Andvari - 01.01.1942, Síða 80
76
Gisli Guðmundsson
ANDVARI
í konungsboðskapnum hafði verið að því vikið, að nauðsyn
bæri til að efla samgöngur landsmanna. En í fjárlagafrum-
varpi stjórnarinnar var ekkert fé ætlað í þessu skyni. Fjár-
laganefnd neðri deildar þólti þetta skjóta skökku við og lagði
til að taka upp fjárveitingu í þessu skyni, þótt lítil væri. Hins
vegar vildi stjórnin verja rúml. 29 þús. kr. til að endurbæta
dómkirkjuna í Reykjavík. Þótti nefndinni það óþarfi og vildi
niður fella. Framsögumaður nefndarinnar var Grímur Thom-
sen, þjóðskáldið, er þá var bóndi á Bessastöðum og 1. þm. Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. Þótti honum óglöggt reikningshald
stjórnarinnar. Urðu tillögur nefndarinnar ofan á í báðum
deildum. Má segja, að snemma byrji átökin milli tilhalds og
nauðsynjar við meðferð hinna íslenzku fjárlaga.
24. ágúst 1875, tveim dögum fyrir þinglausnir, voru hin
fyrstu fjárlög afgreidd frá Alþingi. Skyldu þau gilda fyrir tvö
ár, 1876 og 1877, með því að þing kom eigi saman nema annað
hvert ár. Tekjur beggja áranna samtals voru áætlaðar kr.
579 593.46.Helztu tekjustofnarnir voru (broti úr þúsund kr.
sleppt): Tillag úr ríkissjóði Dana 196 þús. kr., áfengistollur
160 þús. kr„ tekjur af fasteignum landssjóðs 54 þús. kr„ lesta-
gjöld skipa 57 þús. kr„ tekjur viðlagasjóðs 22 þús. kr„ alþingis-
tollur 32 þús. kr. og tekjur af póstferðum 15 þús. kr.
Útgjöld beggja áranna samtals voru áætluð kr. 451 895.71.
Helztu útgjaldaliðirnir voru (broti úr þús. kr. sleppt): Til
æðstu stjórnar innanlands 26 þús. kr„ alþingiskostnaður 32
þús. kr„ dómgæzla, lögreglustjórn o. fl. 95 þús. kr„' til vega-
bóta 15 þús. kr„ til gufuskipaferða 30 þús. kr„ heilbrigðismál
38 þús. kr„ póstmál 26 þús. kr„ kirkjumál 26 þús. kr„
kennslumál 96 þús. kr. Af upphæðinni til kennslumála voru 10
1) Árið 1938, síðasta árið fyrir strið, var tekjubálkur fjárlaganna kr.
17 464 280.00. En samanburður i krónum er hér engan veginn einhlitur.
Fara má nær lagi með þvi að breyta báðum uppliæðunum í kúgildi, eins
og þau voru metin í verðiagsskrá á viðeigandi tima. Árið 1876 var kú-
gildið metið á rúml. 94 kr„ en 1938 á rúml. 253 kr., livort tveggja í Rvík
og nágrenni hennar. Má á þessu sjá, liversu mörg kýrverð fjárveitingar-
valdið hafði handa á milli i Jivort sinn.