Samvinnan - 01.04.1970, Blaðsíða 63
LYKILLINN
AÐ I»ESSU HÚSI
Calvin Coolidge (1872—1933),
sem var forseti Bandaríkjanna á
árunum 1923—29, var talinn fá-
máll maður. Eitt sinn var kona
hans rúmföst, og hann varð aldrei
þessu vant að fara í kirkju einn
síns liðs. Þegar heim kom, spurði
kona hans, hvort hann hefði not-
ið prédikunarinnar. Hann játti
því.
— Um hvað fjallaði hún?
spurði konan.
— Syndina.
— Hvað sagði presturinn?
— Hann var andvígur henni.
—O—
Coolidge var ástríðufullur fiski-
maður, og á þeim árum sem hann
gegndi forsetaembættinu var
hann vanur að veiða í Brule-
fljótinu, þegar hann vildi hvíla
sig frá lýjandi embættisverkum.
Eitt sinn þegar hann kom aftur
til Washington eftir slíka ferð,
var hann spurður hvort hann
hefði veitt eitthvað.
—- Nú, sagði forsetinn, ég geri
ráð fyrir að í Brule-fljóti séu um
45.000 fiskar, og þó ég hafi ekki
veitt þá alla ennþá, hefur mér að
minnstakosti lánazt að hræða þá.
að Brúarflöt 5 Garöahreppi gæti oróiö yóar, ef heppnin er meö.
Söluverö hússins er um 3 milljónir króna, og er þaö eitt af fjöl-
mörgum stórvinningum i Happdrætti DAS 1970—71. Aörir eru
m.a. 100 bilar, ibúð i hverjum mánuöi, ferðalög, og húsbúnaöar-
vinningar. Hefur nokkur efni á þvi aö láta slika möguleika til stór-
happs framhjá sér fara?
Vönduð íslenzk
framleiðsla.
Umboðsmenn
um allt land.
Grettisgötu 16 - Sími 25252
H A N S A - húsgögn
H A N S A - gluggatjöld
H A N S A - kappar
H A N S A - veizlubakkar
—o—
Meðan Coolidge var forseti lét
kona hans mála af honum mál-
verk og hengdi það upp í skrif-
stofu hans ánþess hann vissi um
það. Coolidge var einmitt að
virða það fyrir sér, þegar öld-
ungadeildarþingmaður kom í
heimsókn til hans. Coolidge benti
á málverkið og gesturinn starði
á það. Mennirnir tveir stóðu
lengi frammi fyrir málverkinu,
og í heilan stundarfjórðung var
ekki sagt aukatekið orð, unz Coo-
lidge rauf þögnina með þessum
orðum:
— Ég er yður samdóma!
Fámælgi Coolidges var kunn
um öll Bandaríkin. Eitt sinn ætl-
aði fulltrúi kvenréttindahreyfing-
arinnar að heimsækja forsetann,
en áður en af því yrði hafði ein
vinkona hennar sagt: „Ég þori
að veðja, að forsetinn segir ekki
þrjú orð við þig.“ Meðan á heim-
sókninni stóð byrjaði kvenrétt-
indakonan á því að segja frá veð-
málinu. Þá sagði Coolidge stutt
og laggott:
— Þér töpuðuð!
63