Fréttablaðið - 22.08.2009, Page 4
4 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
SAMGÖNGUR Nýskráningar fyrir-
tækjabifreiða hafa dregist saman
um 87 prósent það sem af er ári
miðað við sama
t ímabi l ár ið
2007. Aðeins
hafa 1.704 bílar
verið skráðir á
fyrirtæki en á
sama tíma árið
2007 voru þeir
12.715. Sjald-
gæft er að fleiri
nýskráning-
ar séu hjá ein-
staklingum, en
þær eru 2.104 það sem af er ári.
Heildarsamdráttur nýskráninga er
því um 81 prósent frá árinu 2007.
„Þetta sýnir að það er algjört
stopp í fjárfestingum fyrirtækja,“
segir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins. Segir Vilhjálmur að Seðla-
bankinn þurfi að lækka stýrivexti
strax. „Það fjárfestir enginn á
þessum vöxtum.“
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, segir
bílasölur finna vel fyrir samdrætt-
inum. „Það er algjört hrun í sölu
bifreiða,“ segir Özur en um 230.000
bílar eru nú á götum Íslands.
Ýmsar leiðir eru færar til að
auka veltuna, að mati Özurar, til
dæmis að lækka tolla. Bílgreina-
sambandið átti fund með fjármála-
ráðherra fyrr í sumar um útfærslu
hugmyndar um afslátt af vöru-
gjöldum.
Hugmynd Bílgreinasambandsins
var sú að fólk sem fargaði gömlum
bílum, til dæmis eldri en tíu ára,
fengi afslátt af vörugjöldum fyrir
kaup á nýjum og umhverfisvænni
bíl. Segir Özur fjármálaráðherra
hafa verið jákvæðan fyrir hug-
myndinni. Vörugjöld af bílum geta
numið um 45 prósentum af verði
bifreiðar og virðisaukaskattur um
24,5 prósentum.
Benedikt Eyjólfsson, eigandi
Bílabúðar Benna, segist finna
fyrir þessu eins og flestir lands-
menn en fyrirtækið reyni að halda
þjónustu við viðskiptavini.
„Þetta yrði betra ef gengið
skánaði og vextir lækkuðu,“ segir
Benni. Tímabundin lækkun vöru-
gjalda gæti verið til bóta, að mati
Benna, þar sem vörugjöld séu stór
hluti af verði bifreiða. Bíll sem
skilaði 300 þúsund krónum til rík-
isins fyrir tveimur árum skilar nú
600 þúsund krónum þar sem vöru-
gjaldið miðast við gjaldmiðilinn
sem bíllinn er keyptur á, að sögn
Benna.
Tölulegar upplýsingar koma frá
Umferðarstofu og miða tölurnar
við tímabilið frá 1. janúar til 20.
ágúst öll árin. vidir@frettabladid.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Einstaklingar
Fyrirtæki
Nýskráningar bifreiða frá 1.
janúar-20. ágúst árin 2007-2009
2007 2008 2009
7.
39
7
12
.7
15
5.
68
7
9.
72
0
2.
10
4
1.
70
4
15.000
12.000
9.000
6.000
3.000
0
Í grein eftir Óttar Pálsson í Frétta-
blaðinu í gær kom fram að íslenskir
lífeyrissjóðir myndi þriðjung almennra
kröfuhafa Straums. Hið rétta er
að íslenskir fjárfestar, þar á meðal
lífeyrissjóðir, eiga um þriðjung krafna.
LEIÐRÉTTING
VIÐSKIPTI Icelandic Glacial verð-
ur aðalvatnið sem selt verður
á stærsta skíðasvæði Kaliforn-
íu, Squaw-dalnum. Stofnandi
Icelandic Glacial er Jón Ólafs-
son athafnamaður en margar
af helstu skíðastjörnum heims
sækja svæðið árlega.
Jón Ólafsson segir, í fréttatil-
kynningu frá Icelandic Glacial,
að það sé frábært að staður, sem
sé eins fallegur og Squaw-dalur-
inn, hafi valið vatnið.
Scott Rutter, yfirmaður matar-
og drykkjar hjá hjá Squaw-daln-
um, segir í sömu tilkynningu að
dalurinn séu stoltur af því að
geta boðið gestum sínum upp á
alvöru ískalt vatn eins og Ice-
landic Glacial. - vsp
Icelandic Glacial til Kaliforníu:
Íslenskt vatn á
risa-skíðasvæði
AÐALVATNIÐ Gestir stærsta skíðasvæð-
isins í Kaliforníu munu geta teygað
íslenskt vatn á næstunni.
NÁTTÚRA Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að láta hefja undirbúning
að stækkun
friðlandsins í
Þjórsárverum
nú þegar, sam-
kvæmt tillögu
Svandísar
Svavarsdóttur
umhverfis-
ráðherra. Hún
vill að stækk-
un friðlandsins
verði lokið ekki
síðar en snemma á næsta ári.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar kemur fram að friðlandið
eigi að stækka og ljúka við friðun-
ina sem fyrst.
