Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Page 34
91
vantar og gott kjallararúm til kjötgeymslu, verður með-
ferð kjötsins allt af, meira og minna, ábótavant.
Fjelögin í F’ingeyjarsýslu og Kaupfjelag Eyfirðinga fengu
sitt útflutta kjöt borgað með 23 aurum, pundið, að frá
dregnum öllum kostnaði, nema slátrun, og má telja það
mjög gott verð. Næsta haust ættu fjelögin að gjöra til-
raun með það að senda nokkuð af kjöti af eldra geldfje,
tveggja til þriggja vetra. Ef neytendum geðjast vel að
því kjöti, og borga það sæmilega, þá sýnist það tak-
mark mjög nærri, sem margir hafa þráð: að hætta megi
við útflutning lifandi sauðfjár.
Sambandskaupfjelaginu er ætlað það verkefni að hafa
vakandi eptirlit með þessari þýðingarmiklu sameiginlegu
starfsgrein fjelagsdeildanna.
III. Slátrunarhús kaupfjelaganna.
Hið fyrsta slátrunarhús, hjer á landi, til sameiginlegra
fjelagsafnota, mun hafa verið reist og notað á Seyðis-
firði, síðast liðið sumar, af Pöntunarfjelagi Fljótsdals-
hjeraðs. Tímaritið hefir óskað eptir ýtarlegri skýrslu um
húsið, útbúnað þess og afnot, en ekki fengið hana, enn
sem komið er.
Kaupfjelag Þingeyinga hefir ráðið að koma upp ódýru
sláturhúsi, til afnota næsta haust, og Kaupfjelag Eyfirð-
inga hugsar til hins sama. Líklegt er að Kaupfjelag
Skagfirðinga hyggi á sams konar nýbreytni.
Ingimar Sigurðsson, kennari á Hólum, sem Iært hefir
slátrarastörf í Danmörku, hefir gert uppdrátt af slátr-
unarhúsi og kostnaðaráætlun. Telur hann að hús, þar
sem slátra megi allt að 400 sauðfjár á dag, þurfi eigi
að kosta meira en 2500 kr. Húsið á þá að vera með
steinsteypugólfi, steinsteypuveggjum og járnþaki.
Pó slátrunarhús þau, sem þessi smærri fjelög koma
upp, verði ekki fullkomin, eptir því, sem títt er í stór-