Fréttablaðið - 22.08.2009, Side 40
MENNING 8
A
ðstöðumunur húsanna er mik-
ill: Þjóðleikhúsið hefur hæst
framlag allra leikhússtofn-
ana í landinu en býr við erfið
og þröng skilyrði í húsnæði
þess. Borgarleikhúsið á að baki fyrsta
starfsvetur Magnúsar Geirs Þórðar-
sonar og státar af glæsilegum árangri í
aðsókn á allar sýningar sem þar voru í
boði. Draumur gamalla Leikfélagsmanna
hefur að sönnu ræst í þeim tölum: 207.576
gestir sóttu húsið heim á árinu. Er þar
að sannast að aðstaða til harðrar keyrslu
í húsinu býr vel að haganlegri aðstöðu.
Ekki er þó ljóst hvort mikil aðsókn hefur
skilað góðum hagnaði. Mun hann vera
rétt um fimm milljónir. Tölur hafa ekki
fengist um aðsókn að sýningum Þjóðleik-
hússins utan að á þremur hafi aðsókn
aukist um tuttugu prósent.
Samkeppnin lýsir sér best í tilboðum:
Tinna Gunnlaugsdóttir býður mismun-
andi pakka fjögurra sýninga á 9.900,
Magnús býður betur með verðinu 8.900
en Akureyringar og nærsveitamenn
geta keypt sér kort á fjórar sýningar á
7.900. Áskriftarkortasala er trygging
fyrir öruggri aðsókn og stýrir um leið
hvað menn þurfa að gera í frekari sölu-
mennsku til að tryggja að sýningar séu
bærilega sóttar. Öll leikhúsin bjóða nú
upp á sérkjör fyrir áhorfendur undir
25 ára aldri sem er raunar ný útfærsla
á gamla námsmannaafslættinum sem
lengi tíðkaðist. Hjá Borgarleikhúsinu
er pakkinn á 4.450 en Þjóðleikhússins á
5.900. Fyrir norðan eru menn ekki búnir
að gefa upp verð en svipuð kjör verða í
boði og í fyrra.
Þá er athyglisvert að bæjarleikhúsin
tvö, á Akureyri og í Reykjavík, ætla sér
að halda til streitu þeirri rekstrarstefnu
að hafa þéttar sýningar á hverju verk-
efni og tryggja þannig sem hagkvæmast-
an rekstur á hverri einingu. Þótt Tinna
Gunnlaugsdóttir hafi lýst þeirri stefnu
í upphafi ráðningar sinnar hefur reynst
erfiðara að standa við það en vonir stóðu
til, mest vegna aðstöðuleysi á öllum svið-
um leikhússins en ekkert þeirra er sniðið
fyrir nútíma leikhúsrekstur. Kemur rík-
inu nú í koll langvinn vanræksla á hús-
næði Þjóðleikhússins og skammsýni um
áþreifanlegan aðstöðumun stærstu leik-
húsanna.
Öll taka leikhúsin þrjú upp verk frá
fyrra ári: LA ætlar að taka Fúlar á móti
aftur til sýninga nyrðra en sú skemmti-
sýning er nú á fjölunum í Loftkastalanum
og hefur gengið vel: á sextánda þúsund
gesta hefur notið hennar. Sumarsýning í
samstarfi einkaaðila og LR, Við borgum
ekki, kemur upp nyrðra og þangað held-
ur líka Ingvar E. Sigurðsson með einleik
sinn sem hann hyggst sýna víða um land
í september.
Í Borgarleikhúsinu er haldið áfram
sýningum á Söngvaseið. Þú ert hér
og Dauðasyndirnar koma aftur á svið
í tengslum við Lókal-hátíðina í sama
mánuði og Dauðasyndirnar verða aftur
í nóvember og desember. Jafnvel verða
fleiri sýningar á Flónni í apríl á næsta
ári. Við borgum ekki kemur aftur upp
í nóvember og desember. Í þessu upp-
vakta sýningarhaldi á verkum rætist
gamall draumur um að sýna megi eftir
nokkurra mánaða hlé verk sem voru ekki
útgengin.
Í Þjóðleikhúsinu verður Kardemommu-
bærinn aftur á fjölunum og verðlauna-
verk Grímunnar, Utan gátta eftir Sig-
urð Pálsson, er tekið upp en það var
leikið þrettán sinnum liðinn vetur og nú
er bætt við sex sýningarkvöldum frá 3.
september.
