Samvinnan - 01.04.1970, Page 48

Samvinnan - 01.04.1970, Page 48
skaut það, sem fyrir fé er falt. Eftirvænting og tilhlökkun er orðin næsta fágæt. Keyptar skemmtanir hafa komið í stað eigin leika. Ég skal nú í örfáum orðum minnast á helztu breytingar í fari skólanema í Reykjavík, eins og þær blasa við mér eftir áratuga samstarf við þá. Unglingar eru linari til átaka en feður þeirra og mæður voru. Þeir eru kulvís- ari. Útivist er þeim andstæð. Bíll- inn og húsaskjól eru þeirra ær og kýr. Hlutfallslega fleiri eiga við sálræna erfiðleika að stríða og eru ónógir sjálfum sér. Ungl- ingar eru nú opinskárri. Fleiri fást til að ræða vandamál sín opinskátt. Öfund er fágætari. 111- kvittni í garð félaga og kennara er liðin saga. Unglingar gera sér nú fyllri grein fyrir því, að menntunar er þörf til þess að verða fullgildir þegnar í þjóð- félagi næstu áratuga. Margt hef- ur verið rætt og ritað um skóla- mál og kennt þar margra grasa og misjafnra. Mér sýnist mennta- skólanemar beri þar af að ábyrgð og raunsæi í tillögum árþinga sinna. Æskan í dag vill styrkari stefnu í skólamálum. Er það að vonum. Unglingar gera sér fyllri grein fyrir því, hvert hugur þeirra stefnir, en forverar þeirra gerðu. Atvinnuöryggi og góð af- koma virðist ráða í ríkum mæli stöðuvali. En það vantar vissa kjölfestu í æsku nútímans, sem æskan fyrir 20—30 árum státaði af. Er það trú? Fyrrum fullnægðu pólitísku flokkarnir trúarþörf unglinga, en nú ánetjast flokkunum færri, og þeir hættir að vera trúarsam- félög. Væri ekki hér jarðveg að erja, foreldrar kenndu almennar börnum sínum bænir, svo sem við lærðum, og auka svo trú- og siðfræði í skólum? Maðurinn lifir ekki af einu saman brauði, ekki fremur nú en fyrir 2000 árum. Eða eigum við að fela allt trúar- uppeldi ótíndum heilagsanda- hoppurum? Hvernig verður æskufólk í Reykjavík að öðrum aldarfjórð- ungi liðnum? Enginn er þess um- kominn að spá þar um, en það er bjargföst trúa mín, að unga fólk- ið, sem er að vaxa úr grasi, verði föðurbetrungar í uppeldismálum. Því hefur skilizt, að ofeldi leiðir ekki til farnaðar og æ koma mein eftir munuð. Margar blikur eru þó á lofti. Fylgikvillar velferðarríkisins eru á næsta leiti. Sænskum og dönsk- um unglingum eru tiltæk eitur- lyf, að ekki sé talað um klámrit og klámmyndir, sem hvarvetna eru föl þar í löndum. Má því gera því skóna, að innan tíðar skjóti þessi ófögnuður upp koll- inum hér. Forðast skyldi að gera slíkt að æsifregnum, þótt auka kynni það sölu blaða dag og dag. Hins vegar skyldi hver og einn talinn vargur í véum, sem færi að tæla fólk — ekki sízt unglinga — til eiturlyfjaneyzlu. Sýnum þeim enga miskunn. Jón Á. Gissurarson. Hrafn Gunnlaugsson: ÞRJÚ SAMSTÆÐ ÁSTARLJÓÐ ÁST Þau. Eina hentuga nótt. Leiðir þeirra skárust eins og hnífseggjar sem er höggvið saman. Bitur er snertingin en heit eina hentuga nótt. Hann og hún. Flugbeittur morgunninn klauf þau í tvo ósættanlega heima. Heit er dögunin en bitur eftir hentuga nótt. GRÁTT SILFUR Enn man ég þá nótt. Ekki vindinn sem blés í kaun í frostinu. Ekki tunglið sem flæddi inn á teppið. Aðeins undrið í myrkrinu. Óhagstæðir verða dagarnir. Tilviljunarkenndir fundir og vandræðaleg auglit á mannamótum tala sínu máli — en ég læt eins og ekkert sé og elda grátt silfur við sjálfan mig. /------------------------------------------------------s Dagur Sigurðarson: VÍTI TIL VARNAÐAR (Til Þorgeirlaugs Mikaelssonar) Þegar hinn úngi efnilegi gáfaði glæsilegi atorkusami hugsjónamaður um íslenzka kvikmyndagerð hafði feingizt við kvikmyndun fossa gosa og merarrassa fyrir túristatrekkiríið í fimm ár var hann kominn með gat á skeifugörn í staðinn fyrir djörfu hugljúfu tímamótakvikmyndina sem hann hafði geingið með í maganum v______________________________________________________) Enn man ég þá nótt. Undrið; þetta sameiginlega þýfi okkar sem við viljum helzt ekki kannast við. ENDURFUNDIR Heimskir góna búðagluggarnir út f sumarið. Ég brosi vandlega við kunningjum og geri mér dælt við götuna. Alltaf jafn sjálfsánægður í hagstæðum jakka og burstuðum skóm með slangur af bröndurum upp á vasann. Þá brýt ég sjálfan mig á þér eins og blindskeri f götunni. Þú kemur mér í opna skjöldu og nístir sakleysislegum augum í hjarta mitt. Eitt andartak; og ekkert er til í heiminum nema ég og þú. Svo kinka ég flóttalega kolli og flýti mér niður asnalega götuna. 48

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.