Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 30
26
Július Sigurjónsson
ANDVARl
II.
Önnur aðferðin er í því fólgin að athuga neyzlu einstakra
heimila. Er þarna um tvær leiðir að velja: Að fara eftir bú-
reikningum, þar sem nákvæmlega sé tilfært magn hverrar fæðu-
tegundar, sem keypt er eða framleidd til heimilisnota, eða þá
að vigta allt, sem til matar er haft daglega.
Búreikningaleiðin er fyrirhafnarininni, en þarf þó talsverðrar
aðgæzlu við, meiri en ætla mætti í fljótu bragði. Hægara er að
koma henni við í kaupstöðum, þar sem flestur matur er keypt-
ur jafnóðum til daglegrar notkunar. Ef safnað er miklum birgð-
um í einu, eins og í sveitunum, þarf að gera upp birgðir mat-
væla í byrjun og lok reikningstímabilsins. Úrgangur vegna
skemmda við geymslu (t. d. á garðamat) vill dragast undán,
og breytingar mataræðis eftir árstiðum koma ekki fram á bú-
reikningunum, þar sem keypt er til langs tíma í senn.
Meiri nákvæmni fæst með því að vigta matinn. Eru þá vigt-
aðar, um leið og matreitt er, allar þær matvörur, sem notaðar
eru. Fiskurinn vigtaður áður en hann fer í pottinn, hafra-
mjölið, sem fer í grautinn, brauðið, sem notað er yfir daginn,
o. s. frv. (Afgang af því, sem matreitt er, þarf ekki að vigta,
ef neytt er síðar sama dag, eða þótt ekki sé fyrr en næsta dag,
það jafnar sig upp, þegar tekið er meðaltal vikuneyzlunnar,
eins og oftast er gert.) Ekki er því að neita, að vigtunin er
talsvert umstangsmikil, einkum í byrjun, en með æfingunni
lærist fljótt að vinna sér á ýmsan bátt léttar án þess að það
gangi út yfir nákvæmnina. Og auk meiri nákvæmni, ef vel er
unnið, fylgir vigtuninni sá kostur, að hún sýnir samsetningu
fæðisins á hverjum tima, t. d. hverri viku, og koma þá frarn
þær breytingar, sem kunna að verða á mataræðinu eftir árs-
tíðum.
Allri neyzlu heimilisins er síðan jaínað niður ú heimilis-
fólkið, að vísu ekki eftir höfðatölunni, því að tillit verður að
taka til aldurs, éins og síðar mun vikið að. Enn fremur þarf
að skrá alla gesti, sem beini er veittur, og fjarvistir heimilis-
fólks.
Með heimilisrannsóknum á þennan hátt fæst miklu sannari