Andvari - 01.05.1961, Blaðsíða 6
GISLI GUDMUNDSSON
ANDVARI
4
„Frá rótum hans eru runnir
rammir um aldamörk þrenn,
allflestir innan vors héraðs
orðsins kunnáttumenn."
En Indriði tók sér fyrir hendur að gera grein fyrir fólki því, er uppi hefir
verið í Þingeyjarsýslum á síðari öldum og ættarsambandi þess. Því verki hefir
Indriði sonur hans haldið áfram eftir hans dag.
Kona Þorkels Guðmundssonar og móðir Jóhannesar var Ólöf lndriðadóttir,
bónda í Garði í Aðaldal, Ólafssonar, bónda á Skeri á Látraströnd, Ólafssonar
bónda í Grímsnesi á Látraströnd, Snorrasonar skálds og bónda á Brekku í Hval-
vatnsfirði 1734, Ólafssonar. Indriði í Garði, móðurfaðir Jóhannesar, var dug-
mikill og athafnasamur bóndi og stundaði sjóróðra frá Húsavík jafnframt búskap
sínum í Garði. Voru þeir faðir hans og iöðurlrændur harðsæknir sjómenn og
útvegsbændur á Látraströnd og í Höfðahverfi. Kona Indriða í Garði var Hólm-
fríður Jónasdóttir sterka hreppstjóra í Yztafelli, Einarssonar sterka bónda í Lélls-
seli, Árnasonar bónda í Lundi í Fnjóskadal 1734, Bjarnasonar bónda á Vöglum
1703, Árnasonar.
Svafa, kona Jóhannesar (f. 27. ágúst 1874, d. 11. jan. 1938), var dóttir
Jónasar bónda í Idraunkoti í Aðaldal, Kristjánssonar bónda þar og víðar, en
síðast í Leirhöfn á Sléttu, Þorgrímssonar bónda á Hraunkoti, Marteinssonar.
Kona Jónasar í Hraunkoti var Guðrún Þorsteinsdóttir bónda í Hafralækjar-
aerði í Aðaldal Þorsteinssonar. Svafa var elzt af sex börnum foreldra sinna.
O
Sama vorið og þau Jóhannes hófu búskap á Syðra-Fjalli, 1893, fluttust foreldrar
hennar og systkin öll til Vesturheims. Ein af systrum hennar var Hólmfríður,
er varð kona séra Rögnvalds Péturssonar. Kristján í Leirhöfn, föðurfaðir Svöfu,
var mikill elju- og búsýslumaður og farsæll bóndi. Hann var tvíkvæntur og
átti nítján börn. Fyrri kona lians og móðir Jónasar, var Halldóra Guðnadóttir
bónda á Hallbjamarstöðum í Reykjadal, Jónassonar bónda sama stað, Jónssonar
bónda á Stóruvöllum í Bárðardal 1762, Sturlusonar. Jónas móðurfaðir Þorkels
var næstelztur al börnum Kristjáns í Leirhöfn, en yngstur barna Kristjáns er
I leloi bóndi í Leirhöfn.
o
Þorkell á Syðra-Fjalli, faðir Jóhannesar, var merkur búhöldur og vel virtur.
Það var mál manna, að ádráttur hjá Þorkeli á Fjalli væri betri loforðum flestra
manna annarra. Svo sagði Guðntundur skáld Friðjónsson, systurson hans. Annar
sonur Þorkels var Indriði, skáld og fræðimaður á Fjalli.
Jóhannes varð gagnfræðingur frá Möðruvöllum 1885. Hann bjó á Syðra-
Fjalli til æviloka. Hann var hreppstjóri rúmlega 30 ár, efnaður og forsjáll bóndi.