Stækkunin verður gerð í sam-
ræmi við ákvæði náttúruverndar-
laga og mun Umhverfisstofnun
sjá um undirbúninginn í samráði
við þá sem hagsmuna eiga að
gæta á svæðinu. - þeb
Ríkisstjórnin um Þjórsárver:
Friðlandið
stækkað strax
Algjört hrun í sölu
bíla til fyrirtækja
Nýskráningar fyrirtækjabifreiða hafa dregist saman um tæp níutíu prósent frá
árinu 2007. Vilhjálmur Egilsson segir algjört stopp í fjárfestingum fyrirtækja.
Bílgreinasambandið lagði til að vörugjöld fyrir förgun yrðu lækkuð.
VILHJÁLMUR
EGILSSON
ekkert keypt Fyrirtæki halda að sér höndum þegar kemur að bílakaupum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ALÞINGI „Við munum taka þann
tíma sem þarf og við munum
standa hér og tala eins lengi og
þarf ef það verður til þess að við
sjáum að við getum bjargað því
sem bjarga þarf,“ sagði Guðlaugur
Þór Þórðarson, þingmaður Sjálf-
stæðiflokksins, á Alþingi í gær.
Hart var tekist á um ríkisábyrgð-
ina vegna Icesave og stjórnarand-
staðan gagnrýndi stjórnina fyrir
flumbrugang.
Björn Valur Gíslason, þingmað-
ur Vinstri grænna og varaformað-
ur fjárlaganefndar, hleypti illu
blóði í stjórnarandstæðinga, þegar
hann lýsti því yfir að öll nauðsyn-
leg gögn í málinu hefðu komið
fram í júní. Stjórnarandstæðingar
mótmæltu því harðlega og Unnur
Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki, sagði engu líkara en að
Björgvin hefði verið staddur úti á
rúmsjó. Björgvin tók einmitt leyfi
í sumar til að stýra Kleifaberginu
frá Ólafsfirði í einum túr.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, sagði að ekkert samkomulag
hefði náðst um framgöngu málsins
og tók Guðlaugur Þór undir það.
Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir, Sjálfstæðisflokki, kvartaði
sáran undan því að fyrrum ráð-
herra bankamála, Björgvin G.
Sigurðsson, væri ekki viðstaddur
umræðuna og hefði ekki verið þar
á fimmtudag. Hann gæti upplýst
ýmislegt frá fyrstu hendi. - kóp
Enn er hart tekist á um ríkisábyrgð vegna Icesave á Alþingi:
Tölum eins lengi og með þarf
GUÐLAUGUR ÞÓR Stjórnarandstæðingar
segja ekkert samkomulag vera um
hvernig afgreiðslu ríkisábyrgðar vegna
Icesave verði háttað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Krónan hækkaði um
0,38 prósent í gær en hefur lækk-
að nokkuð mikið síðustu vikur.
Hefur hún fallið um 1,5 prósent
frá því á föstudaginn í síðustu
viku. Evran kostaði um 182 krón-
ur í gær og dollarinn stóð í 127
krónum.
„Gjaldeyrishöft, afgangur af
vöru- og þjónustuviðskiptum
við útlönd, háir innlendir vext-
ir og inngrip Seðlabankans á
gjaldeyrismarkaði hafa ekki náð
því að styrkja gengi krónunnar
undanfarið,“ segir í greiningu
Íslandsbanka frá því í gær.
Gengislækkunin lýsir vantrú á
myntinni, að mati Íslandsbanka.
Telur bankinn að Seðlabankinn
hafi gripið fremur lítið inn í
markaðinn í þessum mánuði. - vsp
Krónan hækkaði í gær:
Seðlabankinn
lítið gripið inn í
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu leitar nú þriggja
manna sem hún telur hafa kveikt
í Range Rover bifreið við Laufás-
veg aðfaranótt þriðjudags.
Upptökur úr öryggismynda-
vélum í götunni sýna þrjá menn
ganga í áttina að húsinu sem
bíllinn stóð við og hlaupa aftur
til baka stuttu síðar. Þá sýna
myndirnar lögreglu og slökkvi-
lið koma á staðinn þegar bifreið-
in var orðin alelda, og að lokum
sést einn þremenninganna ganga
framhjá brunastaðnum rúmum
klukkutíma síðar. Lögregla biður
þá sem geta gefið upplýsingar að
hringja í síma 444-1100.- þeb
Lögregla leitar þriggja manna:
Líklega kveikt í
Range Rover
VEÐURSPÁ
Alicante
Bassel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
31°
24°
20°
21°
25°
24°
20°
20°
24°
21°
33°
27°
32°
19°
24°
21°
20°
12
Á MORGUN
Austan 8-15 m/s
Hvassast allra syðst.
MÁNUDAGUR
Norðlægar áttir,
hvassast á Vestfjörðum.
12
13
14
14
14
12
11
8
10
5
8
12
10
8
4
4
3
4
5
12
7
12
12 11
10
11 14
11 12
13
13
KAFLASKIPT
Haustið er á næsta
leiti og haustlægð-
irnar heimsækja
landið hver af ann-
arri þessa dagana.
Í dag verður lítils-
háttar rigning með
köfl um vestantil
en þurrt að mestu
norðaustanlands.
Á morgun verður
vætusamt sunnan
og austantil.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
GENGIÐ 21.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,0978
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,27 127,87
211,04 212,06
182,16 183,18
24,469 24,613
21,263 21,389
17,893 17,997
1,3552 1,3632
199,04 200,22
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR