Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Blaðsíða 43
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
158
því, að hafin yrðu almenn landssamskot í þessu skyni.
Nokkru eftir aðalfundinn kom H. Kr. snöggva ferð heim,
meðal annars til þess að undirbúa til fullnustu lántök-
una í Samvinnubankanum danska. Kaupfélag Eyfirð-
inga hafði þá haft samábyrgð í 9 ár frá því félagið
var stofnað, og í þingeysku félögunum þremur var hún
enn eldri, því að eins og áður er skýrt frá, var þegar
farið að undirbúa hana á stofnfundi Samb. Kaupfél.
pingeyinga árið 1902. það varð því að samkomulagi
milli þessara fjögra félaga, að þau gengu í samábyrgð
fvrir hinu nýja láni í Samvinnubankanum til þess að
skrifstofan gæti byrjað á innkaupum erlendra vara.
Leiddi því hin nýja samábyrgð milli félaganna beint af
því, að starfssvið Samb. var fært út.
H. Kr. byrjaði fyrri part ársins að selja innlendar
afurðir, ekki einungis fyrir Sambandsfélögin, heldur
einnig fyrir ýmsa kaupmenn. Námu þau viðskifti til
ársloka rúmri miljón kr. Innkaup erlendra vara gátu og
byrjað um haustið eftir að hann kom til Kaupmanna-
hafnar úr heimför sinni. Seint á árinu tók H. Kr. í
þjónustu sína á skrifstofuna þá Odd Jónasson Rafnar
og Guðm. Vílhjálmsson, sem báðir voru vanir verslun-
arstörfum. 0. Rafnar hafði áður um allmörg ár verið í
þjónustu Sambandskaupfél. danska. Eru þeir nú báðir
framkvæmdastj órar fyrir skrifstofum Sambandsins er-
lendis, G. Vilhjálmsson í Leith og 0. Rafnar í Khöfn.
Sigurður Jónsson hélt enn áfram fyrirlestrastarfsemi
sinni þetta ár. Ferðaðist hann þá um Eyjafjarðarsýslu,
nokkurn hluta pingeyjarsýslu og Fljótsdalshérað.
þegar H. Kr. fékk jafneindregna áskorun aðalfund-
ar eins og fyr segir, um að halda starfinu áfram, gat
hann ekki skorast undan því. Sagði hann þá af sér
framkvæmdastjórastarfi við Kaupfél. Eyfirðinga og réðst
fyrir fult og alt í þjónustu Sambandsins. En í starfi
sínu hafði hann orðið þess var, að hann hafði nægilegt
verkefni í þjónustu Sambandsins eins. Afsalaði því Sam-