Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 83
ANDVAltl
Fyrsta löggjafarþingið í Reykjavík
79
Ýmsir menn, sein enn eru þjóðkunnir, sátu hið fyrsta lög-
gjafarþing í Reykjavík. Skulu hér nefndir, auk Jóns forseta:
Grímur Thomsen og séra Þórarinn Böðvarsson í Görðum, þing-
menn Gullbringu- og Kjósarsýslu, Halklór Friðriksson yfir-
kennari, þingmaður Reykvíkinga, Einar Ásmundsson hóndi i
Nesi, 1. þingmaður Eyfirðinga, séra Benedikt Kristjánsson i
Múla og Jón Sigurðsson bóndi á Gautlöndum, þingmenn Þing-
eyinga. Páll Ólafsson skáld, 1. þingmaður Norðmýlinga,
Tryggvi Gunnarsson, 1. þingmaður Sunnmýlinga, og Benedikt
Sveinsson sýslumaður, 1. þingmaður Árnesinga. Freistandi
"væri að segja skil á þeim mönnum öllum, er þing þetta sátu
og margir voru liðtækir vel, og rekja nokkuð það, er þeir þá
lögðu til mála. En til þess er hér ekki rúm.
Báðar deiklir þingsins samþykktu ávörp til ltonungs, þar
sem lýst var yfir óánægju með það, að ráðherra í ráðuneyti
Dana færi með málefni Islands. En á síðasta fundi sameinaðs
])ings stakk forsetinn, Jón Sigurðsson, upp á því, „að Alþingi
Sæfi sér heimild til og fæli sér, að hann leitaði samtals við
konung, er liann kæmi til Kaupmannahafnar nú í haust, og
færði honum kveðju þingsins og beztu óskir þess“. Var þetta
samþykkt í einu hljóði.
Síðan segir svo í þingtíðindunum:
».Þá gekk landshöfðinginn inn í þingsalinn og til sætis síns;
kfs hann síðan upp bréf konungs, dags. 24. maí þ. á., þar sem
landshöfðingjanum er gefið vald til að lengja þingið um 14
daga, og þar eð nú þingtíminn væri liðinn og þingið hefði lokið
störfum sínum, ]iá lýsti hann þvi yfir, að Alþingi væri slitið.
Stóð þá varaforseti1) hins sameinaða Alþingis upp og mælti:
Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn níundi!
Risu þá þegar allir aðrir þingmenn úr sætum sínum og tóku
Rndir í einu hljóði.
Var síðan gengið af fundi.“
Svo lauk hinu fyrsta löggjafarþingi í Reykjavík 26. dag
ágústmánaðar 1875.
1) Bcrgur Thorberg aintmaður, siðar landshöfðingi.
6