Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2006, Side 125

Andvari - 01.01.2006, Side 125
ANDVARI HAMLET VIÐ HEIMSKAUTSBAUG 123 - Umgjörðin var afar einföld, en „funktionelt“ opin rými sem í sömu andrá var „klástófóbískt“, sem orsakaði innilokunarkennd. Formið skírskotaði til stílfærðs kastala fyrri tíma. Einmana trjádrumbur á miðju sviði, eins konar tákngervingur hins þögla sögumanns sem varðveitir vitneskju um örlög per- sónanna í harmleiknum, Hamlet.“ Sýningin tók tvo tíma og fimmtíu mínútur með hléi. Textinn var þannig mikið styttur. Hvergi var samið inn í hann og texti hvergi slitinn úr samhengi þannig að ákveðnar setningar eða heil atriði kæmu fyrir í annarri röð en skáldið virðist hafa hugsað sér. Hins vegar var mikið stytt í hverju atriði: fyrst hafði leikstjóri komið textanum niður í 80 síður í A4-broti, síðan var enn haf- inn hnífur á loft og sumir leikendanna duglegir við niðurskurðinn. En atburða- röð var í samræmi við gang mála í leiknum eins og Shakespeare virðist hafa hugsað sér hann. í samræmi við grunnhugsun sýningarinnar var vikið við ein- stökum orðum, eins og því, að ungmennin, Hamlet, Hóras, Laertes og Ofelía þúuðust. Heitið sem Hamlet gefur Póloníusi: fisksali, á ensku fishmonger, var breytt í flyðrusali. í samræðum Hamlets um ríkiserfðir við Rósinkranz og Gullinstjarna var braglínunni: Já, en þegar grasið vex, máltækið er farið að mygla, breytt í: Þegar grasið vex í vor/ verður bikkjan dauð úr hor. Atriðin urðu samtals 18. Fyrsta atriði hermannanna var að fullu sleppt, en leikurinn hófst í ráðsalnum og samtal Hamlets og Hórasar (og Marsellusar sem kom til staðfestingar því að vofan hefði sést) síðan í beinu framhaldi. Fjórða atriði fjórða þáttar var tekið með, enda gegndi það lykilhlutverki til skilnings á leiknum. Hórasi voru falin tilsvör aðalsmanns í fimmta atriði sama þáttar. Grafaraatriðið var stytt og grafarinn aðeins einn. Lokaatriðið mikið stytt og Fortinbras falin síðustu orðin. Leikurinn er ortur á stakhendu eða blank verse og var mikið kapp lagt á að láta skáldskap bragarins njóta sín um leið og eðlilegt hljóðfall setning- anna flytti áfram inntak verksins; leikur í bundnu máli getur aldrei orðið né á að vera raunsæilegur; hins vegar var leikurinn ekki stílfærður nema að því leyti sem form hans krefur eða stílfærslan sprottin sjálfkvæmt í hita leiks- ins. Leikmátinn var sparneytinn, engar óþarfa hreyfingar eða viðbrögð, ein hreyfing eða eitt svipbrigði fyrir hvert viðbragð, hvort sem var um tilfinningu eða nýja hugsun að ræða. Rytminn var ýmist ör eða hægur, ekki ósvipað og í Amlóða sögu, og andstæðar stemningar leystu hver aðra af hólmi. Leikmáti og yfirbragð var í samræmi við þá fagurfræði sem ég hafði verið að móta með mér undanfarin ár eða áratugi, sbr. t.d. Fedru í Þjóðleikhúsi, sýningar Bandamanna og Afturgöngur í Kaupmannahöfn. Minna bar á póst- módernískum tilvísunum en í sýningum Bandamanna, en með áherslum var stöðugt vísað til nútímans, þó að tími leiksins væri sögulaus. Mikið var lagt upp úr samræmi í hreyfingum allra þeirra sem samtímis voru á sviðinu (æfingatíminn gekk að nokkru beinlínis út á það með sérstökum æfingum í þá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.