Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Qupperneq 63
Enn til kaupfjelaga og samvinnufjelaga.
I fyrsta hepti tímarits þessa er þess óskað, meðal annars,
að tímaritið fái skýrslur um hverskonar samvinnufjelagsskap
hjer á landi. Ritstjóri tímaritsins hefur, auk þessa, brjeflega
óskað eptir ákveðnum skýrslum frá forstöðumönnum ýmsra
fjelaga.
Hingað til hefur lítill árangur að þessu orðið. Að eins
nokkur kaupfjelög hafa sent skýrslur, en þau eru of fá til
þess, að hægt sje að koma fram með aðalskýrslu fyrir fje-
lögin, sem tímaritið ætti að flytja á hverju ári.
Það er að öllu leyti óhentugt að yfirlitsskýrslur komi í
smámolum, og sú aðferð nær ekki þeim tilgangi, að vera
handhæg tafla fyrir þá, sem þaðan vilja einhvern fróðleik fá.
Formenn rjómabúanna hafa vikist hjer allvel að máli, og
því hefur tímaritið getað flutt skýrslu um búin í tveimur sýsl-
um, sem þó er með allt of miklum eyðum.
Næsta hepti tímaritsins er ætlast til að komi út í október
þ. á. I því hepti ætti að vera yfirlitsskýrsla um hag og starf-
semi kaupfjelaganna, ásamt fleiri skýrslum. Er því hjermeð
skorað á forstöðumenn samvinnufjelaga og kaupfjelaga að
sýna tíniaritinu þá velvild, að senda ritstjóra þess skýrslur
þær, sem hann óskaði að fá, og nánar er lýst í brjefum frá
honum, í Nóvember f. á., og gjöra þetta svo tímanlega, að
skýrslurna: komist til hans eigi síðar en um miðjan Septem-
ber þ. á. (Sbr. einnig I. hepti. Bls. 56).