Andvari - 01.01.1949, Qupperneq 7
andvari
Magnús Sigurðsson bankastjóri.
Eftir Eirík Einarsson.
Þegar ritað verður um Magnús Sigurðsson og það merki-
lega ævistarf, er hann innti af höndum, hlýtur það að verða
lengra mál en hér er rúm fyrir, og til þess fenginn maður,
er hefur miklu meiri þekkingu til brunns að bera um það,
er einkum skiptir máli, en sá hefur, sem skrifar þessa minn-
ingargrein. — Bankastjórastarf Magnúsar og önnur fjármála-
íhlutun hans, er því var samtvinnuð, er einn meginþátt-
urinn í þróunarsögu íslands þau rúm 30 ár, sem hann veitti
þjóðbankanum forstöðu. — Verður hér skammt yfir sögu
farið og án lengri formála.
Magnús Sigurðsson var fæddur í Reykjavík 14. júní 1880.
Voru foreldrar hans Sigurður Magnússon kaupmaður, d.
1901, og kona hans, Bergljót Árnadóttir, d. 1915. Faðir Sig-
'uðar var Magnús í Bráðræði, d. 1889, merkur borgari og
áhrifamaður á frumvaxtarárum höfuðstaðarins; var hann í
nokkur ár þingmaður Reykvikinga og stofnaði fyrsta spari-
sjóðinn. — Faðir Magnúsar í Bráðræði var Jón Jónsson
(,,Jónsen“), umboðsmaður á Stóra-Ármóti, er stundum gegndi
sýslumannsstörfum í Árnessýslu, vaskleikamaður og einarður
vel. — Auk Magnúsar voru synir hans Jón yfirdómari
(Álaborgar-Jón) og Þorsteinn sýslumaður í Árnessýslu, „kan-
selliráðið á Kiðabergi“, eins og gamla fólkið þar eystra kallaði
hann. Var „Jónsen“ á Ármóti, faðir þeirra bræðra, sonur
Jóns sýslumanns á Móeiðarhvoli, Jónssonar prests í Staf-
holti, Jónssonar sýslumanns í Einarsnesi, Sigurðssonar lög-
manns Jónssonar, er Bogi Benediktsson telur verið hafa
s>pakan að viti og sóttan mjög að málum um land allt, lítil-