Fréttablaðið - 22.08.2009, Side 49
LAUGARDAGUR 22. ágúst 2009 9
sími: 511 1144
Iðjuþjálfun Hrafnista Reykjavík
Iðjuþjálfun óskar eftir starfsfólki
• Samskiptaliprum leiðbeinanda á vinnustofu.
Í boði er fjölbreytt starf og óskað er eftir einstakling
með góða handavinnukunnátta og verkvit.
Vinnutími er 9-15 alla virka daga.
• Starfsmönnum í félagsstarf á hjúkrunardeild.
Óskað er eftir eintaklingum með góða samskipta-
hæfi leika og mögulega reynslu af vinnu með öldruðum.
Vinnutími er 13-17 alla virka daga.
Uppl. gefur Sigurbjörg Hannesdóttir deildarstjóri
iðjuþjálfunar og félagsstarfs í síma 585-9383 /
693-9559 eða sibba@hrafnista.is
ÞJÓNUSTULIÐI
RÆSTING
í Menntaskólanum í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða þjónustu-
liða til ræstinga og umsjónar með umgengni í skólanum
á dagvinnutíma. Möguleiki á hlutastörfum.
Laun eru skv. sérstökum samningi Efl ingar og
fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í
síma 594 4000 hjá skrifstofustjóra eða ræstingastjóra.
Skólameistari
Lögfræðingur óskast
ERGO lögmenn óska eftir því að ráða lögfræðing til starfa. Við-
komandi þarf að geta hafi ð störf sem fyrst. Um er að ræða fullt starf
löglærðs fulltrúa á stofunni við margvísleg og krefjandi verkefni.
Málfl utningsréttindi eru æskileg en ekki nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 8. september 2009. Umsóknir
skal senda á netfangið: haukur@ergologmenn.is. Nánari upplýsingar
um starfi ð veitir Haukur Örn Birgisson á framangreindu netfangi.
ERGO LÖGMENN,
TURNINUM, SMÁRATORGI 3, 201 KÓPAVOGI.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
70
32
0
8/
09
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er lífið
Ferðaráðgjafi
VITA er ferðaskrifstofa
í eigu Icelandair Group.
GROUP
Ferðaskrifstofan VITA var stofnuð í byrjun ágúst á
síðasta ári. VITA er rekin af Iceland Travel, sem er
dótturfélag Icelandair Group. Helsta markmið
ferðaskrifstofunnar er að bjóða upp á fjölbreytt úrval
skipulagðra afþreyingaferða til útlanda í leiguflugi frá
Íslandi, með góðri þjónustu og tryggum flugkosti á
samkeppnishæfu verði. Á sínu fyrsta ári hefur VITA
dafnað vel og vaxið jafnt og þétt í stærð og umfangi.
17 manns starfa nú hjá VITA í metnaðarfullu og lifandi
umhverfi þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín og
á mikla möguleika á að vaxa í starfi.
Ferðaskrifstofan VITA óskar eftir að ráða ferðaráðgjafa í sölustarf. Um er að
ræða framtíðarstarf hjá vaxandi fyrirtæki þar sem verkefnin eru margvísleg,
spennandi og krefjandi. Bæði 50% og 100% starfshlutfall kemur til greina.
Tækifæri!
Starfssvið
• Sala á utanlandsferðum
• Þjónusta við viðskiptavini
• Svörun fyrirspurna
• Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
• Rík þjónustulund
• Metnaður, frumkvæði og áhugi í starfi
• Góðir samskiptahæfileikar
• Þekking á Amadeus æskileg
• Góð almenn tölvu- og tungumálakunnátta
• Jákvæðni og lífsgleði!
Umsóknir með ferilskrá skulu sendar á
Ragnheiði Valdimarsdóttur starfsþróunarstjóra
á netfangið ragnheidurv@vita.is, eða
bréfleiðis til VITA, Skútuvogi 13a, 104 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst.
MÁLMIÐNAÐARMAÐUR