Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1963, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.11.1963, Blaðsíða 18
Hinir fóru til dómarastarfa og til þess að kynna sér starfsíþróttir og félagsstörf. Vsenta má góðs árang- urs af ferð þessari þar sem hún tókst mjög vel í alla staði. UMFÍ styrkti hvem þátttakanda með krónum 2500,00. Auk þess fékkst 10% afsláttur af flugfargjaldi. Þjóðkirkjan kostaði för eins þátttak- andans, séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar. Skógræktarmál — Þrastaskógur Sambandið naut styrks frá hinu opinbera til skóg- raktar í Þrastaskógi að upphæð kr. 15 þúsund á ári. Vegur var mddur meðfram girðingunni að sam- komusvæðinu við Tryggvatré. Þar hefur verið jafnað land til leikvangs. Þessi framkvæmd nýtur styrks úr íþróttasjóði. Þegar þessu mannvirki er lokið, skapast góð aðstaða fyrir mannfundi, íþrótta- iðkanir og aðra væntanlega starfsemi í Þrastaskógi á vegum samtakanna. Þrjú síðastliðin sumur hafa verið settar niður samtals um 16 þúsund trjáplöntur. Gróðursetningu önnuðust ungmennafélagar úr Árnessýslu undir stjórn skógarvarðar. Síðastliðið vor mættu 78 ung- mennafélagar til gróðursetningar í Þrastaskógi. Mjög litlar skemmdir urðu á plöntum í skóginum í kuldakastinu sl. vor. Fjöldi ungmennafélaga vinnur eins og áður að skógræktarmálum, ýmist á vegum einstakra ungmennafélaga eða á vegum skógrækt- arfélaganna. Mál það, sem Ungmennafélag íslands hefur átt í út af veiðirétti í Soginu undanfarna ára- tugi, er nú loks úr sögunni. Hæstiréttur dæmdi sambandinu veiðiréttinn fyrir landi Þrastaskógar og er hann leigður út í sumar. Ragnar Ólafsson hrl. flutti málið. Mikil gestkoma hefur verið í skóginum undan- farin sumur, einkum um helgar. Skógarvörður læt- ur mjög vel af umgengi fólksins. Hún er nú miklu betri en áður var. Skógarverðinum í Þrastaskógi, Þórði J. Pálssyni, var boðið á aðalfund Skógræktarfélags íslands s.l. sumar og var honum þar afhentur silfurbikar sem þakkarvottur fyrir gott starf í Þrastaskógi. Bindindismál. Nokku fræðsla var veitt á vegum samtakanna um biiidindismál bæði í ræðu og riti. Má t. d. nefna í því sambandi erindi Péturs Sigurðssonar um bind- indismál á síðasta landsmóti og heimsókn hans og héraðsstjóra Ungmennasambands Eyjafjarðar í marga barna- og unglingaskóla á sambandssvæðinu veturinn 1961. Einnig flutti sambandsstjóri UMFÍ, séra Eiríkur J. Éiríksson, útvarpserindi um bindind- ismál í október s.l. í sambandi við bindindisdaginn. Ungmennafélögin hafa ekki það vald, sem til þess þarf að útrýma áfengisnautn úr landinu, en með menningarlegu félagsstarfi leitast þau við að vinna bindindismálum gagn og gera það. Ungmennafélag Islands hefur skorað á ungmennafélögin að leggja kapp á að hafa alLar sínar samkomur með menn- higarbrag og það er vitað iað flestar samkomur, sem ungmennafélögin standa fyrir, eru til fyrirmyndar, en það ber stundum meira á því, sem miður heppn- as* en hinu, sem vel er gert. Síðasta landsmót heppnaðist mjög vel að dómi þeirra, er viðstaddir voru, einnig hvað snerti reglu- semi og alla umgengni. Óvinsamleg rödd lét þó til sín heyra á opinberum vettvangi í gagnstæða átt. Var það mjög ómaklegt í garð menningarhéraðs og þeirra samtaka, sem að mótinu stóðu. UMFÍ er í Landssambandinu gegn áfengisbölinu. I fulltrúaráði þess eiga sæti: Guðjón Jónsson kenn- ari og Þórður J. Pálsson kennari. Skinfaxi. Skinfaxi, tímarit ungmennafélaganna, hefur frá síðasta landsmóti komið út í fjórum tvöföldum heftum, sem eru samtals 290 síður með auglýsingum. Upplagið er 1490. Ritið hefur flutt svipað efni og áður: Greinar um félagsmál, íþróttir, starfsíþróttir, menningar- og þjóðernismál, kvæði, skákþætti og fréttir frá skrif- stofunni og úr skýrslu héraðssambandanna. Sambandsstjóm hefur ekki enn notað heimild síð- asta sambandsþings til þess að hækka áskriftar- giald Skinfaxa, vegna þess að útkoma ritsins hefur ekki verið regluleg og stærð þess ekki samkvæmt áætlun. Utgáfukostnaður allur hefur aukizt mjög niikið og vantar því nokkuð á að ritið beri sig. Kaupendahópur Skinfaxa er alltof fámennur, en sum félögin eru þó til mikillar fyrirmyndar t. d. þar sem Skinfaxi er keyptur á hverju heimili, þar sem ungmennafélagi er. Póstkröfuaðferðin við innheimtu áskriftargjalda hefur reynzt illa. Bezta innheimtu- aðferðin er, að féhirðar félaganna innheimti gjaldið f h. UMFÍ um leið og félagsgjaldið. 18 SKINFAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.