Samvinnan - 01.06.1970, Blaðsíða 29

Samvinnan - 01.06.1970, Blaðsíða 29
Elísabet Gunnarsdóttir: Undanfarin ár hefur verið mikill ólestur á fjárveitingu þeirri, sem ríkisvaldið hefur úthlutað listamönnum, og er svo komið að farið er að nefna þetta árvisst hneyksli í opinberum umræðum. Þó hefur það verið talin mikil bót að hafið var að úthluta starfsstyrkjum til listamanna á síðastliðnu ári. Ef betur er að gætt, kemur í ljós að þessi nýbreytni jók jafnvel enn á þann rugling sem verið hefur á þessum málum, því ekkert samræmi er milli þessara styrk veitinga og listamannalauna. Það kemur hvergi fram, hvaða munur er á markmiðum þessara fjárveitinga eða hvort hann sé nokk- ur. Það sem á vantar er að ríkisvaldið marki ákveðna stefnu í þessum málum og það liggi ljóst fyrir, hvers vegna ríkið sé að veita ákveðnum listamönnum styrk, og hvað ríkið ætlist fyrir í þessu sambandi. Síðan verði komið á skipulagðri starfsemi til að fylgja þessari stefnu eftir. Hingað til hefur ekki verið um þetta að ræða, fjármagni hef ur verið dreift á tvist og bast og á svo marga aðila að listamannalaun hafa komið listamönnum að litlum notum. Þá hefur nefnd sú, sem falið hefur verið að sjá um úthlutunina, alls ekki verið valin með það fyrir augum að reyna að fá til menn, sem eru vel að sér í listum og fylgjast vel með íslenzku listalífi. Eða hvernig á t. d. bóndi utan af landi að geta fylgzt með því sem er að gerast í mynd- og leiklist, þar sem þessi starfsemi fer að mestu fram í Reykja- vík? Þar að auki hafa sömu mennirnir skip- að nefndina ár eftir ár, svo ekki er nein von um að ný sjónarmið fái komið fram. Sem stendur eru veitt tvenns konar lista- mannalaun: heiðurslaun og venjuleg laun. Það er ekki nema sjálfsagt að Alþingi veiti framúrskarandi listamönnum heiðurslaun fyrir velunnin störf. Það má auðvitað um það deila, hverjir eigi að hljóta þennan heiður, en sjálfsagt að Alþingi ráði því, þar sem beinast liggur við, að þjóðkjörnir menn velji óskabörn þjóðarinnar. Á „venjulegu listamannalaununum" hefur verið óskapleg- ur glundroði. Þar hefur enginn munur ver- ið gerður á því, hvort verið sé að veita mönnum laun fyrir unnin störf eða til fram- tíðarverkefna. Þar hefur ægt saman mönn- um, sem eru í miðju kafi, örfáum sem eru nýbyrjaðir, og mönnum sem löngu eru hætt- ir listsköpun. En þó er verst að þar hefur enginn munur verið gerður á skapandi lista- mönnum og túlkandi. Nú er það svo að túlkandi listamenn hafa allflestir, a. m. k. þeir sem einhver bógur er í, beina atvinnu af listtúlkun sinni. Margir þessara manna eru meira að segja starfsmenn ríkis eða sveitarfélaga. Ef laun opinberra starfsmanna eru ekki nægileg, þá er það engin lausn að vera að veita sumum þeirra launauppbætur í formi listamannalauna. Það er mál, sem Ragnar Jónsson í Smára. hið opinbera og stéttarfélög viðkomandi listamanna verða að leysa. Á hinn bóginn hafa sárafáir skapandi listamenn, svo sem rithöfundar, myndlistarmenn og tónskáld, framfæri sitt af list sinni, heldur vinna þessir menn fyrir sér með kennslu eða jafn- vel enn óskyldari störfum. Það ætti að vera augljós staðreynd, að mannlegt samfélag getur ekki dafnað án listsköpunar, en því miður er því þannig farið hér á landi, að þessi staðreynd er fús- lega viðurkennd í orði en ekki á borði. Þetta sést bezt á því að sífellt er verið að fjasa um „stórvirki íslenzkra andans manna“, „íslenzkan menningararf“, nauðsyn á að efla listfræðslu, „list um landið“ og hvað þetta nú allt heitir á fínu máli. En aldrei er neitt hugsað um að gera átak til að þeir lista- menn, sem eru hér og nú, fái tækifæri til að vinna óháðir að listsköpun sinni, svo tryggt sé að eitthvað nýtt og ferskt bætist við þennan margumtalaða menningararf okkar. Ef til vill er ástæðan fyrir