Andvari - 01.07.1960, Síða 42
136
ÖRNÓLFUR TIIORLACÍUS
ANEVAffl
ingar þeirra í Evrópu í lok síðustu ísaldar,
í kjölfar langrar og tilbreytingalítillar
menningar Neanderdalsmanna.
Við verðum heldur að telja, að Homo
sapiens hafi átt sjálfstæða þróunarbraut
að baki, er hans verður fyrst vart á slóð-
urn Neanderdalsmanna, meginlandi
Evrópu, á ísöld.
Þekking okkar á tilkomu mannsins í
núverandi mynd, Homo sapiens, er enn
öll í molum, enga örugga vitneskju að
hafa. Fundizt hafa í Evrópu og víðar
nokkur brot mannabeina, sem benda til,
að menn í okkar mynd, eða náskyldar
manngerðir, hafi verið til snemma á forn-
steinöld. Þessjr beinafundir eru samt allir
svo óvissir, að fátt verður af þeim ráðið
með vissu. Hér skal getið um nokkra
þessara vafagemlinga:
Piltdownmaðurinn. Árið 1911 var í
Piltdown á Suður-Englandi grafin upp
hauskúpa úr malargryfju. Vegamenn
brutu kúpuna í mola og báru ofan í veg.
Charles Dawson, lögfræðingur og áhuga-
maður um steingervingafræði, safnaði
saman allmörgum brotum úr veginum.
Malarlögin í Piltdown eru frá pleistósen,
svo að þarna var auðsjáanlega um all-
fornan mann að ræða. Erfitt var að raða
brotunum saman, samt virtist auðséð, að
maðurinn væri um margt furðulíkur nú-
tímamanni, nema hvað beinin voru
þykkri. Þetta hefði allt verið gott og
blessað, ef Dawson hefði ekki grafið upp
kjálka á sama stað, tveim árum seinna.
Kjálkinn var svo apalegur, að harla ólík-
legt virtist, að hann hefði setið á höfuð-
kúpu, sem bar svip af höfði nútímamanns.
Menn reyndu oft að skapa sár mynd af
útliti Piltdownmannsins og velja honum
stað í ættatölu manna, en hvorugt gckk
vel. Einkum reyndist hið síðara æ örð-
ugra eftir því, sem ættatalan fylltist.
Franz Weidenreich, sem gróf eftir lcif-
um frummanna í Kína og nefndur er
hér að framan, hélt ákveðið fram, að
Piltdownmaðurinn væri saman settur úr
mannshaus og apakjálka, en ýmsir ann-
markar voru taldir á þeirri skýringu,
meðal annars eru engar leifar mannapa
þekktar í Bretlandi frá pleistósen. Málið
hlaut óvæntan endi árið 1954, er upp
komst, að kjálkinn var falsaður. Efna-
greining leiddi í ljós, að hauskúpan er
forn, en kjálkinn af nútíma mannapa.
Hann hafði verið litaður með járnsöltum
til að gefa honum sama clliblæinn og
hauskúpunni.
Mennirnir frá Steinheim og Swans-
combe. í Steinheim í Þýzkalandi og í
Swanscombe í Englandi fundust brot úr
höfuðkúpum frummanna 1933 og 1935—■
1936. Margir telja þessar manntegundir
skyldar. Bcin hvirfils og hnakka eru stcrk-
leg og þykk, en um lögun svipaðri bein-
um nútímamanna en Neanderdalsmanna.
Mcira þekkjum við ekki til beina Swans-
combemannsins, en mcð honum fundust
í jarðlagi um sex hundruð steinverkfæri
frá fyrri frumsteinöld. Eftir gerð þeirra
að dæma er Swanscombemaðurinn að
minnsta kosti 200 til 300 þúsund ára
gamall, kannski hálfrar milljón ára.
Nýtt brot úr hvirfli Swanscombemanns-
ins fannst árið 1955.
Af Steinheimmanninum er hluti and-
litsins þekktur, auk hvirfils og hnakka.
í andlitinu renna saman einkenni, sem
þykja minna í senn á simpansa, Peking'
mann, Neanderdalsmann og nútíina-
mann. Hann er talinn svipaðs aldurs og
Swanscombemaðurinn, eða frá miðju
pleistósenskeiði.
Því miður eru leifar þessara manna
svo ófullkomnar, að allar hugmyndir okk-
ar um útlit þeirra og líkamsgerð eru mjög
óljósar.
Galeiðuhólsmaðurinn. Árið 1888 fannst
í Galley Hill nærri Swanscombe svo til
heil heinagrind, um fátt cða ekkcrt l|íl'