Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Blaðsíða 56

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Blaðsíða 56
113 Rjómabússamvinnan hefur æft menn í fjelagsskap og samvinnu, minnkað tortryggnina og eflt traust manna innbyrðis. Þetta er mikill ávinningur. Búin hafa komið til vegar miklu vandaðri og betri meðferð í verkun smjörsins en áður var títt hjá fjelags- mönnum, og á þann hátt aukið þann gjaldeyrir, sem hefur sæmilegt álit á útlendum markaði. Jafnframt þessu hafa þau haft bætandi áhrif á smekk manna, vandvirkni og hreinlæti í fleiri greinum. Þá er það óneitanlega mest rjómabúunum að þakka að smjör hefur talsvert hækkað í verði og eru það miklir peningar fyrir landsveitir þær, sem á annað borð hafa smjör til sölu, hvort sem þar eru rjómbú eða ekki. Saman- lagt hafa og búin getað skilað fjelagsmönnum hærra smjörverði en utanfjelagsmenn fengu almennt, og er það viðbót við hina hækkunina sem þau útveguðu. Miklu munar það, til hagnaðar, að geta nú fengið þen- inga fyrir þessar vöru, fljótt og tregðulaust, til ýmsra þarfa. Sökum þess má sæta betri kaupum, bæði í kaupfjelögum og annarsstaðar. Þetta getur átt sinn þátt í því að útrýma skuldaverzluninni, og vekja rjettar kröfur um liðlegt og haganlegt viðskiptalíf, hreina og ósvikula verzlun. Loks má telja þann árangur af starfi rjómabúanna, sem áreiðanlega er kominn í ljós og hefur mikla þýðingu: að þau auka smjörframleiðsluna, án þess sagt verði að önnur framleiðsla hafi minnkað sökum þess. Stöðugur áhugi, hagsýni og sparnaður getur hjer, sem víðar, komið svo miklu til leiðar. * * * Framtiðarhorfur rjómabúanna á Norðurlandi eru að vísu eigi glæsilegar, sem stendur, en þá eigi heldur svo, að verulega sje óvænlegt útlitið. Þau 5 rjómabú, sem skýrslan hjer aptan við til greinir, hafa lagt fram í stofnkostnað um 20 þús. kr. Öll munu búin hafa fengið stofnfjeð lánað, fyrst og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.