Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 38

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 38
Auður Jónasdóttir (1931—1932); í sambýli við Samvinnuskólann ÞF.GAR FORELDRAR mínir criftust heEði pabbi getað sagt við mömmu: „Eg gef þér alla ást mína, en um heimili okkar mun jafnan standa nokkur vopnagnýr.“ Skólastjóraíbúðin í Sambandshúsinu var áreiðanlega á sinni tíð eitt hið gestkvæmasta og „órólegasta“ heimili á landinu. íbúð okkar og kennslustofiir Samvinnuskólans voru á sömu hæð og hlið við hlið í húsinu, en 11 metra langur gangur skildi þær að, og var það forstofa heimilis- ins. Fyrstu árin var sími foreldra minna líka shni skólans og á dansleikjum var stundum „marcherað“ úr skólastof- unura og gegnum ganginn og síðan inn í skólastofurnar. Var þá oft erfitt fyrir okkur systurnar að fara að hátta og sofna. Mörg kvöld voru fundahöld í skólanum. Um helgar voru annað livort fundir, dansæfingar eða skuggamyndir á vegum skólans, en mörg önnur kvöld pólitískir fundir. Á 50 ára afmæli pabba talaði fjölskylduvinur fyrir minni okk- ar systranna og sagði, að aðalstarf okkar á heimilinu hefði verið að svara í síma og fara til dyra, 22 metra í hverri ferð. Þrátt fyrir fundarhöld og mikinn gestastraum er æsku- heimilið í Sambandshúsinu í huga okkar systranna eitt hið samstilltasta og hamingjusamasta, sem við höfum kvnnst. Það eigum við fyrst og fremst að þakka móður okkar. Það var líka að miklu leyti henni að þakka og pabbi gat starfað út á við eins mikið og hann gerði. Heimilið var samstillt, kennararnir við skólann vinsamlegir og nemendur í skól- anum alltaf góðir félagar. Heimilið og skólinn varð í vit- und okkar ein heild. Þó að kuldagustur væri af o^ til í landsmálum náði það lítið til okkar, af því að samheldnin í Sambandshúsinu var svo mikil. Þess vegna höfum við syst- ur fyrst og fremst bjartar og hlýjar endurminningar úr Sambandshúsinu. í skálaræðu, sem haldin var fyrir mömmu, sagði ræðu- maðurinn, að starf hennar væri hið sama og hallarfrúar- innar á miðöldum. Eiginmaðurinn væri löngum út á við í bardögum og æfintýrum, en frúin gætti hallarinnar og alls þess, sem þar þurfti að verja, grædcli þá sem særðust í stríð- inu og gerði þá færa til að halda áfram sinni iðju. Sá sem þetta mælti var útlendur stjórnmálamaður, sem var kunn- ugur lífi manna á íslandi. Flest börn, sem alizt hafa upp í sambýli við skóla, segja að það sé ekki að öllu leyti ákjósanlegt. En á okkar heimili bættist það við að um pabba hefur jafnan staðið meiri styrr en um flesta samtíðarmenn hans. Auk þess voru á heimil- inu á hverjum vetri nokkrir dvalargestir og varla man eg eftir máltíð, sem ekki væru fleiri eða færri gestkomandi. En þrátt fyrir margþættar annir gáfu foreldrar mínir sér tíma til að sinna okkur systrunum og gerðu okkur að félögum sínum. Það hefði verið léttara fyrir mömmu og pabba að skilja okkur eftir heima þegar þau ferðuðust, bæði heima og erlendis, en þau tóku okkur alltaf með þegar þau gátu, og fræddu okkar á skemmtilegan hátt um atburði, sem gerzt höfðu á hverjum stað, um borgir og fólk, hvers vegna fjöll- in væru mismunandi að útliti, um heiti trjánna og blóm- anna o. s. frv. Á þeim aldri, sem margir unglingar eru að byrja ferðalög, vorum við í þeim efnum sjálfbjarga innan lands og utan. Ir 30 ÁRA Samvinnuskólahófi nýlega þekkti eg nöfn flestra, sem verið höfðu í skólanum þangað til eg flutt- ist að heiman, og þegar eg renni huganum til baka, eru ótal skemmtilegar endurminningar tengdar við gamla nemend- ur, allt frá javí að eg í æsku minni skvetti vatni af svölttm Sambandshússins ofan á kollana á þeim, eða dansaði á skólaböllum og var skotin. Við skólaslit fyrstu árin var oft kaffidrykkja í skólastofun- um og síðan var komið inn í setustofu, sungið og rabbað. Að lokum settust allri flötum beinum á gólfið, ljósin voru slökt og þá hófust mergjaðar draugasögur. Þorðu margir varla að fara einir heim þau kvöldin, enda var Sambands- húsið í hinu fræga Skuggahverfi. Tveir kennarar Samvinnuskólans eru mér sérstaklega minnisstæðir, faðir minn, sem sagði okkur svo margt skemmtilegt og fróðlegt utan við námsgreinarnar og Tryggvi Þórhallsson, sem gerði íslenzkutímana tilhlökkun- arefni og lífgaði okkur með hressandi söng. Grímur Einarsson húsvörður var góðkunningi skóla- fólksins og alltaf vinur okkar Gerðar. Honum þótti sopinn góður í þá daga, en var jafnan mildur og góðviljaðttr við alla í húsinit. Einu sinni hafði hann fengið einum of mik- ið, og átti erfitt með uppgöngu í íbúð sína á efstu hæð. Við Gerður studdum hann þangað, háttuðum hann og settum lyklakippuna undir koddann. En svo illa vildi til næsta morgun, að lyklarnir lokuðust inni. Eg man enn eftir þeim réttláta vandlætingarsvip sem var á andliti Gríms þegar hann sagði: „Það geymir enginn heilvita maður lyklana undir koddanum“. Eins og eg drap á, voru skólanemendur í raun og veru partur af heimilinu, miklu fremttr en í flestum heima- gönguskólum. Þeir leituðu til pabba bæði í sorg og gleði. Hann var í einu félagi þeirra og ráðgjafi. Við systurnar fylgdumst með í þessum straum æskumanna og glöddumst þegar vel gekk fyrir gömlum nemendum. Nú er Sölvhóll horfinn og Sambandshúsið með öðrum svip en var, en endurminningarnar frá æskuárunum þar eru bjartar. Auður Jónasdóttir 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.