Flutningur verkefna frá vori til hausts
hefur oft reynst erfiður. Rekstur leikhús-
anna sem hefur notið mestra opinberra
styrkja hefur lengstaf verið með þeim
hætti að leikhúslíf hefur lagst í dróma
yfir sumarmánuðina og hefur það mótað
starfssamninga en leikhúsfólk vinnur sér
inn lengra orlof yfir veturinn. Ekki hefur
verið mikill áhugi hjá þeim að breyta því
fyrirkomulagi og því standa helstu leik-
húsbyggingarnar að miklu ónotaðar nær
fjórðung úr ári.
Verkefnaskráin einkennist nokkuð af
kunnum verkum af íslensku sviði: Bieder-
man og brennuvargarnir verða sýndir á
stóra sviði Þjóðleikhússins en þeir eru
best kunnir af hljóðritun Ríkisútvarpsins
á sviðsetningu Grímu á sjöunda áratugn-
um. Íslandsklukkan verður afmælissýn-
SLAGURINN UM LEIK
Leikhúsin eru tekin að leggja ríka áherslu á
fjölskyldusýningar: Kardemommubærinn, The
Sound of Music, Oliver!, Gauragangur. Þetta
eru allt verk sem eru stórsýningar og höfða
í senn til margra aldurshópa. Nú er það hið
besta mál að samverustundir fjölskyldufólks
séu styrktar á þennan máta. En þegar kemur
að starfi fyrir yngstu börnin hefur Þjóðleikhús-
ið vinninginn: Kúlan hefur frá því henni var
komið á fót einbeitt sér að verkefnum fyrir ung
börn undir handleiðslu Þórhalls Sigurðssonar
leikstjóra. Hann heldur reyndar aðeins framhjá
Þjóðleikhúsinu þar sem hann er fastráðinn
með sviðsetningu á Skoppu og Skrítlu á tíma-
flakki sem kemur upp í Borgarleikhúsinu. Verk-
efnin í Kúlunni eru nokkur: þar verður boðið
upp á sögustund Lilju Guðrúnar Þorvalds-
dóttur, leiksýningu um Fíusól en undar legt er
hún að skyldi ekki rata á stærra svið, nýtt verk
eftir Áslaugu Jónsdóttur, erlendan gestaleik
fyrir börn og barnasýningu á Listahátíð. En
hætta er á að Jólaævintýri Dickens með Ladda
veki mesta eftirvæntingu.
BARNAVERKEFNIN
Uppeldi nýrra áhorfenda
Útlit er fyrir að sex söngleikir verði í boði á
komandi vetri: fimm af þeim hafa sést áður
á íslensku sviði. Sá fimmti er nýsmíði: Faust
sem Vesturport vinnur fyrir Borgarleikhúsið við
nýja tónlist Nicks Cave og samverkamanna. Er
það þá ekki söngleikur? The Sound of Music,
Grease, Oliver!, Gauragangur og Rocky Horror
hafa öll sést áður. Söngleikir eru húsunum
erfiðir sökum þess að margir þeirra heimta
stærri áhorfendasali en kostur er á hér á
landi ef þeir eiga að skila bæði stofnkostnaði,
sýningarkostnaði og hagnaði. Gryfjur Þjóðleik-
hússins, Íslensku óperunnar og Borgarleikhúss-
ins eru litlar enda eru fullskipaðar hljómsveitir
yfirleitt ofviða húsunum þegar manna þarf
bæði sólóista og kór á sviði. Menn hætta sér
því varlega í verkefni sem ekki hafa verið reynd
á íslenskum markaði. En svo má slíta fötum að
þau detti í sundur … Eins og maðurinn sagði:
Grease, Rocky, Hryllingsbúðin – dettur mönn-
um ekkert nýtt í hug? Eða er ekkert framleitt
lengur af frambærilegum nýjum söngleikjum í
veröldinni?
SÖNGLEIKJAFÁRIÐ
Það sem trekkir
Stóru leikhússtofnanirnar í landinu hafa nú kynnt verkefnaskrá vetrarins sem í hönd fer og
hefur stórum kynningarbæklingum verið dreift á fjölda heimila í landinu. Margar spennandi
leiksýningar verða í boði og leikhúsin, Þjóðleikhús, Borgarleikhús og Leikfélag Akureyrar stefna
á þétta dagskrá. Hart verður barist um leikhúsgesti og gætir samkeppninnar þegar í tilboðum.
LEIKLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/E
Ó
L