Samvinnan - 01.04.1970, Síða 28
Hermóður Guðmundsson:
Mei lögum skal
land byggja ^
Lögvernduð mannréttindi
Frelsi borgaranna er skýrt
markað í stjórnarskrá ríkisins.
Þar eru ákvæði um réttindi og
skyldur löggjafans gagnvart rétti
borgaranna í þjóðfélaginu til þess
að lifa lífi sínu og velja sér at-
vinnu og starfsvettvang að eigin
vilja og mati. Þessi borgaralegu
réttindi eru m. a. tryggð í 67. og
69. gr. stjórnarskrárinnar um at-
vinnufrelsi og friðhelgi eignar-
réttarins. Margskonar löggjöf til-
greinir nánar þessi réttindi borg-
aranna og skyldur löggjafans
gagnvart þeim.
í vatnalögum segir m. a.: „Vötn
öll skulu svo renna sem að fornu
hafa runnið“. Þar stendur einnig:
„Ef talið er að fyrirtæki muni
valda hættu, óhagræði eða tjóni,
má ekki leyfa það nema að ætla
megi, að hagur af því verði mun
meiri en sem hættu, tjóni eða
óhagræði nemi.“
í sveitarstjórnarlögum eru sér-
stök svofelld ákvæði um verksvið
sýslunefnda: „að annast álitsgerð-
ir um mál, sem varða einstaka
hreppa eða sýsluna, enda skal
engu slíku máli til lykta ráðið,
fyrr en álitsgerðar sýslunefndar
hefur verið leitað.“
Varðandi mál það — Laxár-
virkjunarmálið — sem hér verður
leitazt við að skýra frá réttarfars-
legu, siðfræðilegu, hagfræðilegu,
náttúrufræðilegu og líffræðilegu
sjónarmiði, er hvorki almennings-
Séð niður Laxárdal frá Helluvaði.
þörf né lagalegur grundvöllur
fyrir hendi til fyrirhugaðra stór-
framkvæmda við Laxá, á þann
hátt sem ráðgert er. Til þess að
gera framkvæmd þessa mögu-
lega mundi þurfa svo víðtæka
eignarnámslöggjöf og stórkost-
lega eignaupptöku og atvinnu-
sviptingar hjá fjölda bænda, að
hinn „hagkvæmi" grundvöllur
mundi bresta gjörsamlega, og
hvorki stjórnarskráin né Alþingi
mundi leyfa svo víðtækt eignar-
nám og mannréttindaskerðingu.
Á grundvelli ákvæða stjórnar-
skrárinnar um frelsi borgaranna
fer starfs- og stéttaskipting innan
þjóðfélagsins fram: Bæir og borg-
ir myndast, fólk býr sér bólfestu,
stofnar eigin heimili og velur sér
framtíðaratvinnu á grundvelli
ákvæðanna um friðhelgi eignar-
réttarins, eftir því sem hugur
hvers og eins stefnir til og önnur
aðstaða leyfir. Þannig er þessu
einnig farið í sveitum landsins,
þótt á nokkurn annan hátt sé.
Þar velur bóndinn sér einnig
heimili og starfsvettvang, sem
krefst meiri og staðbundnari fjár-
festingar en almennt gerist í
landinu, í ræktun, byggingum og
vélakosti, auk sérstakrar sérþekk-
ingar og starfsreynslu, sem hann
aflar sér til þess að tryggja lífs-
hamingjuna.
Þetta gerir það að verkum, að
mun erfiðara er að skipta um
starf og búsetu í landbúnaði en
gerist í öðrum atvinnugreinum
þjóðl'élagsins. Auk þess er at-
vinnusvið bóndans í nánari snert-
ingu við landið og náttúruna en
starfssvið annarra stétta. Svipmót
landsins og gróðursins verður því
einskonar hluti af hugarheimi
hans í daglegu starfi og samskipt-
um við gróðurmoldina — sjálfan
grundvöll lífsins á jörðinni. Frá
landnámsöld og framundir vora
daga lifði íslenzka þjóðin ein-
göngu á landinu og kostum þess.
Annað var ekki að 'hafa, og hver
maður varð að nýta allt það sem
aflað varð, án þess að hugsa um
afleiðingarnar. Hið gróðursæla
og skógivaxna land var hvarvetna
rányrkt, til óbætanlegs tjóns fyr-
ir gróðurinn og dýralífið. Þetta
var gert af vanþekkingu og illri
nauðsyn í fátækt og harðæri til
þess að halda lífi í fólki og fén-
aði.
