Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 34

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 34
30 Július Sigurjónsson ANDVARI Ef við tökum til dæmis heimili, þar sem eru hjón og þrjú börn, 5 ára, 3 ára og 2 ára, verða neyzlueiningarnar 1,0 + 0,8 + 0,4 + 0,3 + 0,3 = 2,8, og ætti það því að jafngilda að neyzluþörf þriggja manna heimili, ef þar væru 2 karlar eldri en 14 ára og ein kona (hér er eingöngu miðað við magn fæðunnar í hitaeiningum). Til þess að finna neyzlumagnið á einingu hverja, — þ. e. svarandi til neyzlu fullorðins karlmanns —, er því í báðum tilfellum deilt með 2,8 í heildarneyzlu heimilisins. Er þessari niðurjöfnun er lokið, höfum við fyrir okkur karl- mannsfæði sundurliðað eftir matartegundum og magni þeirra. Og út frá því getum við reiknað eða áætlað, livað mikið fáist af hverjum næringarefnafloldcanna, vítamínum og steinefnum, ef samsetning allra matvælanna er að þessu leyti kunn. Samsetningu allra helztu matvælanna er að fá úr sérstökum töflum, sem byggðar eru á niðurstöðum fjölda efnagreininga, en sumar matartegundir eru breytilegar að samsetningu eftir því, hvar þær eru framleiddar, og þarf þá að haga rannsóknum eftir því. Á þennan hátt má fá mjög sæmilega hugmynd um orkumagn fæðunnar og hlutföllin milli aðalnæringarefnaflokk- anna, eggjahvítu, fitu og lcolvetna. En mildu meiru getur skeik- að um steinefnin og einkum vitamínin, því að rannsóknir á þeim eru ekki eins víðtækar. Magn þeirra er oft mjög breyti- legt í sömu fæðutegund, og matreiðslan veldur oft rýrnun. Af þessu yfirliti mun ljóst, að margir örðugleikar eru á því að fá sanna mynd af mataræði manna, því að aðferðir þær, sem framkvæmanlegar eru við fjöldarannsóknir, eru allónákvæm- ar. Verður að hafa þetta í huga, er niðurstöðurnar eru athug- aðar, og einkum verður að fara varlega í því að draga álykt- anir af samanburði við heilsufarið. Ólíku er þar saman að jafna, hvað rannsóknir og tilraunir með dýraeldi eru auðveld- ari og nákvæmari. Þar er hægt að hafa fóðrið það sama dag el’tir dag, — sömu fóðurblönduna, sem er kunn að allri samsetn- ingu, og þarf því ekki annað en að vigta eða mæla í einu lagi dagsskammtinn. Þá er og hægt í tilraunaskyni að gera alveg ákveðnar breytingar á fæðublöndunni, taka í burt eitt eða fleiri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.