Samvinnan - 01.06.1970, Blaðsíða 50
MIÐSTJÓRN
ALÞÝÐUBANDALAGSINS:
Sjálfkjörin:
Ragnar Arnalds, formaður
Adda Bára Sigfúsdóttir, varafm.
Guðjón Jónsson, ritari
Kjörin á flokksráðsfundi 1969:
Ásdís Skúladóttir
Bcncdikt Davíðsson
Bjarnfríður Leósdóttir
Eðvarð Sigurðsson
Gils Guðmundsson
Gísli Ásmundsson
Guðmundur J. Guðmundsson
Guðmundur Hjartarson
Guðmundur Vigfússon
Guðrún Guðvarðardóttir
Guðrún Helgadóttir
Hjalti Kristgeirsson
Ingi R. Helgason
Jóhann Kúld
Jón Snorri Þorleifsson
Jónas Árnason
Loftur Guttormsson
Lúðvík Jósepsson
Magnús Kjartansson
Ólafur Jensson
Sigmar Ingason
Sigurður Björgvinsson
Sigurður Brynjólfsson
Sigurður Magnússon
Snorri Jónsson
Stefán Sigfússon
Svavar Gestsson
1. Efnahags- og atvinnumál.
2. Verkalýðs- og kjaramál.
3. Præðslu- og menningarmál.
4. Félags- og heilbrigðismál.
5. Æskulýðsmál.
6. Sjálfstæðis- og utanríkismál.
7. Útgáfu- og útbreiðslustarfsemi.
8. Stjórnunar- og skipulagsmál, þar með
talin sveitarstjórnarmál.
stjórnar og njóta þar málfrelsis og tillögu-
réttar (26. gr. 2. mgr.).
Af staðbundnum stjórnarstofnunum flokks-
ins er fyrst að geta flokksfélaga. Eru þau
bundin við ákveðin svæði og mega ekki vera
fleiri en eitt á hverju svæði. Hins vegar er
heimilt að skipta félagi í deildir, ef henta
þykir (4. gr.). Félögin setja sér sjálf lög,
sem mega þó ekki fara í bága við lög flokks-
ins (5. gr.). Þau, sem starfa utan Reykjavík-
ur, taka ákvörðun um framboð flokksins í
sveitarstjórnarkosningum, en í Reykjavík
er það í verkahring fulltrúaráðs félags-
ins (27. gr.).
Kjördæmisráð mynda fulltrúar alþýðu-
bandalagsfélaga, sem eru innan eins og sama
kjördæmis (6. gr.). Það kýs sér síðan stjórn
og setur sér starfsreglur (7. gr.).
Hlutverk kjördæmisráða er að hafa með
höndum heildarstjórn á starfi Alþýðubanda-
lagsins í hlutaðeigandi kjördæmi. Skal það
koma saman eigi sjaldnar en einu sinni á
ári. Á stjórn þess að gefa árlega skýrslu um
starfsemi félaganna og kjördæmisráðsins og
senda hana miðstjórn. í Reykjavík gegnir
fulltrúaráð Alþýðubandalagsins þessu hlut-
verki (7. gr.).
Fulltrúaráð félagsins í Reykjavík og kjör-
dæmisráð í öðrum kjördæmum taka ákvörð-
un um framboð flokksins í alþingiskosning-
um. Þriðjungur fundarmanna getur krafizt
þess að ákvörðun fulltrúaráðs verði lögð
undir almennan félagsfund til endanlegrar
ákvörðunar (27 gr. 2.—3. mgr.).
Loks ber að geta þess ákvæðis um trúnað-
arstöður innan flokksins, að þar er enginn
kjörgengur lengur en 3 kjörtímabil í röð.
Við val manna í ráð og nefndir utan Alþýðu-
bandalagsins hvort heldur á Alþingi eða í
sveitarstjórnum, skal að því stefnt, að eng-
inn gegni slíkri stöðu lengur en 2 kjörtíma-
bil í röð. Þó er heimilt að kjósa sama mann
formann eða varaformann á 4 landsfundum
í röð, ef hann hefur gegnt starfinu skemur
en 7 ár að loknum 3 kjörtímabilum. Engar
takmarkanir gilda þó um endurval manna
til framboðs (31. gr.). í þessum reglum
felst m. a., að enginn verður kjörinn mið-
stjórnarmaður lengur en 3 ár og hámarks-
tímabil það, sem sami maður getur gegnt
formennsku eða varaformennsku, er 9 ár.
Heimilt er að bæta í nefndirnar mönnum
utan miðstjórnar. Þeim ber að koma reglu-
lega saman og gera tillögur til framkvæmda-
stjórnar og miðstjórnar (23. gr.).
Loks hefur miðstjórn það hlutverk að
kjósa 6 rnenn í framkvæmdastjórn (22. gr.).
Framkvæmdastjórn er skipuð þeim 6
mönnum, sem miðstjórn kýs, og að auki for-
manni, varaformanni og ritara (22. gr.).
Framkvæmdastjórn ræður framkvæmda-
stjóra flokksins og annast ásamt honum dag-
lega umsjón og eftirlit með öllu starfi Al-
þýðubandalagsins (24. gr.). Að auki fer hún
með fjármál flokksins (32. gr. 4. mgr.).
Framkvæmdastjórnarmenn eiga rétt til
að sitja þingflokksfundi með málfrelsi og
tillögurétti.
Þingflokk mynda þingmenn Alþýðubanda-
lagsins og kýs hann sér formann, varafor-
mann og ritara. Hann hefur þá hlutdeild í
stefnumótun að taka ákvörðun um afstöðu
flokksins á Alþingi. Honum ber að starfa i
samræmi við stefnuyfirlýsingu landsfundar
og ákvarðanir flokksráðs. í málatilbúnáði
sínum skal hann hafa samráð við fram-
kvæmdastjórn og miðstjórn í mikilsverðum
málum (26. gr.).
Þingmenn eiga rétt á að sitja fundi mið-
FRAMKVÆMDASTJÓRN
SAMTAKA FRJÁLSLYNDRA
OG VINSTRI MANNA:
Hannibal Valdimarsson, form.
Björn Jónsson form. fram-
kvæmdastjórnar og ritari
Bjarni Guðnason, varaform.
Haraldur Henrysson gjaldkeri
Alfreð Gíslason
Ilalldór S. Magnússon
Jón Baldvin Hannibalsson
Ingimar Sigurðsson
Margrét Auðunsdóttir
Sigurður Elíasson
Steinunn Finnbogadóttir
Samkvæmt lögum flokksins eiga 12 menn
að sitja í framkvæmdastjórn, en eru eins
og sakir standa 11.
50