Samvinnan - 01.04.1970, Síða 37
Oroville-stiflan i Kalifornijt i smiSum. Þartm var á tirunum 1963—S stifÞ
aöur ftröngur dalur meS stóru afrennslissvæði. Stiflan er jarðstifla, sem er
235 m há og um 1700 m á lengd efst. Þykkl stiflunnar við botn er rúmut
kilómetri. Tilgangurinn með stiflunni er margþættur: áveitur, fiskræht,
vatnsleiðslur, minnkuð flóöahœtta og raforkuframleiðsla (115 Megavött).
Lónið, sem myndast ofan stiflunnar, er 63 ferkilómetrar og vatnsmagnið i þvi
fullu nœr 3,5 milljarðar rúmmetra. Skógurinn hefur verið ruddur i þá hœð
sem lónið kemur til með að ná. íbúar stórborganna San Francisco, Oakland
og Sacramento, auk fjölda smærri borga og viðlendra sveita, eiga lif sitt
undir öryggi stiflunnar, sem er þó byggð sem jarðstifla, þrátt fyrir að
Kalifornia er þarna bœði jarðskjálfta- og eldvirkniland.
svæða eða andúð á mannvirkja-
gerð. Það er því tómt mál um að
tala, að náttúruvernd geti byggzt
á friðun einni saman. Aftur á
móti er alls ekki þar með sagt,
að náttúruvernd eigi ekki full-
kominn rétt á sér; þvert á móti
vex og margfaldast þörfin fyrir
hana, eftir því sem athafnasemi
þjóðarinnar fleygir fram. Allt
fram til vorra daga hefur afkoma
þjóðarinnar fyrst og fremst
byggzt á því að arðræna náttúru
landsins, svo að þar hefur ekki
verið um náttúruvernd að ræða.
Þess vegna er svo komið í dag,
að það er orðin knýjandi þörf
fyrir algera stefnubreytingu í
þeim málum. Brýna nauðsyn ber
til að endurskipuleggja alla nýt-
ingu á náttúru landsins með það
fyrir augum að endurbæta, fegra
og auka nytsemi hennar fyrir
fólkið í landinu.
Hvað er þá náttúruvernd? Það
orð hefur sjaldan verið skilgreint
og verður víst aldrei skilgreint til
hlítar, því að merking þess er
harla yfirgripsmikil. Það má þó
hugsa sér að skilgreina orðið
náttúruvernd á eftirfarandi hátt:
Náttúruvernd er öll viðleitni
manna til varðveizlu, viðhalds,
endurbóta og fegrunar á náttúru
landsins. Merking orðsins er því
mjög víðtæk samkvæmt þessari
skilgreiningu, en það virðist mjög
erfitt eða ómögulegt að gefa því
þrengri merkingu samkvæmt því,
sem hér hefur verið rætt að
framan.
Verkefnum náttúruverndar má
þó í höfuðatriðum skipta í þrjá
aðalflokka, sem hver um sig hef-
ur ákveðnu hlutverki að gegna,
en þeir eru:
1. Varðveizla einstæðra eða
sérstæðra náttúrufyrirbæra.
2. Uppbygging þjóðgarða og
ferðamannastaða í náttúrufögru
umhverfi.
3. Almenn náttúruvernd og
náttúruumbætur.
Mörg eru þau fyrirbæri móður
náttúru, bæði dauð og lifandi,
sem eiga hvergi sinn líka, bæði
frá vísindalegu, menningarsögu-
legu og fagurfræðilegu sjónar-
miði. Slík fyrirbæri ber að varð-
veita, ef þess er nokkur kostur.
í flestum tilfellum dugir þar
ekki minna en alfriðun, og nauð-
synlegt mun reynast í mörgum
tilfellum að banna alla umgengni
fólks við þau, ef þau eiga ekki
að glatast. Við eigum þó því láni
að fagna hér á íslandi, að hér
finnast mörg sérstæð náttúrufyr-
irbæri, sem þola furðu vel sam-
býli við fólkið. Samt sem áður
verðum við að vera vel á verði,
því að sú hætta vofir yfir mörg-
um slíkum stöðum, að þeir breyt-
ist á skömmum tíma í ör-
tröð vegna vaxandi ferðamanna-
straums, ef ekki verður fljótlega
spornað við.
