Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Side 6

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Side 6
63 lagsins draga nú nokkuð á veg sem stofnfje og vöru- þekking og verzlunarþekking, yfir höfuð, hefur aukizt svo, að miklu nemur, þó mikið skorti á að vel sje. Lengi framan af var örðugt fyrir fjelagið, að koma í verð sumu af gjaldeyri fjelagsmanna, svo að viðunandi þætti, einkum sláturfje. Nú er nýr markaður fundinn fyrir kjöt af veturgömlu fje og dilkum, svo að fjelagið getur nú boðið kaupmönnum byrginn í hverri grein kaupskapar, sem byggist á falslausum grundvelli.« „7. Andi og stefna kaupfjelagsskaparins. K. F*. hóf starf sitt sem samvinnufjelag. Jeg er viss um að ekkert fjelag hefur átt það nafn fremur skilið en K. I3. þegar í byrjun. En það var að mestu án vitundar um erlend kaupfjelög, eða þeirrar ákvörðunar að ganga þeirra götu. Vjer þekktum þau eigi þá. Hugsunin var einkum þessi í fyrstu: Hinir mörgu, smáu sameini kraptana, svo þeir geti sett hnefann á borðið gagnvart einokunarvaldi út- lendrar og óþjóðlegrar kaupmannastjettar. Markmiðið var: Eðlileg samkeppni og verzlunararðurinn inn í landið. þeir sem þá hugsuðu mest um þetta í fram- kvæmd munu hafa hugsað sjer: Stór kaupfjelög um land allt og innlendir smákaupmenn í skjóli þeirra, til þess að selja hinn smærri varning. En eigi var langt liðið, þá er kviknaðar voru hugsanir hjá sumum fjelags- mönnum, sem horfðu mikið lengra. Jeg man fyrst eptir samtali í þá átt 1887. Fóru þær skoðanir nú að ryðja sjer til rúms, að allir kaupmenn í venjulegum skilningi væru óþarfir, dýrir og skaðlegir milliliðir. Verzlunar- keppnin þótt frjáls væri kölluð, væri alls eigi einhlýt til hollra umbóta í verzlun, og sízt fyrir smælingjana. Verzlunin væri eitt þeirra verkefna, sem fjelagið — með tímanum þjóðfjelagið eða ríkið — og þá fyrst um sinn frjáls fjelagsskapur, ætti að hafa með höndum að öllu leyti. Pá ^kæini skipulag í stað blindrar samkeppni, þá væri enginn fyrir borð borinn af því hann væri lítil- magni. Markmiðið væri þvi: kaupfjelagsskapurinn i stað

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.