Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 31

Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 31
sveita, börn friðartíma, börn jarðar; nú er breytingin að ske, ný kyn- slóð vaxin: börn borgarinnar, börn stríðsáranna, börn háloftanna. Allir minnast þegar þeir fyrst flugu, kenndarinnar undarlegu, sem greip þá um leið og vélin hætti að snerta jörðina. Kynslóðin unga er haldin þessari kennd. Hún kemur eiginlega ekki við jörðina, og þessi kynslóð er raunar það eina, sem okkur kemur við, því að hún tekur við merkinu í dag, og livað vill hún, stríðsæskan ólma? Grípa um töfrasprotann. Hún vill fá rétt hlutföll í hraðann; að líka sé fljótlegt að fara það, sem stytzt er. Jafn einfaldur hlutur og að hafa á borðinu mjólk, smjör og kjöt, eins og hver getur í sig látið, þessi 40 tonn, sem Reykjavík þarf yfir daginn, hvað er það? Fjórar flugvélar á dag; ekki þriðju hverja mínútu, eins og í Berlín. Einhverjir fjórir strákanna geta skot- izt eftir þessu; hinir þurfa ekkert um þetta að hugsa. Hún stendur efst á loftbrúnni og blæs í sitt Heimdallarhorn. Og það ámáttlegasta, sem hún sér, er, hvernig þessar vörur eru framleiddar og fluttar, hvernig sniglarnir skríða moldina og snjóinn með sinn mjólkurdropann hver; það er eins og að safna daggardrop- um í stað þess að hafa vatnsleiðslu í húsið. Auðvitað fyndist henni eðlilegast, að þetta væri allt á einu litlu austanfjallsbúi, en það skiptir ekki máli, allt er styttra en austur yfir fja.ll, og betra undir bú alls staðar annars staðar í heiminum, og þessi 30 þúsund í sveitinni, bráðum 20, koma okkur ekki við, frekar en þaú 30, sem vestan hafs eru, — ekkert lengur með þau að gera. Við höfum gert út á þorsk; nú gerum við líka út á kjöt og mjólk. Þetta er stríðsæskan, sem er að taka valdið, og einn daginn vantar þetta allt, eða peninga fyrir því. Hún skilur það ekki; hún tryllist. Hvað skeður, hvað ferst í þeim Ragnarökum, vitið þér enn eða hvað? Einu sinni tóku nokkrir bændur upp á því að verzla ekki við kaupmanninn en bara sjálfa sig. Þá voru menn sums staðar í sveitum, sem datt í hug að byrja á ýmsu undarlegu, en svo skeði það, að þeir höfðu ekkert að selja sjálfum sér, en vantaði mat. Og kaupmaðurinn beið eftir að þeir kæmu til sín, þegar börnin þeirra væru orðin nógu svöng; hann stóð við gluggann, og sjá: Allt í einu sigldi lít'ið skip inn fjörðinn; það getur margt komið með litlu skipi, og þarna var það, sem svangir menn biðu eftir andvaka langan vetur, en líka hitt, sem þeir gátu ekki lifað án heldur, því að með þessu skipi komu samvinnufélögin í landinu. Nú er aftur vonað á skip, en það er í borg. Þeir, sem sameinast í einum anda: eins og selstöðukaupmaðurinn áður, er nú sveitafram- leiðandinn vanfærari með hverju ári að gegna sínu þjóðfélagslega hlutverki; hörmangarafélagið svíkst um að senda á hafnir; það vantar helminginn af vörunni; hitt lélegt og á okurprísa. Það verður að stofna til samvinnu gegn ófagnaðinum, móti Guðjohnsen, hefjast handa, — taka hlutina hjá sjálfum sér. Þeir ætla nú að eignast skip, og nú er sú öld, að ýmsir kunna að sigla. Kannske þær nætur í nánd, að þeir liggi andvaka eins og Geitafellsbóndinn, sem ekki gat hætt að hugsa um vöruskipið skamm- degisnæturnar. Og einn morgun vaknar bóndinn á Grímsstöðum eða Gautlöndum í rúmi sínu, og sjá, hann er orðinn Guðjohnsen, og mikið skip komið inn fjörðinn, og þar á er það, sem hann hafði ætlað að selja — og sjálfs hans glötun; en það getur fleira verið í stóru skipi, og — með þessu skipi getur komið dauði samvinnufélaganna í landinu. Heimavígstöðvar Ofar í landinu stendur bóndinn, útlaginn í eyjunni; hann berst á hnjánum með brostið afl; Illugi ekki lengur að baki hans, og með gerningum er sótt að af óvígu liði. íslenzkir samvinnumenn horfa nú yfir mikla landvinninga og glæstar sigurbrautir. Það er gott að gleðjast yfir unnum sigrum, samt er betra að ganga fram í sigurgleði hinna óunnu sigra, og þó mest um vert, að aldrei gleymist að það er hægt að vinna allar orrusturnar en bíða þó lokaósigur. Keisaradæmið þenst út, yfir ný ríki, borgir og strandlengjur. En