandi leikstarfsemi út um byggðir landsins, t. d. með því að taka upp fræðslustarf um ýmislegt, er leiklist og leiksviðs- tækni varðar. INNAN skamms mun svo önnur stofnun, Þjóðleikhúsið, hefja starf sitt, en við þá stofnun eru tengdar þær von- ir, að þá hefjist nýtt tímabil í sögu íslenzkrar leiklistar Erlendur Einarsson (1939—1941); Skroppið í undirheima AÆTLUNARBÍLLINN brunar áfram eftir veginum, sem liggur frá borginni E1 Paso í Texas til Carlsbad- hellanna í New Mexico. Við erum fjórir íslendingar á ferðalagi um Bandaríkin og lögðum af stað þann 9. maí, daginn eftir Evrópu-friðardaginn. Ferðafélagar mínir eru þeir Axel Helgason, lögregluþjónn, Reykjavík, Steingrím- ur Karlsson, framkvæmdastj., Reykjavík og Sveinn Elías- son, bankabókari, ísafirði. Við höfum ferðazt í áætlunar- bílum Greyhound-félagsins alla leið frá New York, en höf- urn stanzað víða á leiðinni til að skoða ýmsa merkilega staði, sem skráðir voru í ferðaáætlun okkar. í dag ætlum við að skoða einn þessara staða, hina frægu Carlsbad-hella. og leikritunar. Þjóðleikhúsinu verður ekki unnt að ná til landsmanna jafnalmennt sem ríkisútvarpið, en verksvið þess hlýtur að liggja víðar en í sjálfri höfuðborginni. Það á að vera miðstöð þeirra mörgu leikfélaga, sem starfandi eru um allt land, og veita þeim stuðning í starfi þeirra. Á rneðan leikstarfseminni er þannig farið, að leikfélögin starfa án samstarfs sín á milli, þá hlýtur starfið að vera ýmsum erfiðleikum bundið. Erfitt er um öflun alls þess, sem leiðsviðið varðar, og sömuleiðis allt, er lýtur að gerfi leikendanna. Þá er ótalið stærsta atriðið, en það eru sjálf leikritin. íslenzkar bókmenntir eru ekki auðugar af leik- ritum úr íslenzku þjóðlífi. Þau, sem við eigum af slíku tagi, eru mörg þannig úr garði gerð, að þau eru ofvaxin leikflokkum í fámennum byggðum. Leikritagerð er erfið viðfangs, og hér á íslandi hefur hún ekki orðið til fjár, nema þá ef til vill á allra síðustu árum. Hér þyrfti Þjóð- leikhúsið að hlaupa undir bagga með því að efna til sam- keppni um hæfilega löng og fjölmenn leikrit með efni úr íslenzku þjóðlífi að fornu eða nýju. Slík samkeppni getur orðið til þess, að hvetja áður lítt kunna höfunda til átaka við verkefni, sem skilar góðum arði, ef vel lánast. Þjóð- leikhúsið þyrfti einnig að geta séð um útgáfu þessara leik- rita og vera í öllu ráðgefandi fyrir leikfélög, skóla og aðra, sem vilja starfa að þroskandi og heilbrigðu skemmtana- lífi með leiksýningum í heimavistum sínum. Með því að ráða leiðbeinanda, sem ferðaðist á milli, mundi á enn einn hátt verða unnið að þessu með festu og dugnaði. Það er ekki ætlunin að gera alla, sem að þessu vilja vinna, að leikurum eða leikritahöfundum. Til þess starfs eru margir kallaðir en fáir útvaldir. En almennur áhugi mun stuðla að því, að íslenzk leiklistarstarfsemi verði merkur þáttur íslenzkrar menningar, — menningar, sem ræktar góða drengi og batnandi. Sveinbjörn Jónsson. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.