Andvari - 01.07.1960, Page 5
JÓN STEFFENSEN:
Bjarni Pálsson og samtíð hans.
Erindi flutt í Hás\óla íslancis 20. marz 1960.
A þessu ári eru 200 ár liðin frá stofnun fyrsta læknisembættis hér á landi,
senr var enrbætti landlæknis, og jafnframt frá upplrafi innlendrar læknakennslu.
Læknadeild Háskóla íslands vill nrinnast þessara nrerku tímamóta í heilbrigðis-
nrálunr þjóðarinnar og brautryðjanda þeirra, Bjarna Pálssonar, landlæknis, nreð
þessu erindi og þó rækilegar nreð útgáfu rits uni læknanánr lrérlendis frá dögum
Ljarna Pálssonar og þar til Háskóli íslands tekur til starfa, og sér Vilnrundur
Jónsson fyrrverandi landlæknir unr það verk.
Hér verður ekki rakin ýtarlega ævi Bjarna Pálssonar, það lrefur tengdasonur
bans, Sveinn Pálsson, læknir, gert, en á hitt vildi ég leggja áherzlu, að bregða
upp nrynd af ástandi heilbrigðismála lrér, er Bjarni gerðist landlæknir, og
hvern þátt hann átti í stofnun landlæknisembættisins og hverju lrann áorkaði
1 því starfi. Því ekkert verk verður réttilega nretið nema haft sé í lruga við
hvaða aðstæður það var unnið og enginn maður rétt dæmdur utan í ljósi sanr-
bðar sinnar.
Ekki verður þó hjá því konrizt að rifja upp helztu æviatriði Bjarna Páls-
sonar. Hann fæddist 17. nraí 1719 að Upsunr við Eyjafjörð, þar sem faðir
hans, Páll Bjarnason, var prestur, en kona hans og móðir Bjarna var Sigríður
Ásmundsdóttir. Bæði voru þau lrjón af góðum norðlenzkum ættum og þóttu
góðunr gáfunr gædd, einkunr Sigríður. Bjarni lauk nánri úr Hólaskóla 1745
°g sigldi árið eftir til Kaupnrannahafnar, þar senr hann innritaðist í háskólann
og lagði stund á náttúru- og læknisfræði. Árið 1748 varð hann Philosophiae
Laeealaureus sanrtímis Eggerti Ólafssyni, og sunrarið 1750 eru þeir félagar
sendir til íslands, aðallega til handritasöfnunar á vegunr Árna Magnússonar
sjóðsins. Aftur eru þeir félagar sendir til landsins 1752 og hafa nú finrnr ára
viðdvöl við rannsóknir á náttúru landsins og þjóðarhag, eða til haustsins 1757.
hessi lör var farin fyrir tilstilli Vísindafélagsins í Höfn, og er árangur hennar
hin nrikla og ágæta ferðabók Eggerts og Bjarna, senr prentuð er í Sórey 1772.
Lað kom í hlut Eggerts að senrja bókina upp úr skýrslum og dagbókunr þeirra
iélaga, og verður nú ekki séð, hver er hlutur hvors í bókinni, en ég hef það