um leið eru komnar innan landamæranna ókunnar þjóðir, annar- legar tungur. Liðskostur samvinnufélaganna vex í bæjum. Það er einn þáttur í sigrunum, að nýjar og nýjar þúsundir launastéttarfólks bæjanna skipa sér undir merki samvinnunnar; það eykur félagsstyrkinn, dregur þá bróðurþræði milli stétta, sem nú skortir flestu fremur. Bæjarfólkið setur æ meir svipmót á starfsemi samvinnufélaga, nær þar auknum tökum. Og þar eru ýmsir góðir samvinnumenn. En gleymum ekki raunverulegri afstöðu launþegastéttanna — eða mikils hluta Jreirra — til samvinnustefnu. Eitt er samvinnumaður, annað meðlimur í samvinnufélagi; sam- vinnumaður trúir á sjálfa samvinnustefnuna, sér tækið, en einnig markmiðið; í augum hans er samvinnan lausn vandamálanna, lykill að höll framtíðarheimkynna. Hvað er samvinnufélag í augum launa- stétta bæjanna, sem standa við anddyri ríkissósíalismans — lykill að búðardyrunum á horninu og ekkert annað — og kannske ýmsar aðrar búðardyr jafn góðar. Þetta eru ekki dyrnar til að fórna sér fyrir, en hentugt að fá lykilinn léðan, þar til opnast hið mikla musteri. Jú, líka annað: jregar lyklavöldin eru komin Jreim í hendur: sósíalisk baráttustofnun, með eyðingu sjálfrar sín að lokamarkmiði. Samvinnufélögin eru fóstruð á sveitabæjum; þar hefur verið heitast á þau trúað; þar hafa þeim verið færðar dýrstar fórnir, þaðan hafa þeim komið flestir baráttumenn. Þar er fylking þeirra, sem eru hinir sönnu samvinnumenn. í sveitunum er heimaríkið, höfuðvirkið, þar er heimaliðið. Hitt eru útvígin, þar sem sótt er á. Samvinnufélögin verða að standa styrkum fótum við sveit og sjó. En í heimavirkinu er líftaugin, þar verður kastalinn að standa. Hvernig er umhorfs í heimavirkinu? Stundum var það siður herkonunga til forna, þegar þeir höfðu unnið kastalaborgir, að þeir, sem eftir stóðu af varnarhernum, voru leiddir út á kastalabrúnina og varpað út um vígskörðin niður í borg- arsýkið fyrir utan — einn og einn, unz enginn stóð eftir. í þéttri biðröð er heimalið samvinnukastalans teymt að virkis- veggnum og varpað út um virkisskörðin. Við sjáum þá falla, einn og einn. Það er þetta, sem við horfum á. Gefðu mér aftur herskarana mína, Varus! Samvinnan á mörg og sterk útvígi, og þar standa góðir baráttu- menn. En þeir snúa baki að höfuðvirkinu og sjá ekki, að það er að falla. Eða sitja þeir kannske sem Varus, að veizlu hins germanska höfðingja? En þegar heimaríki er fallið, hleypur málalið úr herbúðum. Þá eru útvígi auðunnin. Þjóðsögur Það var heima, að næturgesti var sagt til vegar að morgni. Sólin var að rísa yfir miðmorgunshæðina. Þangað var honum bent. Stefndu á sólina, maður minn. Hann lagði af stað í áttina þar sem var miður morgunn. En hann hætti ekki að ganga á sólina. Hún færðist í há- degisstað, yfir nónmelana og miðaftansvörðuna, og alltaf réði hún áttinni. Hann rankaði við sér, þegar hún hvarf bak við sóísetursníp- una, og aftur gisti hann í sama kotinu. Svona ferðumst við; sveigjum undan til nýrra eyktamarka; svo er kvöldsett, og hringurinn lokast. En hvar sem við erum á leið, má ekki gleymast, að þeir, sem eru að leggja á stað, stefna alltaf í upp- risuátt sólar, á óskaheiminn, sem vakir í bjarma miðmorgunshæð- arinnar. Við vitum, hvað óskaheimurinn geymir, æskudraumur þjóðarinnar í þúsund ár; ung þjóðarsálin um aldir speglast í þjóðsögunum um son karls og kerlingar í koti og dótturina í Garðshorni, sem eignuðust kóngsdótturina eða kóngssoninn og hálft ríkið. í þjóðsögunni berast til okkar kveinstafir og andvörp allrar lið- innar æsku, andvana fæddar þrár; í þessari sögu um uppfylltar óskir brýzt fram máttvana uppreisn kynslóðar eftir kynslóð gegn þeim forlagadómi, að þurfa alltaf að snúa sér við úr óskaheiminum og gista í kotinu: geta aldrei orðið neitt annað en karl og kerling í koti sínu, og berja utan hólinn hjá Kiðhús. Ég var að skoða 10 hektara býli, búið að byggja íbúðarhús, leggja veg, leiða vatn, rafmagn og síma, hálfrækta landið, verið að byggja útihús. Kostnaður að verða hálf milljón. Þegar lokið er ræktun og 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.