Andvari - 01.01.1942, Page 55
andvari
Sjálfstæðismál íslendinga 1830—1942
51
XIII.
I'yrsti vetur styrjaldarinnar snerti íslenzku þjóðina fremur
lítið. Menn úr öllum stjórnmálaflokkum voru samhuga um að
halda landi og þjóð utan við hringiðu styrjaldarinnar, eins og
1 fyrra heimsstríðinu. Þó varð vart ýmiss konar tákna, sem
hentu í þá átt, að hlutleysisaðstaðan yrði ótryggari í þessu
striði en hinu fyrra. Þótti margt benda til, að Bretar hefðu
augastað á að hafa hér bækistöð fyrir nokkuð af flota sínuin.
Ekki bar þó til tíðinda í þeim efnum fyrr en 9. apríl 1940. Þá
hertóku Þjóðverjar Danmörku og Noreg sama daginn. Ráðu-
neytið var úr öllum flokkum. Alþingi sat á fundum. Stjórnin
kvaddi fjóra merka lögfræðinga til að vera ráðunauta ríkis-
stjórnarinnar og Alþingis við aðgerðir þær, sem leiddi af
hinum raunverulegu sambandsslitum við Danmörku. Voru
Valdir í þessa nefnd Bjarni Benediktsson prófessor og allir
dómendur hæstaréttar, þeir Einar Arnórsson, Gissur Berg-
steinsson og Þórður Eyjólfsson. Var náin samvinna með þess-
ari lögfræðinganefnd, ríkisstjórninni og Alþingi. Voru nú
skjót handtök, og 10. apríl, daginn eftir hernám Danmerkur,
hafði Alþingi gert tvær stórmerkar ályktanir. í fyrsta lagi, að
nkisstjómin skyldi „að svo stöddu“ fara með vald konungs,
°S í öðru lagi, að þjóðin tæki meðferð utanríkismálanna í
s>nar hendur. Þegar konungi var sagt frá þessum aðgerðum,
tuldi hann þær réttmætar og eðlilegar.
Vel má vera, að siðar komi i Ijós, að Alþingi hafi verið hér
°t hægfara í sjálfstæðismálinu. Þegar sambandslandið var
kernumið og konungur landsins raunverulega stofufangi fram-
andi herþjóðar, gat verið ástæða til að stofna þegar í stað lýð-
yeldi. Þá stóð svo á, að fjöturinn hafði dottið af íslendingum
an þeirra tilverknaðar. Ef Alþingi hefði fellt úr ályktun sinni
or<5in „að svo stöddu“, var teningunum kastað. En fyrir þess-
ari framkvæmd var ekki vilji hjá meiri hluta Alþingis. Kjós-
endur, sem felldu Hannes Hafstein af stóli 1908, hefðu ef til
V|ll viljað stíga þetta spor þá. Nú var sá geðblær horfinn eins
°g þá stóð á.