Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1960, Page 76

Andvari - 01.07.1960, Page 76
170 GUÐMUNDUR JiÖÐVARSSON andvari um þá erfiSleika, sem heyrðu liðinni tíð. Ber hvorttveggja til, að til þess er hun of greind og hefur ekki til þess skap. Það þurfti því engum að koma á óvart, sem til hennar þekktu, þó hún talaði lítið og ógjarna um þá óveðursnótt er hún lá úti í Sandhólunum, og skilst manni þó að sú nótt hefði verið ærin þrekraun vngri manneskju og hraustari en henni. — En um seinni nóttina scm hún lá þar úti, nóttina með stjörnum og norðurljósum, gegndi öðru máli. Sú nótt virtist henni hugstæð og ógleymanleg. Og þrátt fyrir það að manni gæti fundizt nokkur ástæða að þá hefði hugsun hennar og athygli beinzt að hennar eigin kringumstæðum, þá virtist svo ekki vera, því hún þreyttist ekki á því að dásama þá dýrð sem þá var henni sýnd. Því var líkast stundum sem hún talaði um þá nótt með brosi sællar minningar, svo sem hefði hún gengið út um sinnsakir aðeins, til þess eins að gleðja augu sín við fegurð himinsins. Kristín átti fyrir höndum langa legu. Dvöl hennar í Stóra-Asi mun Iiafa orðið um 17 vikur. En tíu vikur samfleytt lá hún þar, rúmföst að mestu eða öllu. Og þó hún, að þeim tíma liðnum, reyndi eftir megni að hafa fótavist, þá var það þvílík- um þrautum bundið, að sýnilegt var að hér var einhver orsök, sem hamlaði eðli- legum bata. Við fluttum hana því til Akraness og þaðan fór hún til Reykjavíkur, þar sem loks fór fram fullnaðarrannsókn á meiðsl- um hennar. Kom þá í ljós að hún hnfði einnig mjaðmarbrotnað er hún ldaut bylt- una í Sandhólunum á þorra þáliðins vetr- ar. Því miður var nú allt um seinan, það er verða mætti henni helzt bót á þessu meini. Brotið bafði gróið skakkt og illa, eða kannski réttara sagt, ekki gróið, en svo var nú um þetta kárnað, að læknar töldu þess enga von að við þessu mæt'.i gera nema með stærri uppskurði en svo, að á hana væri leggjandi, svo gamla konu. Hennar hlutskipti varð því að vera far- lama um öll ólifuð ár og hafa sér til stuðnings hækjuna og stafinn, hvort held- ur hún reyndi að bera sig um gólf eða götu. Til eru þeir foreldrar, sem ekki bcra til þess gæfu að njóta stuðnings barna sinna þegar á hefur bjátað. Geta til slíkra atvika legið margar ástæður og óskyldar. En Kristín átti því láni að fagna að eign- ast sín börn, sem í engu brugðust henni þegar henni mest lá við á gamals aldri: Kjartan Bergmann, bróðursonur hennar, sá cr hér var áður getið, og hans ágæta kona, Idclga Kristinsdóttir, tóku hana til sín strax er þau höfðu myndað sitt eigið heimili, en jiað var skömmu cftir ])á at- burði, sem hér er frá skýrt. Hjá þeim hefur hún dvalið síðan og dvelur enn. Ekki er of sagt að þau hafi verið hen.ni sonur og dóttir. Ég kann þakkir þeim er lagt hafa mer liðsinni við að gera þennan þátt úr garði og læt honum síðan lokið, -— þættinum um konuna, sem sjötíu og níu ára gömul lá úti á bersvæði lærbrotin og mjaðmar- brotin, án skjóls og afdreps og að öllu vanbúin og stundum í blindbyl og versta veðri, nær fimm dægrum samfleytt, « þorranum veturinn 1949,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.