Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 42
22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR2
Menningarnótt
í Flash
20%
afsláttur af
öllum vörum
Skokkar
Kjólar
í ótrúlegu úrvali
stærðir 36-50
Opið til kl 22:00
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
• • •
LANGTÍBURTISTAN kallast dagskrá UNIFEM á Íslandi sem held-
ur opið hús á Menningarnótt frá 13 til 17. Þar er líf kvenna í þróunar-
löndunum kynnt með tónlist og ljósmyndum. Hægt verður að klæðast
fötum kvenna frá ýmsum heimshornum, þar á meðal búrku.
Rakel Hafberg arkitekt segist
halda að hún sé fyrst hér á landi til
að vinna fylgihluti úr hænsnaleðri.
„Mér vitandi hefur enginn unnið
með hænsnaleðrið með þessum
hætti hér á landi, né hef ég fund-
ið neitt þessu líkt erlendis,“ segir
Rakel. Eru fylgihlutir hennar því
ekki aðeins íslensk nýjung held-
ur væntanlega nýsköpun á heims-
vísu.
Rakel útskrifaðist sem arkitekt
frá Árósum árið 2007 og vann á
teiknistofu eftir útskrift. „Ég var
í barneignarleyfi frá síðasta sumri
og vissi um jól að ég myndi missa
vinnuna. Þá fór ég að föndra jóla-
gjafirnar sjálf, gerði alls kyns
hálsfestar og skart og gaf mínum
nánustu en í kjölfarið fór ég að fá
pantanir. Ég ákvað þá að finna mér
eitthvað sérstakt og skemmtilegt til
að vinna með.“
Rakel kynntist hænsna-
leðri fyrir tilviljun og fór að
leita að efninu en hérlendis
er það ekki framleitt. „Ég
spurðist fyrir, meðal ann-
ars á Sauðárkróki þar sem
þeir súta skinn, en sá að
ég yrði að leita út fyrir
landsteinana. Það var ekki
þrautalaust að finna út úr því
en efnið er afar dýrt í fram-
leiðslu og ég hef haft spurnir af
því að víða, til dæmis í Þýskalandi,
þyki það hreinlega ekki borga sig
að vinna efnið.“
Hönnun Rakelar hefur vakið
mikla athygli og armbönd hennar
eru nú seld hjá Epal Design í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar og hjá Minju
á Skólavörðugstíg. Sjálf opnaði hún
búð fyrir nokkrum dögum, þar sem
öll hennar hönnun fæst, og er hún á
Laugavegi 82.
„Ég ber hlutina sem ég er að
vinna alltaf undir nánustu fjöl-
skyldu. Armböndin vöktu til dæmis
það mikla lukku að ég ákvað að fara
með þau í búðir,“ segir Rakel. Hún
tekur einnig sérpantanir og töluvert
hefur verið um þær, ekki síst eftir
að hún sýndi verk sín á Hönnunar-
og handverkssýningu í Hrafnagils-
skóla.
juliam@frettabladid.is
Vinnur armbönd og
spangir úr hænsnaleðri
Arkitektinn Rakel Hafberg tók sig til á vormánuðum og hóf tilraunir með athyglisverða nýsköpun, en úr
leðri af hænsnalöppum vinnur hún armbönd, hárskraut og fleiri fylgihluti.
Hið árlega Íslandsmeistaramót
í hrútaþukli fer fram á Sauðfjár-
setrinu í Sævangi á Ströndum í
dag og hefst mótið klukkan 14.
Fjórir íturvaxnir hrútar eru
metnir fyrir fram af dómnefnd,
með tækjum og tólum, og þar næst
munu þuklarar, vanir og óvanir, fá
að spreyta sig á hrútunum og raða
þeim í gæðaröð. Farið er eftir
sérstöku stigakerfi sem bændur
þekkja vel.
Hrútaþuklið hefur notið mikilla
vinsælda síðustu árin og kemur
fólk að hvaðanæva af landinu til
að vera með. Margar uppákomur
verða samfara hrútaþuklinu: kaffi-
hlaðborð, skemmtiferðir á dráttar-
vélvagni og fjölmennt í leiki á
íþróttavellinum. Strandferðir
bjóða upp á hestaferðir og ókeypis
verður inn á safn Sauðfjárseturs-
ins í tilefni dagsins.
Síðar um kvöldið er svo að
venju slegið upp Bændahátíð
og Þuklara balli í Félagsheimil-
inu á Hólmavík sem hefst klukk-
an 18. Átján ára aldurstakmark
er á ballið en tónlistarmenn frá
Hólmavík leika fyrir dansi eftir
að gestir hafa gætt sér á holu-
grilluðu lambakjöti. Nauðsynlegt
er að tilkynna þátttöku á bænda-
hátíðina fyrir fram á netfangið
saudfjarsetur@strandir.is.
- jma
Þuklað á Ströndum
Hrútnar metnir á Landsmóti í hrútadómum í fyrra á Sauðfjársetrinu í Sævangi á
Ströndum.
Ormsteiti er héraðshátíð Fljótsdals-
héraðs og Egilsstaða sem hefur staðið
yfir frá 14. ágúst og lýkur nú á sunnu-
daginn.
Í dag er margt í boði að venju. Þar
má helst nefna garðtónleika við Gisti-
húsið á Egilsstöðum klukkan 10, úti-
markað í Bragganum og villibráðar-
súpu- og brauðkeppni á sama stað.
Fatamarkaður verður í Sláturhúsinu
og söngvarakeppni barnanna í Bragg-
anum klukkan 14. Fjársjóðsleit verður
haldin fyrir litlu börnin, haldin verður
hreindýraveisla og Nostalgíu-dansleik-
ur í Valaskjálf um kvöldið.
Á sunnudaginn verður farin göngu-
ferð um Tröllkonustíg, veiðikeppni
haldin í Bessastaðaá og auk þess mikil
dagskrá á Skriðuklaustri.
Allar nánari upplýsingar má nálgast
á www.ormsteiti.is.
Fjör á Ormsteiti
ORMSTEITI LÝKUR UM HELGINA.
Ormsteiti er héraðshátíð Fljótsdals-
héraðs.
Armböndin eru seld hjá Epal í fríhöfn
Leifsstöðvar og Minju á Skólavörðustíg.
Arkitektinn Rakel Hafberg brýtur blað í sögu íslenskrar skartgripaframleiðslu − ef ekki
heimssögunnnar – með hönnun sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Rakel býr til hálsfestar, meðal
annars úr hraunkúlum og tré.
Auglýsingasími
– Mest lesið