Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1963, Síða 51

Skinfaxi - 01.11.1963, Síða 51
Bókaútgáfa Menningarsjóðs ÚTGÁFUBÆKUR 1963 Islenzk orðabók handa skólum og almenningi, aðalhöfundur Árni Böðvars- son. Að bók þessari hefur verið unnið sleitulaust um fimm ára skeið. Hún er tæpar 900 bls. að stærð, tveir dálkar á síðu, og hefur að geyma stuttar og gagnorðar skýringar á 65 þúsund íslenzkum orðum. Hér er um að ræða fyrstu almennu íslenzku orðabókina með skýringum á íslenzku. Auk þess sem hún á að geta orðið mikilvægt hjálpargagn skólanemendum er þess að vænta, að hún þyki góður fengur öllum unnendum íslenzkrar tungu, öldnum jafnt sem ungum. Konur segja frá, frásöguþættir, minningar, sögur og ljóð eftir nær 20 konur. Efni bókarinnar er allt tekið úr handskrifuðu blaði, sem Lestrar- félag kvenna stóð að á árunum 1912—1938. Nálega allt efni bókarinnar birtist hér í fyrsta sinn á prenti. Landsvísur, ný ljóðabók eftir Guðmund Böðvarsson. I bókinni verða um 30 kvæði eftir hið vinsæla skáld á Kirkjubóli. Anna Rós, ný skáldsaga eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur, 'hefst í byrjun fyrra stríðs, haustið 1914. Afríka, ný bók í flokknum Lönd og lýðir. Guðrún Ólafsdóttir landafræð- ingur hefur skrifað þessa bók um gömul og ný ríki Afríku. Bókin hefur að geyma mikinn fróðleik um þróun mála í þessum heimshluta, sem öðrum fremur hefur verið í deiglunni undanfarin ár. Rómaveldi, stórt og fróðlegt rit eftir ameríska sagnfræðinginn Will Dur- ant, Jónas Kristjánsson cand. mag. færði í íslenzkan búning. Ritið er prýtt mörgum myndum. Ferðabók Jakobs H. Líndals bónda og jarðfræðings á Lækjamóti. Dr. Sig- urður Þórarinsson sér um útgáfuna. Hefur að geyma fjörlega samdar lýsingar margra héraða á Norðurlandi og víðar, einkum frá jarðfræðilegu sjónarmiði. í flokknum Smábækur Menningarsjóðs koma að þessu sinni út þrjár bækur: Frönsk ljóð frá 19. og 20. öld, Jón Óskar íslenzkaði, Císeró og sam- tíð hans eftir dr. Jón Gíslason skólastjóra og Vísnakver eftir Kristján Ólason frá Húsavík. Bókaútgófa Menningarsjóðs SKIN FAX I 51

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.