Samvinnan - 01.06.1970, Blaðsíða 49

Samvinnan - 01.06.1970, Blaðsíða 49
Sigurður Líndal: ÍSLENZKIR STJORNMALAFLOKKAR Þriðja grein E. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið var upphaflega stofnað 4. apríl 1956 sem kosningasamtök Sósíalista- flokksins, manna úr Alþýðuflokknum, er stóðu að Málfundafélagi jafnaðarmanna, og hluta Þjóðvarnarflokksins. Var hér einungis um að tefla mjög losaraleg samtök, sem ekki er ástæða til að lýsa nánar. Föstu skipulagi var fyrst komið á Alþýðu- bandalagið sem stjórnmálaflokk á lands- fundi, sem haldinn var 1.—3. nóvember 1968. Stjórn flokksins er eins og í flokkum þeim, sem áður er lýst, skipt milli þeirra stofnana, sem hafa með höndum forystu á afmörkuðum svæðum, og þeirra, sem hafa með höndum stjórn flokksins í heild. Er heildarstjórnin í höndum landsfundar, flokksráðs, miðstjórnar, framkvæmdastjórn- ar og þingflokks. Staðbundin stjórn í hönd- um flokksfélaga og kjördæmisráða. Landsfundur er skipaður fulltrúum flokks- félaga (alþýðubandalagsfélaga), sem kosnir eru á almennum félagsfundum að jafnaði leynilegri kosningu (11. gr., sbr. 30. gr.).22 Auk þess eiga þar sæti þingmenn flokksins, framkvæmdastjórnarmenn og miðstjórnar- menn, enda þótt þeir séu ekki kjörnir full- trúar. Ef svo er, hafa þeir öll réttindi önnur en atkvæðisrétt. Landsfundur skal haldinn í heyranda hljóði og samkvæmt nánari regl- um, er miðstjórn setur. Þó fer umræða fram fyrir luktum dyrum, ef tillaga þess efnis hlýtur þriðjung greiddra atkvæða (14. gr.). Er þess getið í skýringum á flokkslögunum, að greinin feli í sér heimild miðstjórnar til þess að takmarka aðsókn óviðkomandi fólks, t. d. með því að afhenda aðgöngumiða á- kveðnum tíma fyrirfram. Landsfund ber að halda eigi sjaldnar en þriðja hvert ár og á miðstjórn að boða til hans (9. gr.). Frá því að Alþýðubandalagið var gert að formlegum stjórnmálaflokki hef- ur einungis verið haldinn einn landsfundur — stofnfundur flokksins — og sátu hann 129 fulltrúar.23 í lögum Alþýðubandalagsins segir, að iandsfundur hafi æðsta vald í málefnum flokksins. Hann markar stefnu og setur lög (8. gr.). Á landsfundi er formaður flokksins kosinn, varaformaður og ritari i(15. gr.). Ennfremur ákveður hann tölu flokksráðs- fulltrúa úr hverju kjördæmi (16. gr.). Landsfundur Alþýðubandalagsins — sá eini, sem hingað til hefur verið haldinn — stóð 3 daga, og að meðaltali virðast fundir hafa staðið um 8 klst. hvern dag. Gangur mála var þar í fáum orðum á þessa leið: Að lokinni þingsetningu voru kjörbréf rann- sökuð, en síðan voru kosnar eftirtaldar nefndir landsfundar: 1. Kjörnefnd, skipuð 11 manns. 2. Stefnuskrárnefnd, skipuð 9 manns. 3. Allsherjarnefnd, skipuð 9 manns. 4. Skipulags- og laganefnd, skipuð 11 manns. 5. Stjórnmálanefnd, skipuð 11 manns. 6. Verkalýðsmálanefnd, skipuð 15 manns. Að lokinni nefndaskipan voru sett fundar- sköp, en þau skal landsfundur ákveða (12. gr.). Þessu næst flutti formaður framkvæmda- stjórnar skýrslu hennar, en varaformaður flokksins '(formaður hafði þá beðizt lausn- ar) greinargerð um stjórnmálaviðhorfið. Að þessum skýrsluflutningi loknum fór fram almenn stjórnmálaumræða, en síðan voru rædd lög flokksins. Næsta dag stóðu umræður um stefnuskrá, og nefndir þær, sem áður var getið, skiluðu áliti. Síðasta degi landsfundar var hins vegar varið til endanlegrar afgreiðslu mála, — m. a. var samþykkt almenn stjórnmálayfir- lýsing, svo og ályktanir um nokkur nánar tilgreind málefni. Ennfremur voru lög flokksins samþykkt. Af landsfundarskýrslu þeirri, sem hér hef- ur verið stuðzt við, má ráða, að atkvæði hafi fallið nokkuð einróma á endanlegar tillögur. Hins vegar er getið gagnrýni einstakra flokksmanna á þeim og breytinga, sem gerð- ar voru í meðferð þingsins. Einnig er frá því greint, að tillögu hafi verið vísað aftur til nefndar. Sérstaklega er tekið fram, að lög flokksins hafi í heild verið afgreidd með samhljóða atkvæðum, en áður höfðu þó ver- ið samþykktar nokkrar breytingatillögur. Síðasta verk landsfundar var að kjósa for- mann, sem einróma var kosinn, varafor- mann og