Samvinnan - 01.06.1968, Qupperneq 68
OSTA
BAKKINN
er einstaklega skemmtilegur og fjölbreytitegur réttur Tilvalinn sjónvarps-
réttur daglegur eftirréttur milli eóa eftirréttur við hátíóleg tcekifceri og sér-
réttur á kö/du borði Reynið'-ostabakka það er auðvelt
Ostabakki
Raðið saman á fat ostum og ávöxtum eða græn-
meti og berið fram sem eftirrétt. Gott er að velja
saman milda og sterka osttegund. Þegar ostabakki
er borinn fram sem daglegur eftirréttur eru tvær
til þrjár osttegundir settar á bakka ásamt einum til
tveim tegundum af ávöxtum eða grænmeti, ost
stykkin borin fram heil, svo hver og einn geti skorið
sér ostbita eftir vild
A hátíðaborðið má skera oststafi, teninga og
sneiðar af ýmsum osttegundum og raða smekk
lega á stóran bakka ásamt ávöxtum eða grænmeti
A meðfylgjandi mynd má sjá. Gráðost, camembert
ost, stykki af ambassador, tvær ostsneiðar vafðar
upp ofan á ostinum, valhnetukjarna stungið i.
tilsitterost skorinn í þykkar, þríhyrndar sneiðar
teninga af goudaosti ásamt grænum og rauðum
kokkteilberjum, stungið í appelsínu og teninga af
sterkum goudaosti með mandarínurifi. Ennfremur
eru á bakkanum appelsína, banani, epli og vínber
Fallegt er að skreyta með grænu grænmeti, svo sem
steinselju, dilli eða blaðsalati, þegar völ er á því
Ýmsa fleiri ávexti og grænmeti má hafa með ost-
unum á ostabakka, svo sem hreðkur, tómata,
agúrkur, ólífur, döðlur, gráfíkjur, perur og ananas.
C\ta^ et/ Am/öíAalan y