Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1960, Page 39

Andvari - 01.07.1960, Page 39
andvart UM UPPRUNA MANNA 133 heiti, aðeins meS hliSsjón af nokkrum fönnum. En árið 1929 fannst hauskúpa Pekingmanns, og síSan ýmsar fleiri leifar hans, einkum þó hrot höfuðbeina. Pek- ingmaðurinn var um líkamsgerð nauða- líkur Jövumanninum: meS stóra beinhrún yfir augum og lágt enni, langt höfuS og hökulaus eins og api. Heilinn var svip- aSrar gerðar, en aðeins stærri, kringum 1000 sm3 að meðaltali í stað 900 hjá Jövumanninum. Margir hallast að því, að stærðarmunurinn stafi af því, að Jövu- niannahöfuðin, sem notuð voru við heila- mælingarnar, hafi verið af konum, en heilastærð Pekingmanna sé ákvörðuð eftir beinum beggja kynja. Konur frum- stæðra manntegunda hafa oft töluvert minna heilabú en lcarlar. Af gerð heilans geta menn sér þess til, aS apamennirnir frá Jövu og Kína hafi att einhvern vísi til tungumáls. Munurinn á líkamsgerð Jövumanns og Pekingmanns er ekki meiri en svo, að visindamenn vilja nú telja þá báða teg- undir sömu ættkvíslar, Pithecanthro'pus. Sumum þykir réttast að telja þá til sömu tegundar. Erfitt er að skera úr því, hvort þessir frumstæðu apamenn, sem lifðu í SuS- austur-Asíu um eða fyrir miðbik ísaldar 1 Evrópu, séu forfeður okkar, eða kannski hliðargrein, sprottin út úr stofninum, sem v>h erum komnir af. Líklegt verður þó ah telja, að apamennirnir séu forfeður eha nákomnir forfeðrum annars útdauðs hyns manna — Neanderdalsmannanna. Frumbyggjar Evrópu. Fyrri hluti kvartertímahilsins, pleistó- senskeiðið, var skeið ísalda. Þá íögðust stor svæði jarðar fjórum sinnum undir ls- Þegar ísbreiðan náði lengst, voru Norður-Evrópa og Alparnir undir jöldi, einnig Norður-Síhería og mikill hluti Norður-Ameríku. Hver þessara fjögurra ísalda stóS yfir um fimmtíu þúsund ár, þó var hin síðasta lengst, eða nærri hundrað þúsund ár. Milli ísaldanna voru svo hlýviðrisskeið álíka löng og ísaldirnar. Þá var loftslag ámóta og nú. Frá fyrri hluta ísaldar hafa fundizt frumstæð steinvopn — mestmegnis úr tinnu — í Evrópu og Asíu. Llin elztu þessara verkfæra eru svo frumstæð, að vafi leikur oft á, hvort þau séu gerð af mannahöndum eða meitluð af völdum náttúrunnar — af veSrun eða frostspreng- ingum. Þetta þróunarskeiS mannsins cr kallað forsteinöld. Þegar nálgast miðjan pleistósentíma, leikur enginn vafi lengur á, að verkfærin eru gerð af mannahöndum. Þetta skeið í sögu mannsins, hið elzta, sem við get- um þekkt með vissu af verkum hans, er kallað fyrri fornsteinöld. Við vitum fátt um rnenn þá, sem lifað hafa í Evrópu á forsteinöld og fyrri forn- steinöld. Stöku mannabein hafa fundizt, sem ætlað er, að séu frá þessum tímum jarðsögunnar, en bæði er tímaákvörðun þeirra oft mjög ónákvæm og auk þess eru beinin svo fá og ófullkomin, aS þau gefa enga heildarmynd af elztu skeiðum evr- ópskrar menningar. Síðar verður minnzt á Swanscombe- og Steinheimmennina, sem taldir hafa veriÖ frá miðju pleistósenskeiði. Menning apa- mannanna í Asíu er sambærileg að aldri og ástandi verkfæra við fyrri fornstein- öld í Evrópu. AriS 1905 fannst nærri þýzku háskóla- horginni Heidelberg mannskjálki í sand- námu. Kjálkinn er talinn nálega hálfrar milljón ára gamall, frá fyrsta hlýviðris- skeiði pleistósentíma, með öðrum orðum frá fyrri fornsteinöld. Tennurnar líkjast helzt tönnum nútímamanns, en kjálkinn er miklu stærri og grófgerðari en kjálki nokkurs lifandi manns. Otto Schoeten- sack, líffærafræðingur og prófessor við

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.