Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 20
16
Jón Sigurðsson
ANDVARI
stæðisflokksins, en mjög á móti vilja sínum. Gerði hann það
einungis fyrir bænastað flokksmanna sinna, er treystu hon-
um bezt til þessa samstarfs.
Magnús Guðmundsson varð dómsmálaráðherra í stjórn Ás-
geirs Ásgeirssonar, og var þetta í þriðja sinn, er hann gegndi
ráðherrastöðu, og hafði þá haft forstöðu allra ráðuneytanna.
Sýnir þetta Ijóslega traust samstarfsmanna og flokksbræðra á
hæfileikum hans og fjölhæfni.
Þrátt fyrir þessa stjórnarsamvinnu héldu flokkadeilurnar
áfram og að sumu leyti með engu minni hörku en áður. Kom
þá líka til óeirða í Reykjavík 9. nóv., sem kunnugt er.
Þennan sama dag féll dómur í lögreglurétti Reykjavíkur,
þar sem Magnús Guðmundsson var dæmdur í 15 daga fangelsi
vegna aðstoðar, er hann hafði veitt manni nolckrum, er íil
hans hafði leitað sem málafærslumanns, en síðar orðið að af-
henda bú sitt til gjaldþrotaskipta.
Af öllu, sem á Magnús Guðmundsson var borið þau rúm 20
ár, sem hann stóð á vígvelli stjórnmálanna, varð honum þetta
þungbærast. Allir, sem bezt þekktu Magnús Guðmundsson,
vissu, að heiðarlegri og vandaðri maður en hann var tæplega
til og að það var útilokað, að hann hefði vísvitandi gert nokkuð
það, er varðað gæti við lög. Sjálfur var hann sannfærður um, að
bak við dóinsniðurstöðuna hefði legið tilraun til að ryðja úr
vegi stjórnmálaandstæðingi og særa Sjálfstæðisflokkinn hættu-
legu sári, og í sömu átt hnigu skoðanir margra manna um land
allt. Andstöðublöð Magnúsar tóku þessum fréttum vel. Dóms-
málaráðherra Sjálfstæðisflokksins dæmdur í fangelsi! Fréttin
var óðara símuð til útlanda.
Þegar Magnús Guðmundsson fékk vitneskju um dóminn.
sagði hann strax af sér ráðherrastörfum og beið úrslita máls-
ins í hæstarétti, en Ólafur Thors tók við störfum hans í ríkis-
stjórninni á meðan. Dómur hæstaréttar féll þann 19. des. s. á.,
og var héraðsdóminum hrundið, þannig að Magnús Guðmunds-
son var algerlega sýknaður, en rikissjóði gert að greiða sakar-
kostnað allan, bæði í héraði og fyrir hæstarétti. Skömmu síðar