Andvari - 01.07.1960, Qupperneq 65
guðmundur BÖÐVARSSON:
Konan, sem lá úti.
i.
Laust fyrir miðjan febrúar 1949 birtist
í ýmsum blöðum landsins fregn um slys-
farir nær áttræðrar konu í Borgarfirði
vestra. Voru þær slysfarir á þann veg, 1
scm stytztu máli, að hún lá limlest úti á
t’ersvæði um hávetur, lengri tíma en ætla
m;etti að mannlegir lífskraftar þyldu með
ttokkru móti, þó yngri væri en hennar.
" Konan, Kristín Kjartansdóttir frá Sig-
^undarstöðum í I Iálsasveit, er enn á lífi.
Uún verður níræð 25. ágúst í sumar.
Lins og oft vill verða gætti ýmissar óná-
'væmni í frásögn blaðanna um þennan
c'tburð og eins manna á milli þegar fjær
' 'ó vettvangi. Til þess í eitt skipti fyrir
að leiðrétta slíkar missagnir og ekki
sUur til þess að halda á lofti minningu um
Se'stæðan persónuleik og skapgerð Krist-
'nar Kjartansdóttur, er þessi þáttur á blað
restur.
Kristín Kjartansdóttir er fædd í Norð-
j'd'Oti í Stafholtstungum. Var það smá-
ýL í landi Sólheimatungu og er löngu
agt undir þá jörð. Þar bjuggu foreldrar
j’ennar um alllangt skeið, sjálfsagt við
rcmur þröngan efnahag, svo sem þá var
j'j1 um allan almenning á þessu landi.
Hun er fædd 25. ágúst 1870.
. , 'aðir hennar var Kjartan, sonur Einars
°nda Þórðarsonar á Steinum í Stafholts-
jUngum, en móðir Kjartans var seinni
„°na Einars, Ástríður Guðmundsdóttir
ra Haafelli í Hvítársíðu. Móðir Kristín-
ar og kona Kjartans var Guðbjörg Bene-
diktsdóttir bónda á Skallhól í Dölum,
Þórðarsonar prests í Hvammi í Norðurár-
dal, en móðir Guðbjargar og kona Bene-
dikts var Margrét Pálmadóttir Þorleifs-
sonar á Breiðabólsstað í Sökkólfsdal.
Hinn 7. nóvember 1902 giftist Kristín
Guðmundi Sigurðssyni Guðmundssonar
bónda á Valbjarnarvöllum og síðar í
Krumshólum. En móðir Guðmundar var
Bjargey Guðmundsdóttir bónda á Sáms-
stöðum Guðmundssonar frá Háafelli í
Hvítársíðu, og koma þar saman ættir
þeirra hjóna, en móðir Bjargeyjar var
Guðrún Þorsteinsdóttir frá Kolsstöðum í
Hvítársíðu.
Systkin Kristínar voru sex — limm
bræður og stúlka, sem dó ung. Bræðurnir
voru: Benedikt, Einar, Þorsteinn og Guð-
mundur, sem allir fóru til Ameríku, og
svo Guðjón sem bjó á Flóðatanga og
lengi var póstur um Borgarfjarðarhérað,
kunnur maður að greind og mannkostum.
Þegar Kristín var fjórtán ára fór hún
að heiman frá móður sinni, sem þá var
orðin ekkja, og var þá eitt ár í Svigna-
skarði. Þá fluttist hún að Flóðatanga til
hjónanna Dýrunnar Magnúsdóttur og
Árna Jónssonar sem þar bjuggu. Þar var
hún í fjögur ár. Þaðan fluttist hún að
Sámsstöðum í Hvítársíðu til Guðrúnar
föðursystur sinnar og manns hennar, Guð-
rnundar Guðmundssonar, og var þar
vinnukona í sjö ár. Sex sumur var hún