Skinfaxi - 01.11.1963, Blaðsíða 10
ýtti við mönnum. — Lýðháskóli, þjóðlegt
samfélag, barátta við einmanakenndina,
kvöldvakan, er stormurinn blés um víðátt-
urnar og 'hríðin lamdi húsin utan.
Islendingar þurfa ekki að spyrja ná-
grannana til vegar éða leita dyrum og
dyngjum að grundvelli lýðháskóla í Skál-
holti. Hann er heimafenginn, sagan, er
varðveitti þjóðina gegnum neyðarárin
leggur hann til. Hið nýja ber aðeins ávöxt
fyrir afl erfða. Án arfsins eru nýjungarn-
ar innantómar og maðurinn verður eirð-
arlaus vofa eilífs og tímanlegs tilgangs
síns. Lýðháskóli, kvöldvaka, uppbygging
og fræðsla. Það var í rauninni þetta, sem
Grundtvig átti við, er hann í fyrsta erindi
söngs síns við vígslu síns eigin lýðháskóla
í „Marielyst“ orti, þá gamall orðinn: (Að
efni til.)
„Það sem sólskinið er fyrir dökka mold-
ina er sönn fræðs'la fyrir mann af moldu
kominn. Miklu dýrmætara rauðu gulli
er að þekkja Guð og sjálfan sig.“
Jörgen Bukdahl.
10
SKINFAXI