Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Blaðsíða 86
II.
„V erslunarólagið“
nefnist flugrit, sem hefir nýlega verið dreift um landið.
Höfundur þess er Bjöm Kristjánsson, fyrrum banka-
stjóri. Höfundurinn tekur það fram, að ritið sé ekki
skiáfað og birt í árásarskyni. En honum hefði verið holl-
ara, að taka ekkert fram um það. það eykur ekki trú
á gildi ritsins eða mannkostum höfundaiins,að reyna með
slíku yfirvarpi, að villa heilvita lesendum sýn um raun-
verulegan tilgang þess. Slægviskan getur brugðist á þess-
um tortryggnistímum. Nafnið á ritinu gefur ástæðu til
að ætla að verslunarmál þjóðarinnar yfir höfuð séu tekin
þar til rannsóknar, en svo er ekki. Aðeins einn þáttur
þeirra, eða öllu heldur eitt verslunarfyrirtæki, Samband
ísl. samvinnufél. er tekið til meðferðar og á það ráðist.
Árásirnar má greina í eftirtalda höfuðþætti:
I fyrsta lagi er ráðist á skipulagið. I öðru lagi á
framkvæmdastarfsemina. í þriðja lagi á tryggingarn-
ar. í fjórða lagi á hvatir og mannorð þeirra manna, sem
beitt er fyrir í þessum félgsskap.
Höfundurinn hefir í niðurlagi ritsins slegið þann
varnagla, að ritið muni fá harða mótspyrnu í Tím-
anum, Degi og Tímariti ísl. samvinnufélaga. Og að
þjóðin muni sjá, hversu einlæg og réttsýn sú mótspyma
verði. Nú má einnig vera, að mótspyma þessi leiði í
ljós einlægni B. Kr. sjálfs. það er ekki einungis létt verk,
heldur óhjákvæmilegt, að sýna fram á, að ummæli B.
Kr. þau, að hann skrifi ekki í árásarskyni, em af óein-
lægni mælt. það mun koma bert í ljós í eftirfarandi grein-
um, að rit þetta er runnið af sömu rót og önnur árás-