Breytt lífsviðhorf, tækni og
þekking veita þjóðinni í dag gull-
in tækifæri til þess að bæta fyrir
það, sem misgert hefur verið við
landið á fyrri tímum, með ræktun
og aukinni náttúruvernd. Hlut-
verk bænda í landinu er þjóð-
hagslega mjög mikilvægt á þessu
sviði. Meðan þeir bregðast ekki
skyldu sinni að bæta landið og
auka framtíðarmöguleika þess til
hagsældar fyrir þjóðarbúið, er
enginn grundvöllur til þess fyrir
ríkisvaldið að framkvæma eign-
arnám á jörðum þeirra í þeim
tilgangi að sökkva þeim á kaf í
vatn eða rýra búskaparskilyrði
þeirra svo að þær verði óbyggi-
legar. Hitt væri sönnu nær að
verja rétt þeirra, sem enn vilja
byggja sveitir landsins, í sam-
ræmi við stjórnarskrána og stofn-
skrá Sameinuðu þjóðanna um al-
menn mannréttindi, sem ísland
er aðili að. Ekkert þjóðfélag, sem
viðurkennir þessi grundvallar-
mannréttindi, hefur leyfi til að
þvinga fram framkvæmdaáform,
sem sviptir fjölda manns eign-
um sínum og atvinnufrelsi, og
beita á þann hátt einskonar út-
rýmingaraðferð gegn stóru og
fjölbýlu héraði, algjörlega að á-
stæðulausu.
Virkjunaráætlanir
Fyrirhuguð Gljúfurversvirkjun
í Laxá er ráðgerð, í stórum drátt-
um, á eftirfarandi hátt: Gera á
800 m löng jarðgöng í austur-
barmi Laxárgljúfurs úr stíflulóni
í fyrirhuguð stöðvarhús, sem á
að reisa þar í berginu. Síðan á
að gera mikla jarðvegsstíflu þvert
yfir Laxárgljúfur í tveim áföng-
um upp í 57 m hæð, en fyrir ofan
hana á að myndast ca. 10 km2
uppistöðulón, 15 km á lengd, og
vatnsmagnið mundi þá verða 180
milljón m3. Til aukningar á vatni
í Laxá er áætlað að veita Svartá
og Suðurá í Bárðardal, til stór-
kostlegrar vatnsmiðlunar, í uppi-
stöðulónið og er þessi vatnaflutn-
ingur lokaþáttur virkjunarfram-
kvæmda við Brúar, sem eiga að
skila eftir fimm áfanga 54 Mw
raforku. Með þessu á þó ekki að
nema staðar með virkjanir i
Laxá. Fyrirhugað er að virkja
allt fallið frá Mývatni, að undan-
skildum aðeins 15 m. Til aukning-
ar á orku Laxár er Svartár- og
Suðurárveita ekki talin nægileg,
heldur gera nýjustu áætlanir ráð
fyrir því að þverstífla Skjálfanda-
fljót suður af Bárðardal og leiða
mestallt vatnsmagn þess ásamt
báðum bergvatnsánum norðaust-
ur í Sellönd og Grænpollamýri
að Sandvatni vestan Mývatns-
sveitar og mynda þar gríðarlegt
uppistöðulón með tilheyrandi
mannvirkjagerð. Síðan á að leiða
það niður hjá Gautlöndum og í
Laxá. Þetta ráðgerða lón milli
Bárðardals og Mývatnssveitar,
sem á að verða enn stærra en
allt Mývatn, mundi sökkva mjög
miklu gróðurlendi suðvestan við
Mývatnssveit.
En víðar skal leitað fanga um
vatnaflutninga til Laxár, og er
þá leitað austur fyrir Hvamms-
heiði í Mýrarkvísl í Reykjahverfi,
sem nú er verið að rækta upp
með laxi, og nýlokið er við að
gera mjög kostnaðarsaman fisk-
veg upp yfir Þverárfossa. Orku-
málasérfræðingar hafa bent á
,,hagkvæma“ stíflugerð í Mýrar-
kvísl hjá Klambraseli til þess að
safna saman öllu vatni úr
Kringluvatni og Langavatni, sem
síðan yrði leitt úr væntanlegu
uppistöðulóni í jarðgöngum niður
í Laxá, ofan við hin miklu fyrir-
huguðu stíflumannvirki Gljúfur-
versvirkjunar.
Aðrar orkulindir
Hversvegna beitir Orkustofnun
28