þessu sú, að peningamenn þeir sem stjórna þessu landi hafa aldrei komið auga á að hægt er að græða á listamönnum engu síður en síld, og þess vegna hefur þeim verið annara um að leita að nýjum aðferðum til að þurrausa Norður-Atlantshafið af fiski en að gera menn út á list. Einstakir menn hafa þó unnið gott starf á þessu sviði; og má þar helzt nefna Ragnar Jónsson, sem í mörg ár hefur starfað sem óopinbert listamála- ráðuneyti og af mun meiri skörungsskap en hið opinbera menntamálaráðuneyti. Þetta óeigingjarna starf hans hefur aldrei verið nógsamlega metið. En það er ekki hægt að búast við að einkaaðilar, jafnvel ekki dugn- aðarforkar eins og Ragnar Jónsson, hafi bol- magn til að standa straum af þeirri starf- semi sem nauðsynleg er, og þess vegna verður hið opinbera að fara að taka sig á og sinna þessum málum eins og því ber ótví- ræð skylda til. Fyrsta skrefið í þessa átt tel ég eigi að vera að afnema öll ákvæði, sem til eru um listamannalaun og aðra að- stoð við listamenn, og marka nýja stefnu í þessum málum. í tillögum þeim, sem hér fara á eftir, er eingöngu fjallað um listamannalaun, en ekki minnzt á aðra þætti, svo sem höfundarrétt, styrki til listnáms o. fl. sem þarfnast endur- skoðunar. Ég mun nú rekja efni tillagnanna nokkuð og skýra þær nánar. Greinar 1 og 2 fjalla um hverjir skuli hljóta laun eða styrk frá ríkinu, og eru túlk- andi listamenn teknir út af starfsstyrkjum, en aftur á móti er ekkert því til fyrirstöðu að þeir hljóti heiðurslaun. Greinar 3, 4 og 5 fjalla um heiðurslaun, og er upphæð þeirra miðuð við að þeir sem þau hljóti geti lifað af þeim, og má veita þau sama manni ár eftir ár, svo hér er í raun um opinbera framfærslu að ræða. Ég tel enga ástæðu til að hafa þessi laun til fleiri en 4 manna, þar sem í 200.000 manna þjóðfélagi getur varla verið um fleiri afbragðs listamenn að ræða, jafnvel þótt íslendingar séu gáfaðasta þjóð í heimi. Og ef svo vildi til að tíu meistarar skytu upp kollinum á sama tíma, þá er betra að gera vel við þessa 6, sem af gengju, en að vera að hafa meðalmenn á heiðurslaunum í hundrað ár í þeirri veiku von, að hér fari að spretta meistarar eins og gras á vordegi. Það sem eftir er af tillögunum fjallar síðan um starfsstyrki, og er þar gert ráð fyrir að Alþingi veiti árlega eina heildar- upphæð til allrar þessarar starfsemi. Þessi upphæð verður að nægja í a. m. k. 25 starfs- styrki og allt að þriggja mánaða aukaveit- ingu til efniskaupa til allra þeirra styrk- þega, sem á því þurfa að halda, en að því verður vikið síðar. Auk þess verður í þess- ari fjárveitingu að gera ráð fyrir annarri starfsemi nefndarinnar. Með skipun úthlutunarnefndarinnar er miðað við að bæði hið opinbera, sem legg- ur til fjármagnið, og þeir sem að listsköpun vinna fái nokkur áhrif á skiptingu fjárins. Formaður Bandalags íslenzkra listamanna er formælandi allra aðildarfélaga banda- lagsins og auk þess er hann nauðsynlegur, þar sem ætla má að slíkur maður ha’fi yfir- sýn yfir það, sem markverðast er í íslenzk- um listaheimi. Þrátt fyrir það að ekkert sé því til fyrirstöðu, að sami maðurinn geti verið félagi í tveimur eða fleiri aðildarfé- lögum B.Í.L., eru ekki næstum allar list- greinar sem þar eiga aðild; t. d. er til félag danskennara, en ekkert félag þeirra sem dansana semja. Það er ekkert undarlegt að svo skuli vera, þar sem íslendingar sem fást við slíkt eru sárafáir, svo segja má að ekki borgi sig fyrir þá að stofna félag. En dansari, sem hyggst sækja um styrk til að semja ballet, á samt sem áður sinn fulltrúa í úthlutunarnefndinni og sama er að segja um alla þá túlkendur sem vilja venda sínu kvæði í kross og semja verk, þar sem for- maður B.Í.L. er kosinn af öllum aðildarfélög- 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.