Andvari - 01.05.1961, Blaðsíða 17
ANDVARI
ÞORKELL JÓIIANNESSON HÁSKÓLAREKTOR
15
Brot úr verzlunarsogu, upphaf verzlunarsamtaka á Suðvestur- og Norður-
landi á árunurn 1868—70 (Andvari 1957).
Brot úr verzlunarsögu II. (Andvari 1958).
Efnis- og höfundaskrá Andvara 1915—58 (Andvari 1958).
Eitthvað fleira mun hann hafa skrifað í útlend fræðirit, þótt ég hafi ekki
getað fengið það glögglega upplýst. Hann átti sæti í útgáfustjóm „Nordisk
kulturleksikon" og tók þátt í samstarfi norrænna sagnfræðinga al Islands hálfu.
Ritdómar eru hér ekki taldir, en þá skrifaði hann nrarga í tímarit og blöð. Ræður,
er hann flutti við setningu Háskólans hverju sinni, em prentaðar í Arbók Há-
skólans. Kemur þar fram ýmislegt um skoðanir hans á vísindalegu námi og upp-
eldismálum.
Oll em verk hans af trúleik unnin og með virðingu fyrir hinu fornkveðna,
að hafa það heldur, er sannara reynist. Hann gerði sér glögga grein fyrir ábyrgð
þeirra, sem aðstöðu hafa til að kveða upp „dóm sögunnar" yfir þeim, senr
liðnir em og ekki fá vörnum við komið.
Hann tók allmikinn þátt í félagsstörfum, einkum á sviði bókmennta og
þjóðlegra fræða. Auk þess, sem nefnt hefir verið hér að framan, átti hann m. a.
sæti í stjórn Hins íslenzka bókmenntafélags, og lorseti Sögufélagsins varð hann
árið 1955. — Skoðun hans á meginatriðum þjóðmála var hófsamleg, en ákveðin
°g óhvikul alla tíð. Opinberlega lét hann þau mál, lengst af, ekki nrjög til
sín taka.
Arið 1954 urðu enn þáttaskil í starfi Þorkels Jóhannessonar. Það ár var
hann kjörinn rektor háskólans í fyrsta sinn til þriggja ára. Árið 1957 var
hann svo kjörinn rektor í annað sinn og í þriðja sinn árið 1960. Forstaða Há-
skóla íslands er ein rnesta virðingarstaða með þessari þjóð, og vel var hann að
slíkri virðingu kominn. En rektorsembættinu fylgdi vaxandi vandi, mikið starf
og rnikil umsvif af ýrnsu tagi — fundastjórn í háskólaráði, fjármál stofnunar-
innar og samskipti við stjómamöld, móttaka erlendra gesta háskólans, stundum
á heimili hans, o. s. frv. Jafnframt var Þ. J. í stjórn orðabókanefndar háskólans
og háskólahappdrætdsins og í fomritaútgáfunefnd háskólans og byggingarnefnd.
Háskólinn befir á þessum árunr verið mjög vaxandi stofnun. Nemendum skól-
ans hefir ljölgað, ný háskólalög sett með atbeina háskólaráðs, nýir kennarastólar
settir á stofn í sérgreinum og yfirleitt að því unnið að efla þá vísindalegu
menntun, sem íslenzkir stúdentar eiga völ á í landi sínu. Háskólinn hefir á
þessum tírna haft með höndum margskonar framkvæmdir og undirbúning
annarra, I háskólahúsinu hefir verið komið fyrir nýjum vinnustofum fyrir ýmis-
konar vísindastarfsemi m. a. fyrir þá, er að islenzku orðabókinni vinna, svo og
til afnota fyrir stúdenta og félagsstarfsemi þeirra. íþróttahús háskólans hefir