Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Qupperneq 51
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 161
og aðrir“ hafi verið sendir út um landið til þess að
stofna ný kaupfélög. Sannleikurinn er, að enginn nem-
andi af Samvinnuskólanum hefir gengist fyrir stofnun
kaupfélags, og aðeins tveir eru nú kaupfélagsstjórar.
þriðji nemandinn þaðan hélt nokkra fyrirlestra um sam-
vinnumál á leið heim til sín héðan úr Reykjavík síðastl.
vetur. Enginn annar hefir ferðast um landið að tilhlut-
un Sambandsins til þess að útbreiða þekkingu á sam-
vinnumálum, að undanteknum Sigurði Jónssyni fyi-ver-
andi ráðherra, og munu samvinnumenn engan kinnroða
bera fyrir fyrirlestrastarfi hans.
pá minnist höf. á stofnun kaupfélags fyrir fortölur
einhvers erindreka Sambandsins. Mun hann þar eiga
við mann, sem af eigin hvötum vann að stofnun þessa
félags, þó að hann ætti áður tal við stjórn Sambands-
ins og fengi loforð um, að ef félagið yrði stofnað og
gengi í Sambandið, þá skyldi það fá samskonar stuðn-
ing og aðrar deildir þess. Höf. slær því fram, að Sam-
bandið hafi tekið þetta félag ,,að sér upp á bak ann-
ara félaga, sem í Sambandinu eru“, og gefur þannig í
skyn, að félagsmenn hafi ekki getað staðið á eigin fót-
um, heldur vérið ósjálfbjarga. Mun þó gestrisni ýmsra
þeirra við höf. á ferðum hans um héraðið tæplega hafa
gefið ástæðu til þess, að hún sé launuð á þennan hátt.
pá gerir B. Kr. skuldir Sambandsins og deilda þess
að umræðuefni, og tilfærir tölur, sem enga skýringu
gefa um raunverulegan efnahag þeirra. Minnist hann
á skuldir Sambandsins við síðustu áramót, sem voru
um 4 miljónir og 400 þús. kr. fyrir utan fasteignaveðlán,
en getur ekki hins, að óseldar gjaldeyrisvörur í vörsl-
um þess á sama tíma námu um 900 þús. kr. og að pen-
ingaforði og innstæður í bönkum voru um 200 þús. kr.
Útistandandi hjá deildunum voru ekki nema rúml. 3
miljónir kr., þegar gj aldeyrisvörur í vörslum Sambands-
ins eru dregnar frá, og upp í þá skuld áttu deildirnar
útlendan vöruforða heima fyrir, sem með sæmilegum
11