ritara. Flokksráð skipa 90 manns að meðtöldum formanni, varaformanni og ritara (16. gr.). Eins og áður sagði, ákveður landsfundur tölu fulltrúa úr hverju kjördæmi, og var svo gert á fyrsta landsfundinum. Fulltrúar í flokksráði eru kjörnir á fundi í kjördæmisráði hvers kjördæmis til eins árs í senn. í Reykjavík eru þeir þó kosnir á al- mennum félagsfundi í alþýðubandalagsfé- laginu þar. Við kosningu þeirra er notuð svokölluð punktaaðferð, sem nánar verður lýst í þættinum um miðstjórn (16. gr.). Miðstjórn boðar ráðið til fundar þau ár, sem landsfundur er ekki haldinn, en heimilt er einnig að boða ráðið til aukafunda. Skylt er að boða fund, ef 30 flokksráðsmenn, 10 miðstjórnarmenn eða meirihluti þingflokks leggur fyrir formann skriflega kröfu þar að lútandi (17. gr.). Engin almenn skilgreining er á hlutverki flokksráðs í lögum Alþýðubandalagsins, en hins vegar vikið að því á nokkrum stöðum. Um stefnumótun virðist hlutverk þess vera að taka ákvarðanir um afstöðu til einstakra pólitískra málefna. Er það ljóst af 26. gr. flokkslaga, þar sem segir, að þingflokkur skuli starfa í samræmi við stefnuyfirlýsingu landsfundar og ákvarðanir flokksráðs. Ann- ars hefur flokksráð einkum hlutverki að gegna í flokksstarfinu sjálfu. Þannig má skjóta ákvörðun um inntökubeiðni í alþýðu- bandalagsfélag til flokksráðs (3. gr. 3. mgr.), og taka skal það ýmsar ákvarðanir um fjár- mál og reikninga flokksins (32. gr.). Flokksráð hefur aðeins einu sinni komið saman til fundar frá því að flokkurinn var stofnaður. Er þvi enn sem komið er ekki unnt að gera grein fyrir því, hvernig starf- semi þess þróast í framkvæmd. Miðstjórn er skipuð 30 mönnum að með- töldum formanni, varaformanni og ritara. Eru 27 miðstjórnarmenn kjörnir árlega á landsfundi eða reglulegum flokksráðsfundi (20. gr.). Við kosningu í miðstjórn er sú aðferð notuð, sem kölluð er punktaaðferð. Ber að nota hana, ef tillögur eru lagðar fram um fleiri en kjósa ber. Nánar er henni svo lýst í 20. gr. flokkslaganna: „Leggja skal fram fjölritaðan lista með nöfnum þeirra, sem tillaga er gerð um, bæði aðal- og varamanna, eða fundarstjóri les nöfnin upp, og skulu þau vera í stafrófsröð með upplýsingum við hvert nafn um það, hver tillögu geri. Á atkvæðaseðilinn skal rita: tölustafinn 4 við þrjú nöfn á seðlinum tölustafinn 3 við þrjú nöfn á seðlinum tölustafinn 2 við þrjú nöfn á seðlinum tölustafinn 1 við 28 nöfn á seðlinum. Þeir 27 menn, sem flest atkvæði fá, eru rétt kjörnir aðalmenn í miðstjórn og 10 þeir næstu varamenn.“ Er tilganginum með þessari aðferð lýst svo í skýringum á lögum flokksins, að hann sé að tryggja hugsanlegum minnihluta ein- hverja menn kjörna. Auk þessara kosnu fulltrúa eiga rétt til setu á fundum miðstjórnar þingmenn flokks- ins. Njóta þeir þar málfrelsis og tillögurétt- ar (26. gr. 2. mgr.). Ekki segir um það í lögum, hversu oft miðstjórn skuli koma saman til funda, en í skýringum þeim, sem lögunum fylgja, er gert ráð fyrir, að miðstjórn komi saman til funda einu sinni í mánuði. Boðar formaður til þeirra, en einnig skal fundi halda, ef framkvæmdastjórn eða 10 miðstjórnarmenn æskja (21. gr.). Hlutverki miðstjórnar er almennt svo lýst: að stýra málefnum Alþýðubandalagsins í umboði flokksráðs og landsfundar ( 19.gr.). í samræmi við þetta ber þingflokki að hafa samráð m. a. við miðstjórn í mikilsverðum málum, er koma fyrir Alþingi. Ákvarðanir um meiri háttar samstarf við aðra flokka eða samstarfsslit, svo og hvers konar nýjar ákvarðanir um afstöðu þingflokks til rikis- stjórnar, skulu vera háðar samþykki mið- stjórnar (26. gr.). Að auki eru margvísleg framkvæmdastörf falin miðstjórn og eru þessi hin helztu: Hún staðfestir lög flokksfélaga (5. gr.), fylgist með starfi félaga og kjördæmisráða (7. gr.), boðar til landsfundar og ákveður dagskrá hans; einnig boðar hún til flokksráðsfunda (9., 12. og 17. gr.), setur reglur um aðgang að landsfundum (14. gr.) og reglur um próf- kjör (29. gr.). Miðstjórnin skiptir sér í 8 starfsnefndir, sem fjalla um eftirtalin verkefni: 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.