Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 35

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 35
andvari Um manneldisrannsóknir 31 efni, án þess að breyta að öðru leyti, og athuga áhrifin af því o. s. frv. Af dýratilraunum höfum við og lært margt, þó að ekki megi að jafnaði heimfæra niðurstöðurnar af þeim óbreytt- ar til mannanna. Fyrstu manneldisrannsóknirnar hér á landi, sem nokkuð kveður að, voru hafnar seint á árinu 1939 á vegum stjórnskip- aði-ar nefndar, sem hefur verið kölluð manneldisráð. Var aðal- tilgangurinn sá að fá yfirlit yfir mataræði landsmanna og kreytingar, sem á því kynnu að vera eftir staðháttum. Með þetta fyrir augum voru fengin heimili í ýmsum byggðarlögum víðs vegar um landið, til þess að gera nákvæmar skýrslur um matar- æðið um eins árs skeið. Eina viku hvers mánaðar var vigtað allt það, sem til matar var haft á degi hverjum, og jafnframt var skráð daglega allt árið, hvaða réttir voru á borðum við hverja máltíð. Sum heimilin héldu og búreikninga. Læknis- skoðun fór fram á öllu heimilisfólkinu við byrjun og í lok rannsóknatímabilsins, og hver maður fékk heilsufarseyðublað, sem á skyldu skráðar upplýsingar um kvillasemi og annað viðkomandi heilsufari á rannsóknatímabilinu. Það var því ekki svo lítil fyrirhöfn, sem með þessu var iögð á herðar húsmæðrunum, sem allar höfðu þó ærnum störf- að sinna fyrir. Er það þvi mjög þakkarvert, hve vel þær hrugðust við, og er eingöngu þegnskap og lofsverðum áhuga iyrir málefninu að þakka, því að borgun fyrir starfið var engin, er því nafni gæti heitið. Jafnhliða skýrslusöfnuninni var og hafizt handa um rann- s°knir ýmissa innlendra matvæla, fyrst og fremst með tilliti i'l þess, að auðveldara væri að vinna úr skýrslunum, því að þar verður ekki farið eftir útlendum næringarefnatöflum nema að litlu leyti. Nokkuð hefur að vísu verið gert að slíkum rann- s°knum hér áður, og var þá einnig stuðzt við þær. Yfirleitt má segja, að skýrslugerðir heimilanna hafi tekizt Vel» og framar öllum vonum, þegar tekið er tillit til þess, hve erfitt var með leiðbeiningar vegna fjarlægða. Alls var byrjað ttieð 65 heimilum, nokkur heltust úr lestinni eða tóku ekki þátt 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.