Skinfaxi - 01.11.1963, Blaðsíða 48
SÍGILDAR SÖGUR IÐUNNAR
IÐUNN gefur út flokk skáldsagna, sem valið hefur verið heitið SlGILDAR
SÖGUR IÐUNNAR. 1 þeim flokiki birtast emvörðung'u heimsfrægar úrvals-
sögur, sem um áratuga skeið hafa verið virasælasta lestrarefni fólks á
öllum aldri. En til bókaflokksins er þó ekki hvað sízt stofnað í þeim til-
gangi að gefa æsku landsins kost á að lesa þessar vinsælu og sígildu bækur
í góðum þýðingum og vönduðum útgáfum. — Fyrstu fjórar sögurnar eru
þessar:
Ben Húr
Hin heimsfræga saga Lewis Wallace. Aðalsöguhetjan, Ben Húr, líf hans
og örlög gleymast engum, sem söguna hafa lesið. Ben Húr hefur komið út
í fleiri útgáfum og verið þýddur á fléiri tungumál en nakkur önnur bók í
[íeiminum, að biblíunni einni undanskilinni.
Kofi Tómasar frænda
Ógleymanleg skáldsaga eftir H. Beecher Stowe, sem hafði gífurleg áhrif
þegar hún kom út, og átt'i m. a. drjúgan þátt í að hrinda af stað þræla-
stríðinu í Bandaríkjunum. Kofi Tómasar frænda er talin næstvíðlesnasta
skáldsaga í heimi.
Ivar hlújórn
Hin heimsfræga saga Walters Scott um dularfulla, svarta riddarann og
bandamenn hans, burtreiðar, orustuna um kastalann, svínahirðinn Gyrði,
fíflið, sem var vitrara en húsbóndi hans, og margar aðrar eftirminnilegar
söguhetjur. Bakgrunnur sögunnar er hið litríka en róstusama England
krossferðatímabilisins. Ivar hlújárn hefur farið sigurför um heiminn sem
bók og kvikmynd.
Skyffurnar I—III
Frásagnargléði og frásagnarsnilld hins víðfræga höfundar Alexandre
Dumas nýtur sín hvergi betur en í Skyttunum, og lesandinn heiliast af
hinu litríka lífi sögunnar og ævintýrum og mannraunum þeirra félaganna
f j ögurra.
I Ð U N N
— Skeggjagötu 1 — Reykjavík.
48
SKIN FAX I