Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1942, Page 68

Andvari - 01.01.1942, Page 68
64 Ólafur Sigurðsson ANDVARI ast nær bænum, en sauðhúsin fjærst, þar sem ekki voru reglu- leg beitarhús, marga km í burtu. Þarna var komið húsahverfi, sem tilsýndar setti sinn svip á býlið, hlýjan og vinalegan. Auðvitað var húsaskipun á mörgum smábýlum hagað þannig, að fjósið var áfast við bæinn, þá hesthús og lambhús og fleiri kofar í óreglulegri kös, en ærhús ætíð fjær. — Heldur þótti vera kotungssvipur og kotungsbragur yfir þessum býl- um, þótt ekki þyrfti það ætíð að vera. Þegar litið er yfir hina gömlu húsaskipun, sést greinilega, að á hinum betri og stærri bæjum var reynt að haga skipun húsa þannig, að þau færu vel á túninu og hæfðu sem bezt þeim búskaparháttum, sem stundaðir voru. Hér að framan var drepið á það, að hinar miklu bygginga- framkvæmdir gætu því miður ekki vakið óblandna ánægju sökum þess skipulagsleysis, sem þar væri á. Skal nú vikið að þessu nokkru nánar. Áður en steinsteypuöldin hófst, byrjuðu margir bændur á því að færa öll peningshúsin saman. Var þetta oft falleg húsa- röð á góðum stað á túninu. Veggir þeirra húsa, er rifin höfðu verið, hrundu brátt, urðu grasgrónir og hurfu að mestu, eða yfir þá var sléttað, svo að þeir voru ekki til lýta á túninu. Svo komu bæjarbyggingarnar. íbúðarhús var byggt úr stein- steypu, oftast rétt við gamla bæinn, — fram á hlaðinu eða sunnan við hann. — Það skásta af bænum var rifið og notað i nýju bygginguna, svo sem stofa, slcemma, baðstofa o. fl. En eftir stóðu ýmsir kofar, sem þá þótti hentugt að nota í bili til að hafa þar skepnur, hey, eldsneyti o. þ. 1. En þetta „í bili“ reyndist sums staðar nokkuð langt. 10—20 ár stóð þessi kofa- þyrping, með meira og minna hrundum veggjum, rétt við íbúð- arhúsið, til hinnar mestu óprýði og niðurdreps þrifalegri um- gengni á heimilinu. Steinbyggingunum fjölgaði. Fjós var byggt og fjóshlaða, stundum mjög skammt frá íbúðarhúsinu, stundum fast við það. Varð þá eitthvað af gömlu kofunum að víkja. Oft var áburðarhús byggt við þann enda fjóssins, er frá vissi íbúðar- húsinu. Var þá bóndinn á þann hátt búinn „að byggja sig fast-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.