Með vaxandi þéttbýli og ferða-
mannastraumi vex stöðugt þörf-
in fyrir náttúrufögur útivistar-
svæði fyrir fólkið, þar sem það
getur eytt frístundum sínum úti
við og notið þeirrar fegurðar, sem
náttúran hefur upp á að bjóða,
og þarf hún þá að vera sem
minnst trufluð af mannanna
verkum. Þetta er hlutverk þjóð-
garða og ferðamannastaða. Slíka
staði þarf að skipuleggja vel. Þar
þurfa að vera vegir, göngustígar
og móttökuskilyrði fyrir ferða-
fólkið. Einnig mun oftast vera
nauðsynlegt að hjálpa náttúrunni
til að þola átroðning fólksins, og
oft má fegra slíka staði með
grasrækt, skógrækt o. fl., svo
lengi sem það fellur inn í annað
náttúrufar staðarins.
Almenn náttúruvernd og nátt-
úruumbætur eru langumfangs-
mesta viðfangsefni náttúruvernd-
ar af þessum þremur. Þetta er
alltof víðtækt verkefni, til þess
að því verði gerð nokkur viðhlít-
andi skil í stuttri gfein. Mann-
kynið hefur nú loksins rankað
við sér og skilið, að ekki verður
endalaust níðzt á gestrisni móður
náttúru, án þess að hún beri
óbætanlegt tjón af. Mennirnir
hafa a. m. k. að nokkru leyti skil-
ið, að arðrán og mengun á nátt-
úrunni getur valdið þeim sjálf-
um ómælanlegum erfiðleikum
eða jafnvel tortímingu, ef ekki
verður breytt hið fyrsta um
stefnu í þeim málum. Mannkynið
hefur þó ekki aðeins skyldum að
gegna gagnvart náttúrunni, það
hefur einnig og ekki síður skyld-
um að gegna gagnvart sjálfu sér
og framtíð sinni. Öll náttúru-
verndarsjónarmið verða því að
mótast af þessum tvíþætta til-
gangi. Sem betur fer geta marg-
víslegar athafnir þjónað báðum
þessum sjónarmiðum, ef rétt er
á haldið. Vissulega hlýtur þó oft
að koma til árekstra þeirra á
milli. Það verður þá að metast i
hverju einstöku tilfelli, hvor þátt-
urinn sé meira virði, en oftast
má þó brúa bilið, ef vilji er fyrir
hendi, með því að bæta náttúr-
unni tjón sitt að nokkru eða öllu
leyti. Báðir þessir þættir eru
þjóðhagsleg nauðsyn, og þeir
mega á engan hátt vanmeta hvor
annan. Ómengað loft og vatn á-
samt ósnortinni náttúrufegurð
eru þjóðarauður, sem ekki má
farga, en jafnframt er það þjóð-
inni jafnnauðsynlegt, að land-
græðsla, fiskrækt, nýting vatns-
orku og jarðhita verði aukin að
miklum mun. Þetta verður allt
að gerast í náinni samvinnu hvað
við annað og með fullu tilliti til
náttúruverndar.
Skal nú vikið nokkrum orðum
að virkjunum og þeim náttúru-
verndarsjónarmiðum, sem nauð-
synlegt er að hafa í huga og
rannsaka í sambandi við áætlana-
gerðir um nýtingu fallvatna
landsins, þó að rúmið leyfi ekki
nema fátt eitt af þeim fjölmörgu
atriðum.
Fiskveiðar í ám og vötnum eru
þar vissulega ofarlega á blaði, og
þá sérstaklega laxveiðarnar. Lífs-
skilyrði laxins í ánum eru mjög
margþætt og margslungin, og má
þar til nefna átuskilyrði, jafn-
rennsli árinnar (flóða- og þurrk-
hætta), klakstöðvar, hitastig o.
fl. Virkjanir ásamt miðlunarlón-
um geta vissulega valdið breyt-
ingum á mörgum þessum þáttum.
Erlendis er fengin mikil reynsla
í þessum málum, og það sem hér
verður sagt er að mestu sótt til
þeirrar reynslu, sem fengizt hef-
ur við Kyrrahafsströnd Banda-
37