Skinfaxi - 01.11.1963, Blaðsíða 13
Frá setningu 23. sambandsþings UMFÍ.
Þingið telur yfirleitt æskilegt, að hið
opinbera styrki æskulýðsstarfsemi í land-
inu svo sem framast má verða, en láti hin
ýmsu félagssamtök um framkvæmdir undir
hlutlausu og sjálfsögðu eftirliti.
Þingið lýsir ánægju sinni yfir samstarfi
UMFÍ og ISl að velferðarmálum íslenzkrar
æsku og hvetur æskuna til starfs og dáða í
þágu eigin velferðarmála, andlegs og líkam-
legs þroska, landi og þjóð til blessunar.
Tillögur:
23. sambandsþing Ungmennafélags Is-
lands hvetur öll héraðssambönd og einstök
félög innan UMFl til þess að undirbúa sem
mesta og bezta þátttöku í næsta landsmóti.
Þingið telur æskilegt að heima í héruðum
séu haldin námskeið í íþróttum og komið á
keppni í þeim íþróttagreinum, sem fyrir-
hugað er að taka þátt í á landsmótinu. Enn
fremur hvetur sambandsþingið alla þátt-
takendur, íþróttamenn sem aðjra, til prúð-
mannlegrar framkomu og góðrar umgengni
samtökunum til sóma.
Þingið leggur til að sem flest héraðssam-
bönd og ungmennafélög komi með eitthvert
dagskráratriði til skemmtunar á mótinu í
samráði við framkvæmdanefnd mótsins.
Þingið mælist til þess, að stjórnir hér-
aðssambandanna gangist fyrir sérstökum
mótum í frjálsum íþróttum og sundi sum-
arið 1964 fyrir aldursflokkana 12—13 ára
og veiti þeim, sem bezt afrek vinnur eða
S K I N FAXI
13